Leita í fréttum mbl.is

Afsal ráðherralauna

Ef heimurinn væri réttlátur, allir leituðust við að gera það sem rétt er og ef samviskan væri nokkurs konar öryggis- (og þjófavarna)kerfi sem léti ófriðlega í hvert skipti sem við gerum eitthvað gegn betri vitund, væri gaman að lifa.

Því miður er heimurinn ekki þannig en það eru til jákvæðar undantekningar á þessu og ég held að þeim eigi eftir að fjölga.

Ögmundur Jónasson afþakkaði ráðherralaun og lætur sér nægja þingfararkaup og hefur gert frá því að hann varð heilbrigðisráðherra, svo ég taki nýlegt dæmi.

Nú er ég að vona, kannski vegna þess að stundum þegar sólin skín trúi ég nánast bara á það góða, að þessir ráðherrar sem eru á bullandi ráðherralaunum en eru ekki í embætti lengur, afsali sér þessum peningum.

Margir þessara fyrrverandi ráðherra eru nú þingmenn og mánaðarlaun þeirra eru ágæt miðað við efnahagsástand og ört vaxandi fátækt meðal almennings.

Eigum við ekki að deila með okkur kjörunum?

Jeræt, Sjálfstæðisflokkurinn er auðvitað ekki á því, en kannski, maður veit aldrei.

Áttun getur hafa átt sér stað síðan ég heyrði í þeim síðast.

Bíðum og sjáum.

Kannski


mbl.is 22 á ráðherralaunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Ögmundur er náttúrulega alveg sér á parti að ganga á undan með góðu fordæmi. -  Það mætti sko fleiri fara að hans fordæmi. -

   Sérstaklega þeir sem eru á tvöföldum launum, eða jafnvel þreföldum. Og sumir af þessum fyrrverandi ráðherrum, sem sinnt hafa ráðherra embættum eða sambærilegum embættum og fá líka "há eftirlaun"  auk þess að vera í fullum launum hjá ríkinu. 

   En þessi launatala sem gefin er upp hjá Mogganum er nú dálítið röng! - 

Það er enginn með hærri laun en Forsætisráðherra sem er með 935 þúsund á mánuði. 

Og það á að vera búið að lækka laun opinberra starfsmanna, í samræmi við laun Forsætisráðherra það á enginn að fara uppfyrir 935. þús. samkvæmt lögum sem núverandi ríkisstjórn setti nýlega.

En það breytir engu um það að sumir sem eru hættir sem ráðherrar en eru á biðlaunum sem ráherra og fullum þingfararlaunum ættu að sjá sóma sinn í að skammast til að afþakka annað hvort. 

   Þessu eigum við að fylgja eftir en þá ætti mogginn líka að vera með réttar tölur, annars er þetta alveg ómarktækt.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 15.5.2009 kl. 14:18

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Svakalega ert þú orðin flínk í "layoutinu". Heldurðu námskeið?

Annars væri ég bara fegin ef ég fengi einhver ráðherralaun! Sko mig langar alveg í svona laun. Eigum við ekki bara að berjast fyrir því að það komist að minnsta kosti einn úr hverri fjölskyldu á ráðherralaun og gefi tíund í sameiginlegan sjóð handa hinum fjölskyldumeðlimunum!

Edda Agnarsdóttir, 15.5.2009 kl. 14:56

3 Smámynd:

That'll be the day

, 15.5.2009 kl. 17:26

4 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og kveðjur......

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 15.5.2009 kl. 18:26

5 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

heldurðu það væri nú munur ef allir fv. ráðherrar klæddust mussum og syngju um frið á jörð.

ég er klárlega að sjá Björn Bjarnason fyrir mér. hvað er flottara en að klæðast skræpóttri blómamussu og iðka kínverska leikfimiíhugun?

Brjánn Guðjónsson, 15.5.2009 kl. 18:43

6 Smámynd: Anna

Góður þessi Brjánn, Þeir gætu sungið allir. All you need is Love......give peace a change.   Mikið var nú ánægulegt að sjá fækkun á Sjálfs..... á Alþingi. Ég hefði vilja sá fleiri fara.

Anna , 15.5.2009 kl. 20:07

7 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Brjánn er með þetta...annars alveg sammála þér, erfiðir tímar framundan og allir verða að "þola" skertan hlut.

Sigrún Jónsdóttir, 15.5.2009 kl. 21:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband