Leita í fréttum mbl.is

Af altmuligmanninum

Vá hvað Geir altmuligmaður Haarde var öflugur formaður, forstætisráðherra, gjaldkeri, bókahaldari, sendill og fjáröflunarmaður árið 2006.

Ekki nóg með að hann hafi tekið við fimmtíuogfimm milljónum frá FL-Group og Landsbanka, kortéri áður en lög um fjárframlög til stjórnmálaflokka gengu í gildi.  Nei hann lét ekki þar staðar numið.

Hann hefur gengið með bókhaldið í vasanum, skroppið í banka og skipt peningunum og lagt þá inn á reikning flokksins án þess að kjaftur yrði þess var.

Altíeinu margir peningar á reikningi flokks - púmm, pang.  Gaman að því.

Öllu þessu stóð hann í meðan hann stjórnaði landinu.

Ég er nánast viss um að hann hefur haldið utan um félagaskrána líka.

Trúir fólk þessari útskýringu?

I don´t think so.

Íhaldið er farið að ljúga út í eitt.

Og ég, kæru vinir, er algjörlega raddlaus.

Kem ekki upp hljóði. 

Jamm.


mbl.is Geir segist bera ábyrgðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Karl Löve

Láttu ekki svona Jenný. Auðvitað vissi enginn annar af þessu. Í þessum sértúarsöfnuði er sjálfstæð hugsun ekki til heldur er æðsti presturinn bara eltur af jarmandi söfnuði.

Þessum söfnuði var vel lýst í öðru bloggi (man ekki hverju) sem hirðfíflum og er það alltaf að sannast betur og betur.

Og til að bæta gráu ofan á svart halda þeir almennu kjósendur sem enn hanga í þessum söfnuði að nýji æðsti presturinn sem aldrei hefur dýft hönd í kalt vatn geti nokkurn sinni sett sig í spor venjulegs fólks.

Karl Löve, 8.4.2009 kl. 22:54

2 Smámynd: Jón Arnar

Týpiskt bragð og hjá öllum flokkum held ég er að hinn fallni "predikant" hefur haft ábyrgðina - þá fríjast jú allir hinir sem enn eru að ikk?

Jón Arnar, 8.4.2009 kl. 23:06

3 identicon

Ef það eru eftir einhverjir heiðarlegir Sjálfstæðismenn þá hljóta þeir að pakka saman núna.  Þetta síðasta útspil er með ólíkindum og ég trúi því hreinlega ekki að til sé fólk sem kaupir þetta, jafnvel ekki Sjálfstæðisfólk. 

Hef verið að skoða Eyjuna í dag og Sjallarnir halda kj... allir sem einn (tel Dúdda bei ekki með).  Það er örugglega hljótt og dimmt í Valhöll núna.

Erna Kristín (IP-tala skráð) 8.4.2009 kl. 23:06

4 identicon

Ja hérna hér.....Hvenær endar þetta? Veit ekki hvort ég eigi að æla núna eða........

Ragnheiður Arna Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 8.4.2009 kl. 23:08

5 identicon

Allt nema..... athafnamaður :-o

ASE (IP-tala skráð) 8.4.2009 kl. 23:19

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

...svo var því haldið fram að Geir væri haldinn verkkvíða  Það er með ólíkindum hvernig þessi flokkur hefur haldið á málum.

Sigrún Jónsdóttir, 8.4.2009 kl. 23:44

7 Smámynd: Sjóveikur

http://www.youtube.com/watch?v=48WYPBJxECA nú fer að líða að því að framhaldssagan um Grínarann góða og Geira harða byrji, Geiri sjálfur ætlar að hilma yfir alla félagana í Sjálfstæðis mafíunni, það er eiginlega kominn tími til að steypa undan “Haukunum” almennilega og frysta alla tilganga sem fólk viðloðandi þessa mafíu síðustu árin eða frá 17 Júní 1944 og þangað til nú hafa, það eru fleiri með í skírlífis veislunni, oj hvað þetta getur orðið ljótt allt saman, Geiri karlinn harði vill að við trúum því að allar þessar milljónir hafi verið án vitundar og ábyrgðar annara í flokknum, þvílíkur jaxl Geiri harði er, (enda frændi minn) svo les maður svona fréttir, ég fékk bara slummuna beint í augað það eru svo mörg glæpaferli í gangi á Ísalandi það kemur að því karlinn Æl, sjoveikur / www.icelandicfury.com

Sjóveikur, 8.4.2009 kl. 23:49

8 Smámynd: Soffía Valdimarsdóttir

Ég segi fyrir mig, ég er orðin pakksödd af skít!

Soffía Valdimarsdóttir, 8.4.2009 kl. 23:52

9 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Sammála Jenný, þetta lið er spillt inn að mænu. En hvernig líst þér á þessa tillögu mína að nýju merki íhaldsins

Guðsteinn Haukur Barkarson, 9.4.2009 kl. 01:13

10 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Karl, var það ekki hjá honum Þór?

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 9.4.2009 kl. 01:34

11 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

já og Guðsteinn, merkið er púra snilld!

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 9.4.2009 kl. 01:35

12 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Þetta er eins og lélegt aprílgabb... en auðvitað að þeirra mati obbosslega flott að láta Geir taka skellinn... skiptir ekki máli hann er hætturÞað trúir þessu auðvitað ekki nokkur manneskja... með viti

Jónína Dúadóttir, 9.4.2009 kl. 07:09

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já merkið er algjörlega frábært.

Takk öll fyrir þátttökuna.

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.4.2009 kl. 10:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.