Leita í fréttum mbl.is

Þeir ætla að grilla í dag - arg!

ræningjarnir 

Það er ekkert undarlegt við það að "sumar" og vetur frjósi saman.

Það veit það hvert mannsbarn að almanakssumarið er tveimur mánuðum á undan hinu eiginlega sumri.

Annars er ég hreinlega að drepast úr hlátri.

Hver er það sem er ímyndarsérfræðingur Sjálfstæðisflokksins spyr ég?

Annað hvort er það svarinn andstæðingur flokksins eða þá að hann er með sjúklegan húmor, sem ég perrinn fíla í botn.

Fjölskylduhátíð í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í dag kl. 16.30

rænó

Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík og í Suðvesturkjördæmi efnir til fjölskylduhátíðar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík á morgun, sumardaginn fyrsta, kl. 17.00-19.00.

Formaður flokksins, Bjarni Benediktsson, mun ávarpa gesti hátíðarinnar og ýmis skemmtiatriði verða í boði. Nefna má atriði úr Kardemommubænum, fimleikasýningu frá Ármanni, trúbadora, andlitsmálningu og ýmsa leiki. Fjölmörg leiktæki í garðinum verða í gangi og boðið verður upp á grillaðar pylsur og gos.

Svei mér þá ef vesalings Sjálfstæðisflokknum verður ekki allt að meini.

Nú eða þá að klúður þeirra nái yfir allt sem mögulega er hægt að láta sér detta í hug.

Í fyrsta lagi þá á Sjálfstæðisflokkurinn ekki að taka sér í munn orðið "grilla".  Það kallar á hlátursgusur og krampaköst allra nema kannski þeirra sjálfra.

En í dag á að grilla.  Hannes Hólmsteinn hlýtur að vera á grillinu.

Svo eru það ræningjarnir þrír.  Bara þrír?  Er verið að spara?

Ég get svona rétt ímyndað mér hvað er í pokanum þeirra.

Síðan er boðið upp á andlitsmálningu.

Ég velkist ekki í vafa um hverjir verða fremstir í þeirri röð.  Sjóðurinn og Gulli koma sterkir inn.  Að tala um þörfina fyrir dulagervi.  Almáttugur.

Æi takk Sjálfstæðisflokkur, þið björguðuð sumardeginum fyrsta hér á kærleiks og eflaust víða.

ARG.

 


mbl.is Sumar og vetur frusu saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Já fussum svei...kannski Soffía frænka bjargi okkur frá hinum raunverulegu ræningjum á laugardaginn

Gleðilegt almanaks sumar

Sigrún Jónsdóttir, 23.4.2009 kl. 12:55

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

snilld

30BEDA55-B2D0-6370-817A-081F7BF5D664
1.02.28

Hólmdís Hjartardóttir, 23.4.2009 kl. 13:01

3 Smámynd: Steini Thorst

Vá hvað þú ert upptekin að gagnrýna Sjálfstæðisflokkinn fyrir sömu hluti og hinir flokkarnir eru að gera. Í síðasta pistli varstu að gagnrýna Guðlaug fyrir styrki og að ætla ekki að birta uppgjörið nema aðrir geri það líka. það sama á við um Björn Inga, Össur og Steinunni Valdísi svo þeir séu nú nefndir sem  nú þegar hafa tekið í sama streng.

Samfylkingin er í dag með Kaffi, Vöfflur, Blöðrur, Íspinna, Gunna, Felix, Skoppu og Lucy ásamt Jóhönnu og Össur á Austurvelli. Hver er munurinn?

Steini Thorst, 23.4.2009 kl. 13:10

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jónína Dúadóttir, 23.4.2009 kl. 13:15

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þeir eru yndislegir! Hér sit ég í ausandi rigningu og skemmti mér konunglega á kostnað sjálfstæðisflokksins!

Þeir hafa náttúrulega komið svo víða við að maður skellir upp úr nánast í hvert sinn sem þeir opna munna......

Hrönn Sigurðardóttir, 23.4.2009 kl. 13:19

6 Smámynd: Huld S. Ringsted

Það eru allir í kosningasmölun í dag. Samfylkingin ætlar að grilla á Akureyri í dag, VG ætla að grilla á Akureyri í dag, Sjálfstæðisflokkurinn bakar vöfflur á Akureyri í dag og Frjálslyndir bjóða upp á fiskisúpu á Akureyri í dag!

Húsmæður á Akureyri eiga frí frá eldamennsku í dag, þar á meðal"antikokkistin" ég, því ætla ég að drífa familíuna í bæinn, flakka á milli flokka og "gefa" liðinu mínu að borða, mætti vera kosningasmölun á hverjum degi mín vegna

Gleðilegt sumar Jenný

Huld S. Ringsted, 23.4.2009 kl. 13:24

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Grilla, grilla, grilla.

Það er ekki sama hver grillar sko.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.4.2009 kl. 13:25

8 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Axel Jóhann Hallgrímsson, 23.4.2009 kl. 17:23

9 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Eru ekki þessar elskur steinhættar að græða á daginn þannig að íhaldið þarf að grilla allan sólarhringinn. Mér finnst það við hæfi að ræningjarnir aðstoði við það!

Ingibjörg Hinriksdóttir, 23.4.2009 kl. 22:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.