Leita í fréttum mbl.is

Munið hrunið

Í tilefni dagsins og samvisku minnar vegna vill ég minna á eftirfarandi, vegna þess að nú í dag hefur fólk tækifæri til að tala með atkvæði sínu.

Refsa eða umbuna.

Munið hrunið.

Munið hverjir gerðu það mögulegt.

Sjálfstæðisflokkurinn í boði Framsóknar lengst af, rétti óreiðumönnum fjöregg þjóðarinnar sí svona, eins og ekkert væri sjálfsagðara.

Nú er allt útlit fyrir að næstu kynslóðir verði bundnar á skuldaklafann og það án þess að hafa lyft litlafingri til að orsaka það.

Gangið fram hjá þeim flokkum sem sváfu á verðinum eða tóku þátt í sukkinu.

Ekki hafa á samviskunni áframhaldandi rugl.

Ég kýs VG og þakka fyrir að ég þarf ekki að velkjast í vafa um heiðarleika þess flokks.

Njótið dagsins!


mbl.is Bjarni Ben kaus fyrstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Er að fara að kjósa....áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf með tryggan meirihluta

Sigrún Jónsdóttir, 25.4.2009 kl. 15:08

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

VG höfnuðu öllum styrkjum sem var otað að þeim, næstum því óhugnanlegt :)

Finnur Bárðarson, 25.4.2009 kl. 15:24

3 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knús knús og ljúfar kveðjur :0)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 25.4.2009 kl. 15:27

4 Smámynd: Þorsteinn Sverrisson

Vinstri grænir vildu ólmir komast í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum fyrir tveim árum, frekar en að mynda vinstri stjórn. Nú telja þeir þá óalandi og óferjandi. Tímarnir eru fljótir að breytast!!   Mér finnst að það eigi ekki að kjósa til að refsa. 

VG fá mikið hefnifylgi núna en það verður ekki til frambúðar.  Við komumst ekki út úr kreppunni með skattahækkunum. Verðum að koma gjaldþrota fyrirtækjum sem fyrst í eigu einkaaðila aftur.  VG nota mistök við einkavæðingu og klaufaskap varðandi fjármálafyrirtæki sem rök fyrir því að tefja nýja einkavæðingu.  Það er eins og að banna bíla út af bílslysum.

Þorsteinn Sverrisson, 25.4.2009 kl. 15:31

5 Smámynd: hilmar  jónsson

Power to the PEOPLE. Kjósum félagshyggju, ekki spillt auðmannasukk XD og XB.

hilmar jónsson, 25.4.2009 kl. 15:46

6 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Eigið skemmtilega kosningavökur þarna á kæreiks.  Hér verður ekkert útt fyrr en með morgunkafinu þar sem ég nenni ekki að vaka svona eftir einhverjum tölum.

Ía Jóhannsdóttir, 25.4.2009 kl. 15:48

7 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Ég get svarið fyrir það morgunkafi, morgunkaffi og vökur ehehhe vonandi bara ein vaka.  Fingurnir hlýða mér ekki í dag.  Hvað er t.d. útt á að vera fútt!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Ía Jóhannsdóttir, 25.4.2009 kl. 15:50

8 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

var það ekki Framsóknarflokkurinn í boði Sjálfstæðisflokksins?

æ, bíttar engu. sama taðið

Brjánn Guðjónsson, 25.4.2009 kl. 15:58

9 identicon

Mikið er minnið ykkar skammt sem ætlar aað kjósa vinstra rugglið yfir sig sem kom okkur í 100% verðbólgu og atvinnuleysi 1983,en eina góða við þetta er að þetta lið getur ekki unnið saman nema í fáa mánuði og við getum kosið aftur fyrir jól

Friðrik (IP-tala skráð) 25.4.2009 kl. 16:03

10 identicon

Þetta er ódýrt, kæra Jenný og það veistu.

Munum Gulag í boði?????????

 

Það er margt í baksýnisspeglinum sem allir eru sekir af, ekki satt?

Gísli Guðmundsson (IP-tala skráð) 25.4.2009 kl. 16:41

11 identicon

Hvernig nenniru þessu kona! einsog gamall alki, allt öllum öðrum um að kenna! hvað með þig sjálfa???

kristin fagra (IP-tala skráð) 25.4.2009 kl. 17:00

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Kristín: Hvernig nennirðu að hlaupa á milli tölva í Kennaraháskólanum og þrusa skítakommentum inn á mína tölvu?

Hvað um það, "eins og gamall alki"?  Ég er alki og frekar gömul.

Ég kannast ekki við að hafa verið í pólitík og get því enga ábyrgð tekið á henni.

Auli og fífl.

Takk öll þið sem hafið tekið þátt í umræðunni.

Lalalala

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.4.2009 kl. 18:03

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Friðrik: Hoppaðu inn í raunveruleikann, það er ekkert sem segir að vinstra fólk geti ekki unnið saman.  Mikið vatn runnið til sjávar síðan það var reynt, þ.e. þangað til nú og allt í blóma.

Gísli: Ég er bullandi sek um allan fjandann svona persónulega og hef þurft að díla við það og mína bresti eins og flestir.  Það er bara ekki málið.  Það eru þeir pólitíkusar og flokkar sem sátu við stjórnvölinn þegar allt fór til fjandans sem eru sekir hér.  Einfalt mál.

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.4.2009 kl. 18:29

14 identicon

Jenný, alls ekki meint persónulega til þín heldur þá skoðun þína sem ég tók þannig að menn/flokkar hefðu meðvitað ákveðið að seta landið á hausinn, það gerir engin er það??...Þar tapa allir.

Mín skoðun er eins og þín að kjósa en ekki skila auðu á þessum erfiðu tímum og að hafa skoðun og geta skipst á skoðunum með virðingu fyrir hvort öðru án upphrópana er það sem skiptir miklu/mestu máli.

Takk fyrir að svara, gott kosningakvöld og enn betri morgundag.

Gísli, Framsóknarmaður.

Gísli Guðmundsson (IP-tala skráð) 25.4.2009 kl. 18:48

15 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Flokkurinn rétt aldrei auðmönnum þessa fjármuni heldur misnotuðu þeir það frelsi sem þeir fengu. Nú hefur Sjálfstæðisflokkurinn boðað að hér eftir mótist fjármálakerfið við þarfir Íslensks efnahagslífs og hefur auk þess boðað margar fleiri lausnir.

Því er full ástæða fyrir þjóðina að styðja flokkinn og ég kaus hann í dag.

X-D

Hilmar Gunnlaugsson, 25.4.2009 kl. 19:23

16 identicon

Hrunið verður ógleymanlegt þegar fram í sækir, spurningin er hvort einhvejir læra eitthvað á því eftir að það verður yfirstaðið.

Við erum sennilega í miðjum "hrunadansinum" í dag 

Ég óttast dálítið mikið að núverandi ríkisstjórn noti full lélega steypu í "undirstöðurnar", það lélega að efri hæðirnar eigi eftir að hrynja yfir okkur aftur.  Svo lekur líka allt of lítið vatn úr brunaslöngunum átján sem slökkva á bálið í heimilunum og fyrirtækjunum með.  Ég er ekki farinn að fagna einu né neinu, enda ekki ástæða til, sama hvernig kosningarnar fara læt ég duga að fara með Æðruleysisbænina   í dag sem og aðra daga. 

Páll A. Þorgeirsson (IP-tala skráð) 25.4.2009 kl. 20:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2985720

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.