Leita í fréttum mbl.is

Hipp og kúl dagsetning

Engin þörf fyrir aðra flokka, segir Jóhanna.

Okei, maður verður að lifa með því.  Segi svona.

Ég elska að segja eftirfarandi og skrifa:

VINSTRI FLOKKARNIR Á ÍSLANDI ERU MEÐ ÖRUGGAN MEIRIHLUTA - Ómæ, hvað það er dásamlegt.

En...

Ég veit að ég er frek, með straxveikina og engan skilning á að stjórnarmyndunarviðræður taka tíma, málefnavinnan ekkert hrist fram úr erminni og ladídadída, en ég var svona að vona að Steingrímur og Jóhanna myndu nota morgundaginn til að koma stjórninni formlega á koppinn.

Ég meina, er einhver dagsetning flottari fyrir vinstri stjórn en 1. maí?

1. maí stjórnin?

Ha?

Takið Ginseng og hjólið í málið.

Bara upp á flottheitin.

Já, nú þegi ég, ég skil, ég skil, ég skil.

En það væri samt ógeðslega hipp og kúl dagsetning.

Fram þjáðir menn og allur sá pakki.

Farin að baka flatböku.


mbl.is Engin þörf fyrir aðra flokka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

.. og e allt klikkar þá yrði 1 mai einkennisdagur mistaka og misheppnaðra aðgerða stjórnvalda.. má ég þá heldur biðja um 2 mai Jenný

Óskar Þorkelsson, 30.4.2009 kl. 21:19

2 Smámynd: Himmalingur

Steingrímur og Jóhanna telja að vika sé nærri lagi! En það hefði verið hipp og kúl 1 maí!

Himmalingur, 1.5.2009 kl. 00:13

3 Smámynd: Garún

Ohh ég er alltaf smá í fýlu útí 1.maí.  Þannig er mál með vexti að þegar ég var 12 ára þá var eitthvað próf í skólanum.  Og ein spurningin var, afhverju er 1.maí merkilegur?  Og ég svaraði að þá hefði Stuðmenn samið Maístjörnuna!  Og ég fékk vitlaust fyrir það og tók það afar nærri mér.  Hvort ég hafi ætlað að dúxa eða hvað man ég ekki.  En ég held að þetta hafi verið svona kynningarpróf til að kenna okkur hvernig próf yrðu í framtíðinni.  Á sama prófi var spurt um hvað er hálendi? og ég svaraði:  Þar sem eru fjöll sem engin þorir uppá!  Ég fékk líka vitlaust.  Síðan kom önnur spurning!  Hvað er láglendi?  Og ég svaraði!  Þar sem gott er að tjalda!   Ég fékk held ég ekki eina spurningu rétta á þessu prófi og minnir að ég hafi tekið strædó nr.8 grenjandi alla leiðina heim.  Og eftir það tók bara við pönk og skítt með kerfið.

Garún, 1.5.2009 kl. 00:18

4 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Já það hefði verið kúl 1.maí ríkisstjórn en það tekst víst ekki því miður. 

Ja hérna er  kominn 1. maí, tíminn flýgur áfram.  Góða helgi Jenný.

Ía Jóhannsdóttir, 1.5.2009 kl. 07:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband