Leita í fréttum mbl.is

Ávísun á vandræði

Það eru innan við tvær vikur til kosninga.

Ástandið er vægast sagt óhefðbundið og undarlegt.

Þingið starfar ennþá.  Hvað verður um stjórnarskrármálið?

Á Sjálftökuflokkurinn að hafa þar sigur yfir vilja stórs hluta almennings, um breytingu á stjórnarskrá og stjórnlagaþing?

Ég vill ekki trúa því.

Skítabomban sem féll um stóru styrkina fyrir páska er enn að senda frá sér ólykt og ekkert lát á.

Ég veit ekki með ykkur, en ég er löngu hætt að skilja hver sagðist hafa sagt hvað við hvern og gert hvað og látið annað ógert, hvenær og hvernig (hér kem ég upp til að anda).

BB hinn nýi formaður íhaldsins ætti nú að fara að fá þetta á hreint í eitt skipti fyrir öll.

Við erum mörg sem höfum ekki smekk fyrir löngum sápuóperum.

Hvernig sem þessu máli er snúið, þá er það svo vont fyrir Sjálfstæðisflokkinn að ég finn nærri því til með þeim.

Svo er ég enn á því að það sé út úr korti að fyrirtæki séu yfirleitt að halda stjórnmálaflokkum gangandi.

Það er ávísun á vandræði og hagsmunaárekstra.

Svo ég tali nú ekki um mútur.

Jabb, þingið hefst í dag.

Heldur fjörið áfram?


mbl.is Var í beinu sambandi við bankastjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er mjög sorglegt að mafíuskrímsli starfi á Íslandi undir rangheitinu Sjálfstæðisflokkur. Það er sorglegt að einræðisvöldum kolkrabba/Engeyjarættar skuli viðhaldið með Bjarna Ben. Það er sorglegt að enn skuli hér finnast 20 % stuðningur við þennan sorglegasta ,, stjórnmálaflokk " Evrópu í dag. Það er bara sorg í kring um þetta rotna spillingarafl.    

Stefán (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 10:02

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er ekki hægt að vorkenna fólki sem hefur sjálft og vitandi vits komið sér í annað eins klandur.  Og segjast svo ekkert hafa vitað af þessu.  Ætli einhverjir fyrir utan me me fólkið trúi þessu bulli?  Held ekki.  Fyrr má nú vera, þeir kunna ekkert á þetta nýja líf.  En að vorkenna þeim.... nei ég læt sjálfstæðismennina um það, já hinn almenna kjósenda sem ætlar að kjósa þá af því að þó stundum hafi verið þörf þá er núna nauðsyn.  Já það kemur alltaf betur og betur í ljós að þetta er trúarsöfnuður en ekki fólk með meðvitundina í lagi og lýðræði að leiðarljósi.  Þessu fólki er hreinlega alveg sama um lýðræðið, bara ef klúbburinn þeirra er við völdin, og þau hugsanlega fái einhverja mola af háborðinu, nú eða bara gloríuna af því að vera í þessum glæsilega hópi.  Pabbi minn er þarna á meðal reyndar.  Það þýðir ekki einu sinni að tala um þetta við hann.  Það voru bara einhverjir vondir menn innan flokksins sem gerðu þetta allt og hinir greyin geta ekki einu sinni varið sig.  Bíðið meðan ég æli!!

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.4.2009 kl. 10:24

3 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 10:36

4 Smámynd: Sigurður Sveinsson

Fjörið er rétt að byrja. Þeir læðast með veggjum, þeir ljúga og stela/ og láta sem þeir hafi ekkert að fela./ Sextíumilljónir segja ekki mikið/sjóðurinn tómur, þrátt fyrir vikið.

Sigurður Sveinsson, 14.4.2009 kl. 10:44

5 Smámynd: Linda litla

Ég segi eins og Sigurður, fjörið er rétt að byrja.

Bestu kveðjur á þig Jenný.

Linda litla, 14.4.2009 kl. 11:07

6 Smámynd: Finnur Bárðarson

Birgir Ármannsson fyrstur á mælendaskrá kemur svo aftur og veitir andsvar við sjálfan sig síðan koll af kolli. Óperan heldur áfram.

Finnur Bárðarson, 14.4.2009 kl. 11:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 2985742

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband