Leita í fréttum mbl.is

Hefðasýkin

Í gegnum tíðina, allt eftir hentugleikum og hræringum, hefur mér verið skutlað á milli skrifstofa.

Ég man eftir að hafa verið sett í stærri og minni skrifstofur og ég hafði aldrei neina verki með því.

(Auðvitað voru mínir vinnustaðir ekki á hinu háa Alþingi, en vinna er vinna og henni reynir maður að standa klár á).

Ég held að í dag hafi komið í ljós að margir þingmenn eru með hefðasýki.

Tryggvi Þór Herbertsson er algjörlega mótfallinn afnámi bindisskyldu á þingmenn.

Sigmundur Davíð sagðist vera hrifin af hefðum og hefði því ekkert haft á móti því að bindisskyldan yrði áfram við líði.

Ég er á því að þeir sem hvað hefðasjúkastir eru, séu þeir sem ekki eru líklegir til að ganga hart fram í að breyta hlutum svona yfirleitt.

Ég er á móti hefðum sem eru til af því bara og það hefur alltaf verið þannig.

Ekki nógu gott.

Og nú hefur hefðasóttin lagst þungt á þingflokk Framsóknarflokksins upp á níu þingmenn.

Þeir eiga nefnilega að skipta um þingflokksherbergi við Vinstri Græna!

Hefðin er málið.  Þetta herbergi hefur ALLTAF verið herbergi Framsóknar.

Flokkurinn var nánast stofnaður þarna.

Kæru vinir, ekki deyja úr eigin mikilvægi.

Þið eruð á þingi vegna þess að þið hlutuð til þess kosningu og eigið að vinna af heilindum fyrir umbjóðendur ykkur.

Í hvaða herbergi þið gerið það er aukaatriði.

Það er eins og margir pólitíkusar haldi að þeir séu að skrifa feitletraða Íslandssögu í hvert skipti sem þeir velta inn á Alþingi svo ég tali nú ekki um ef þeir opna munninn.

Þessi kjánagangur minnir mig hins vegar á spígsporandi páfugla og ofdrekraðar prímadonnur með athyglissýki.

Það er kreppa, við hér úti í þjóðfélaginu erum mörg á ystu nöf.

Komið ykkur að verki og hættið þessu helvítis væli.


mbl.is Vilja ekki flytja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Hvort gengið er um með bindi eða ekki breytir ekki gangi himintungla. En er ekki rétt að halda í það sem gott er en kasta hinu?

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 13.5.2009 kl. 16:46

2 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Tek undir með þér.  Meira vælið í Framsóknarmönnum:  Deal with it, rétt eins og fjöldi heimila þarf nú að sníða sér stakk eftir vexti og minnka við sig í fleiru en grænum herbergjum.

Eins og fyrrverandi formaður þeirra sagði alltaf:  herða sultarólina og éta grjónagraut. 

Jenný Stefanía Jensdóttir, 13.5.2009 kl. 16:47

3 Smámynd: Garún

" I REST MY CASE YOUR HONOR"...Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að mér finnst pólitík leiðinleg....Voru þessir aðilar ekki að mæta í vinnuna í dag???  Og er þetta það fyrsta sem er á dagskrá?  Erum við geðveik?  Hverjum er ekki sama hvort þessum eða hinum finnist bindireglan frábær!  VERTU ÞÁ BARA MEÐ BINDI FÁVITINN ÞINN...Shitt nú er alveg komið nóg.  Mætið nakin í vinnuna I dont care....mætið bara í vinnuna og gerið eitthvað í málunum.   Það er ekki oft sem ég nota Caps lock en núna finnst mér það nauðsynlegt! 

Garún, 13.5.2009 kl. 16:55

4 Smámynd: Finnur Bárðarson

Mega menn vera með slaufu á þingi (að vísu hrikalega púkó) ?

Finnur Bárðarson, 13.5.2009 kl. 17:02

5 identicon

Einmitt svona hefðir sem aftra því að heimurinn skáni.  Það er hefð að aðeins gagnkynhneigð pör fái að giftast og vegna þess að það er hefð, þá er ekki hægt að breyta því.  Einu sinn var hefð fyrir því að litað fólk sæti aftast í strætó, hvort það hafi nú ekki meira að segja verið lög.

Það var hefð að konur klæddust pilsum og kjólum, ekki buxum.  

Það er hefð að "venjuleg" fjölskylda sé maður, kona, börn, bíll og hús.

Það er hefð að nota bindi og það er hefð að búa í eitthverju herbergi í Alþingishúsinu.

Ég held reyndar að ég hafi bara aldrei séð Tryggva nota bindi, á meðan á kosningum stóð.  Hvað heldur þeim að fólki þyki leitt að framsókn þurfi að færa sig úr herbergi sem þau hafa verið í blablabla mörg ár?  Hvað með fólkið sem var borið út þarna rétt fyrir jól fyrir norðan.  Vegna kreppu, hvað með þá sem þrufa að fara úr sínum húsum og sínum fasteignum vegna kreppu?  

Æi Simmi góður haltu kjafti!  (afsakakið orðbragðið)

Mér er bara alveg sama!  Eigið þið ekki að vera að gera eitthvað merkilegra en að væla yfir stólum og innréttingum!

Ekki hefur virðing mín við þessa stofnun neitt með það að gera í hvaða herbergjum þau mala í...

Unnsteinn (IP-tala skráð) 13.5.2009 kl. 17:45

6 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Tryggvi Þór var ekki á móti afnámi bindisskyldunnar 2003 þegar þáverandi ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar, afnam bindisskyldu.

En sá gjörningur var upphafið af þeim darraðardansi sem lauk með þeim ósköpum sem á Þjóðinni hefur dunið undanfarið, efnahagshruni. - Svo það er ekki nema von að þeir félagar Tryggvi Þór og Sigmundur Davíð vilji halda í hefðirnar, vitandi um þær afleiðingar sem afleiðingar  sem afnám bindisskyldunnar olli.

Þeir geta bara ekki sagt það upphátt.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 13.5.2009 kl. 17:46

7 Smámynd: Hólmfríður Pétursdóttir

Ömurlegur dauðdagi að deyja úr eigin mikilvæg.

Kemur næst því að deyja úr ráðaleysi.

 Það gæti orðið fækkun á þingi.

Hólmfríður Pétursdóttir, 13.5.2009 kl. 17:52

8 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Þeir líta vitanlega á þetta sem endanlega staðfestingu þess að þeir eru ekki lengur alvöru flokkur og ætti því að duga lítil skrifstofa, kústaskápur jafnvel.

Helga Magnúsdóttir, 13.5.2009 kl. 18:49

9 identicon

Vel mælt og stúlkulega!

("Stúlkulega" er kvenkynsmerking orðsins "drengilega".

Annars segir víst í Njálu að Bergþóra hafi verið drengur góður.)

Ég man þá tíð þegar þeir fáheyrðu atburðir gerðust að Alþýðubandalagsmenn tóku sér setu á hinu háa Alþingi íklæddir rúllukragapeysu við jakkafötin(minnir að það hafi verið Hjörleifur, Svavar Gests og Ragnar Arnalds). Var þá ekki laust við að sumum finndist máttarstoðir þjóðarinnar riða til falls.

En mér finnst eins og þér að þegar máttarstoðirnar eru í alvörunni að riða til falls eins og nú að þá eigi menn að leggja niður svona fánýtt snakk og hégóma.

Ég mundi vilja segja við háttvirta þingmenn eins og afi minn sagði stundum: "látið ekki nokkurn mann heyra þessa hörmungar vitleysu"!

Jón Bragi (IP-tala skráð) 13.5.2009 kl. 19:20

10 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Já farið að VINNA!!!!! Með eða án hálstaus!

  Ég hef krullast upp eftir hverja fíflafréttina af annarri hér í dag frá okkar stóra Alþingi og bloggaði um það núna rétt áðan.   

Ía Jóhannsdóttir, 13.5.2009 kl. 21:06

11 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sammála er ekki hrifin af hefðum bara að því að, og er alveg viss um að þeir sem taka af sér hálstauið kunna einnig að rífa, tæta og framkvæma svo.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 13.5.2009 kl. 22:05

12 Smámynd: hilmar  jónsson

Hefðir geta verið skemmtilegar. Ég er mikið fyrir ritualskar athafnir, en hálstau hafa aldrei verið minn tebolli.

hilmar jónsson, 13.5.2009 kl. 22:17

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þið eruð ótrúlega skemmtilegt fólk.

Auðvitað eiga þeir endilega að vera með bindi þeir sem það vilja.

Málið er auðvitað að þetta snýst um val.

Og varðandi þetta herbergi, það er kominn tími á að skipta um fundarherbergi á hverju kjörtímabili.

Til að ná úr þeim heimaríkuhunda-syndóminu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.5.2009 kl. 00:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.