Leita í fréttum mbl.is

Samtök iðnaðarins, ógeðslegir fúskarar

 samtök iðnaðarins

Það er ekki oft sem ég verð kjaftstopp og svo reið að ég má hafa mig alla við til að ná stjórn á mér.

Það gerðist þegar ég fletti Fréttablaðinu núna áðan.

Ég varð síðast svona reið fyrir hönd kvenna þegar Zero-kókauglýsingaherðin reið yfir, stútfull af kvenfyrirlitningu og ógeði.

Miðað við þessa auglýsingu er Zero-dæmið fagur göngutúr í mánaskini.

Velur þú fagmann eða fúskara?; spyrja Samtök iðnaðarins í stórri auglýsingu í Fréttablaðinu.

Subbulegur karlinn heldur á sprautu fyrir framan konu sem greinilega liggur á skoðunarborði með fætur í sundur.

Niðurlægjandi og ósmekklegt með eindæmum að nota konur í þessari aðstöðu til auglýsinga.

Þarna er svo vísað í ólöglegar fóstureyðingar til viðbótar við kvenfjandsamlega myndina.

Allur pakkinn tekinn, ekkert verið að pakka hugarfarinu gagnvart konum inn í bómull.

Ég er ekki talsmaður neinna samtaka þannig að ég ætla að leyfa mér að segja það sem mér býr í brjósti.

Hvaða andskotans örheilar hafa búið til auglýsinguna?

Hvaða molbúar hjá Samtökum iðnaðarins samþykktu hana.

Hvaða fífl í auglýsingadeild Fréttablaðsins hleypti þessu ógeði í gegn?

Þangað til að allir þessir aðilar hafa beðið afsökunar og tekið til baka þennan viðbjóð þá les ég ekki Fréttablaðið og Samtök iðnaðarins eru tveir í mínus með aðdáendur og stuðningsmenn.

En eitt er á hreinu, ég þarf ekki að spyrja einn né neinn um hvort Samtök iðnaðarins séu fagmenn eða fúskarar.

Svarið liggur nú þegar ljóst fyrir.

Skammist ykkar og það niður í tær.

Nýjustu fréttir, afsökunarbeiðni og auglýsing tekin út vegna viðbragða fólks við henni.

Gott og vel.

En eftir situr þessi tilfinning í mér að það er fólk þarna úti sem sér ekkert að því að gera svona og tekur við sér þegar það uppgötvar að viðbjóðurinn í hausnum á því geti skaðað ímyndina.


mbl.is Auglýsing SI vekur hörð viðbrögð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sylvía

ja hvad a thetta sameiginlegt med flisalogn? Atti thetta jafnvel ad vera sma sexy lika? Hver veit hvernig hugsanagangurinn er tharna?

Sylvía , 29.4.2009 kl. 12:40

2 identicon

Gæti verið auglýsing frá Páfagarði.Kvenfyrirlitningin alger.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 29.4.2009 kl. 12:44

3 identicon

úff

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 29.4.2009 kl. 12:59

4 identicon

Auglýsingagerðin var í höndum Hvíta Hússins, bara af því að þú spurðir!

Erla (IP-tala skráð) 29.4.2009 kl. 13:42

5 identicon

Ekki sá ég Coke Zero auglýsingar og get því ekki borið saman við það, en þetta er alger bilun. Ekkert minna. Ótrúlegt að þetta skuli hafa farið út svona, eftir að fjöldi starfsmanna hefur farið um þetta höndum í "hugmyndavinnu", tæknivinnu, osfrv.

En af hverju ertu eiginlega að klína þessu á þína síðu líka?? - svona lagað er ekki þess virði að vera afritað.

Svo er athyglisvert að forstöðumaður samskiptamála, sem hefur væntanlega haft umsjón með þessu, er kona! ja hérna hér...

Evreka (IP-tala skráð) 29.4.2009 kl. 14:17

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Evreka:  Takk fyrir þitt innlegg.

Ég klíni þessu hér vegna þess að mér finnst að fólk verði að sjá til að skilja.

Erla: Takk.

Ragna: Páfagarður og það hyski eru eins og nýskeindir kórdrengir við hliðina á hugmyndafræðingum SI.

Sylvía: Ég næ ekki hugsanaganginum, en mér býður klárlega við honum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.4.2009 kl. 14:42

7 identicon

Ég hafði nú ekki tekið eftir auglýsingunni fyrr en ég sá  þína ábendingu þrátt fyrir að hafa lesið blaðið.  Mér finnst hún ógeðfelld og höfundur hennar kannski haft þann tilgang í huga að hún tengdist hans "draumórum".   

Páll A. Þorgeirsson (IP-tala skráð) 29.4.2009 kl. 14:48

8 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Ja mikið svakalega hafa menn og konur lagst lágt, ef þeim fannst þetta grípandi og flott auglýsing!   En mikill er máttur þinn nafna, og hafðu þökk fyrir árverkni og heilbrigða sýn.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 29.4.2009 kl. 14:54

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mikið er ég sammála þér!

Sigurður Þór Guðjónsson, 30.4.2009 kl. 00:59

10 identicon

Fyrir utan það, hvenær hafa samtök iðnaðarins unnið við fóstureyðingar? Ég veit ekki betur en að fóstureyðingar séu framkvæmdar inn á sjúkrahúsum og af fagmönnum!

Dæmigert fyrir gelt hugarfar að taka 1960's concept og "yfirfæra" það á nútímann. Hvíta Húsið og co eru gjörsamlega hugmyndasnauðir og það sem verr er, ekki í takt við siðfræði og almenna skynsemi.!!

Inga Þórunn (IP-tala skráð) 1.5.2009 kl. 14:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.