Leita í fréttum mbl.is

Kannast einhver við það?

Ég sat gapandi yfir vel unninni umfjöllun Kastljóss um greiðslur til fyrirtækis dóttur Gunnars Birgissonar fyrir unnin og óunnin verk fyrir Kópavogsbæ.

Engir smápeningar þar.

Þegar fulltrúar minnihlutans vilja láta rannsaka málið kallar Gunnar það skítapólitík.

Ætli það séu margir smákóngar í stjórnmálum sem eru ekki búnir að ná því að svona sukk og rugl verður ekki liðið lengur?

Að nýjir tímar eru sem betur fer runnir upp.

Og Framsóknarmenn eru ekki tilbúnir til að slíta samstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn.

Þeir vilja bíða eftir skýrslu endurskoðanda.

Ég hefði haldið að það sem nú þegar liggur á borðinu um málið dygði til að fullvissa af fjalli komandi samstarfsflokkinn um að þetta er ekki eðlilegt hvernig sem málinu er snúið.

Gunnari finnst dóttirin ekki eiga að gjalda fyrir að vera að vera dóttir hans.

Vitið þið að mér finnst einmitt að einstaklingshagsmunir verða að víkja fyrir hagsmunum fjöldans.

Til að hefja störf pólitíkusa yfir allan vafa.

Hér hefur peningum verið sólundað í undarleg verkefni svo ekki sé fastar að orði komist.

Að minnsta kosti eru mörg verkefnanna þannig eðlis að þau virðast vafasöm í meira lagi.

Auðvitað á Framsókn slíta samstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn pronto.

En til að komast hjá því að detta á rassinn úr valdastól virðist mér Framsókn taka Geir Haarde og ISG á málið.

Þeir ætla greinilega ekki að persónugera vandann.

Ekki skipta um hest í miðri á.

Ekki hlaupast frá miðju björgunarverkefni.

Kannast einhver við það?

Vonandi gera þeir það sem rétt er.  Slíta samstarfinu og láta öðrum eftir að stjórna bænum á meðan málið er rannsakað.

 


mbl.is Ræddu hugsanleg meirihlutaslit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Svona hefur viðgengist á fleiri stöðum. Eiginmaður Steinunnar Valdísar stofnaði fyrirtæki þegar hún fór í borgarstjórn. Og verkefninu rúlluðu inn til Reykvískrar útgáfu. Kópavogur er ekki verri en Reykjavík og Samfó kannski bara svipaðir og Sjallar? 

Guðlaugur (IP-tala skráð) 20.5.2009 kl. 00:05

2 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Hahaha mér er skemmt.

Gunnar er náttúrulega með stærsta pókerfeis landsins. Reyndar þarf ekki póker til að gera þá miklu ásjónu stóra  . Blessaður kallinn.

En að koma með svona bölvaðan kattarþvott á þessu spillingarrugli er svo hallærislegt og trist. Hvert mannsbarn sér hvað er í gangi, bæði mannvitssléttur sem hinar bröttustu mannvitsbrekkur.

Segi bara fnykinn leggur af þessu dóti.

Það er gott að búa EKKI í Kópavogi núna

Einar Örn Einarsson, 20.5.2009 kl. 00:37

3 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Gleymdi, að tala um hvað mér finnst síðan þín flott núna með blómamyndinni og fíneríi.

Einar Örn Einarsson, 20.5.2009 kl. 00:39

4 Smámynd: Eygló

Hefur nokkur annar en Gunnar sagt að það væri gott að búa í Kópavogi? Mín orð yrðu ekki marktæk því í Kópavogi hef ég alla tíð alið konuna (alið manninn) og hef því engan samanburð. En eins áberandi krimma hefur maður ekki vitað um hér í bæjarstjórnun.

Eygló, 20.5.2009 kl. 01:45

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Sá ekki Kastljósið - þarf að kíkja á þetta.

Flottur banner hjá þér kona.

Hrönn Sigurðardóttir, 20.5.2009 kl. 08:39

6 identicon

Þeir Kópavogsbúar sem ég þekki, segja að Gunnar Birgisson og fjölskylda sé gjörspyllt og siðlaus - kunni ekki með nokkru móti að skammast sín og láti stjórnast af græðgi og frekju.

Stefán (IP-tala skráð) 20.5.2009 kl. 11:10

7 Smámynd: Garún

Stundum líður manni eins og rollum í réttum.  Það er ekkert eins pirrandi og þegar fólk heldur að maður sé heimskur, þrátt fyrir að maður reyni að sýna þeim kunnáttu sína í Trivial, Fimbulbambi og ég bara veit ekki hvað.  Ekkert virðist duga.  Ekkert!  Hundleiðinlegt helvíti!!  Því miður JÁ þá á að banna það að þegar þú ert í einhvers konar ábyrgðarstöðu með peninga að þá getur fjölskylda þín ekki sótt um verk hjá þér.  Þannig er það bara.  Ef þau eru svona klár og alltaf með lægstu verkin hvorteðer þá hljóta þau að geta reddað sér annars staðar.  Það er ástæða fyrir því að eiginmaður/eiginkona má ekki vitna gegn maka sínu fyrir rétti og so forth.  Sorry.  Það hljóta að  vera fleiri verk sem þau geta náð í og unnið sér inn fyrir.  Skítalykt í kópavogi og það er ekki útaf hesthúsabyggðinni eingöngu! 

Garún, 20.5.2009 kl. 12:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband