Leita í fréttum mbl.is

Mál númer tíu

Sannleikurinn á ekki upp á pallborðið sumsstaðar á Íslandi.

En það stendur til bóta.

Ég skildi þig Katrín, eins og reyndar allir sem vilja ekki nýta sér tækifærið og slá sér upp í pólitíkinni með því að rangtúlka orð þín.

En að máli málanna, sem á erindi við allan þingheim.

Mál númer tíu er mikilvægt mál á dagskrá þingsins í dag.

Það er langþráð bann við nektardansi og viðlíka starfsemi.

Ég og fjöldi annarra reiknum með að þing fari ekki fet fyrr en þessu máli hefur verið komið í höfn.

Um það er í raun ekki fleira að segja.

Í gegn með málið gott fólk.

Annað er ekki boðlegt.


mbl.is Orð Katrínar falla í grýttan jarðveg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Satt er það annað er ekki í boði, þeir geta ekki hunsað lengur þann boðskap sem kemur frá fjöldanum.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.4.2009 kl. 12:51

2 identicon

Sæl jenný.

Ég las skemmtilegan pistil eftir Sverri Stormsker á blogginu hans einmitt um þetta mál endilega tékkaðu á honum.  

http://stormsker.blog.is/blog/stormsker/entry/834358/

Hörður (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 12:52

3 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Heyr, heyr.

Helga Magnúsdóttir, 16.4.2009 kl. 13:50

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hörður minn Tómasson: Tékkaði á Sverri og þetta var ansi hreint skemmtilegur pistill, fullur af gáska og tvíræðni, ekkert of gróft, ekkert ofsagt, eins og hans er von og vísa, smekklegheitin uppmáluð.

En það jók beinlínis tiltrú mína á manneskjuna þegar ég bar augum hið fagra mannlíf sem fer fram í kommentakerfi öðlingsins Sverris.  Þar er mannvirðingin og þá sérstaklega virðingin fyrir konum höfð í heiðri og ég hló á mig gat.

Vonandi detta þeir allir á hausinn og þjófstarta á sér heilabúinu, þ.e. ef vera skyldi að þeir hefðu eitthvað.

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.4.2009 kl. 13:55

5 identicon

Sæl aftur.

Ja....mér sýnist þeir bera svona álíka virðingu fyrir konum og þú virðist bera fyrir körlum.  Er það þá bara ekki allt í lagi, þá eruð þið kvitt.

Hörður (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 15:02

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hörður: Hvar hefur þú séð mig gera lítið úr karlmönnum?  Haltu þér við staðreyndir.

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.4.2009 kl. 16:44

7 Smámynd: Finnur Bárðarson

Djöf.... er það komið í gegn og orðið að lögum??? Þar fór þessi helgi.

Finnur Bárðarson, 16.4.2009 kl. 16:54

8 identicon

Sæl jenný.

Staðreyndir já?  Nú það var að sjá á fyrra svari þínu að fyrst þessir menn sem voru að skrifa þarna væru ekki á sömu skoðun og þú, nú þá hlytu þeir að vera annaðhvort heiladauðir eða heilalausir, ekki satt?

Annars fynnst mér það lýsa ótrúlegu skilningsleysi og mannvonsku að þú og þínir líkar virðist ekki vilja gefa þessum blessuðu strippstelpum það að þær hafi svo mikið sem snefil af sjálfstæðum vilja eða sjálfsvirðingu, nú eða geti myndað sér sjálfstæðar hugmyndir yfirleytt, en samkvæmt þér eru þær sjálfsagt heilalausar líka.

Hörður (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 18:08

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ja hérna, of oft eru þér lögð orð í munn, sem engin fótur er fyrir
segi nú ekki meira en það.
Kveðja
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.4.2009 kl. 19:07

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hörður: "Nú það var að sjá á fyrra svari þínu að fyrst þessir menn sem voru að skrifa þarna væru ekki á sömu skoðun og þú, nú þá hlytu þeir að vera annaðhvort heiladauðir eða heilalausir, ekki satt?"

Ef það væri málefnaleg umræða sem færi fram þarna þá gætir þú með réttu ásakað mig fyrir að þola ekki að fólk sé mér ósammála.

Lestu yfir kommentin, ef þér finnst þau sæmandi þá er það í fínu.

Annars skil ég ekki af hverju ég er að missa mig í svona.

Borin von.

Milla: Segðu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.4.2009 kl. 19:27

11 identicon

Missa þig?  Það er nú kannski óþarfi að vera að missa sig þó að þú verðir fyrir smá gagnrýni.  En það er kannski skiljanlegt.  Sannast nú enn hið fornkveðna að "sannleikanum verður hver sárreiðastur"

Lifðu heil.

Hörður (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 20:14

12 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

O My My þessi Hörður er nú bara í því að reyna að ná þér upp,
þekkir þig náttúrlega ekkert finnst hann heldur að það sé hægt

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.4.2009 kl. 20:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 2985622

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.