Leita í fréttum mbl.is

Búsáhaldabyltingunni er ekki lokið!

Ég sat og horfði á málfundaræfingar Sjálfstæðismanna þangað til að þeir gáfust upp um hálf þrjú leytið í nótt.

Þeir þæfðu og þæfðu, og það var grátlega sorglegt að fylgjast með þeim þæfa því sem þeir voru allir sammála.

Meira að segja Árni Johnsen var skáldlegur í þæfingunni.

Það er hægt að grípa til málþófs og hefur oft verið gert.  En fyrr má nú aldeilis fyrr vera.

Allt undir merkjum lýðræðislegrar umræðu.

Ég veit núna um hvern einasta íslenskan kvikmyndaleikstjóra, hverja kvikmyndanefnu sem gerð hefur verið á Íslandi frá upphafi vega og alls kyns fyrirkomulag í kringum kvikmyndagerð.

Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins fer fram eins og hryðjuverkamaður í þinglegum skilningi.

Svo gekk vitleysan og málþófið fram af henni sjálfri og hún hló eins og fífl í pontu.

Gaman, gaman hjá henni og félögum en við sem heima sitjum, stór hluti okkar Íslendinga erum ekki að grínast þegar við segjumst vilja sjá breytingar, og okkur finnst þetta ekkert fyndið.

Tilgangurinn með málþófinu er að koma í veg fyrir að haldið verði hér stjórnlagaþing og að gerðar verði breytingar á stjórnaskránni.  Sjálfstæðismenn mega ekki til þess hugsa að fulltrúar almennings hafi um málið að segja.

Stjórnarskrármálið og stjórnlagaþingið í beinu framhaldi er ekki umsemjanlegt að mínu áliti og almenningur vill að það nái fram að ganga. 

En gefist hinir flokkarnir upp, sem er ekki ólíklegt miðað við að íhaldið tekur hvert málið á fætur öðru í gíslingu, þá lofa ég, að ég og margir fleiri erum með búsáhöldin ný fægð og brýnd og alveg til í að mæta og láta í okkur heyra.

Mér var sagt af manni sem vel þekkir til hjá íhaldinu að þeir kunni ekki að vera í minnihluta, það gerist eitthvað.

Þetta eitthvað mátti sjá í sjónvarpinu í nótt.

Það var fróðlegt og eftirminnilegt.

Horfum og fylgjumst með.

Búsáhaldabyltingunni er ekki lokið - það ríkir einungis vopnahlé.

Bara svo það sé á hreinu gott fólk.


mbl.is Vilja vísa stjórnarskrármáli frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Margrét Gunnarsdóttir

Viljum við ekki fyrst og fremst að þessi ríkisstjórn geri það sem hún sagðist ætla að gera, koma með aðgerðaplön fyrir heimilin og fyrirtækin?

Er of mikils til mælst að stjórnarskrárbreytingar séu ekki gerðar á handahlaupum? Kíktu endilega á þau fjölmörg sérfræðiálit sem hafa verið birt núna inn á xd.is um frumvarpið. Eitt mjög gott frá SA sem dæmi: „Eitt brýnasta verkefni okkar er að endurvekja traust umheimsins. Hringlandaháttur í lagasetningu er ekki skref í þá átt.“ Nánast allir þeir sem hafa lagt fram umsagnir sínar eiga það sameiginlegt að vera gagnrýnir á meðferð málsins, færa fram efnislegar athugasemdir og þunga gagnrýni á málsmeðferð og stuttan tíma sem er ætlaður til að keyra breytingarnar í gegn. 

Greinin er hér: http://xd.is/?action=grein&id=18916

Erla Margrét Gunnarsdóttir, 2.4.2009 kl. 14:20

2 identicon

Sjálfstæðisflokkurinn í núverandi mynd er aumasta skrímslið á Íslandi í dag. Á Ítalíu væri Sjálfstæðisflokkurinn kallaður mafía vegna þess að valdaklíka flokksins samanstendur af mönnum sem tengjast saman í auðvaldi. Gamli Kolkrabbinn stjórnar nú flokknum sem aldrei fyrr. Frekja og valdahriki stjórna skrílslátum Sjálfstæðisflokksins á alþingi núna. Sjálfstæðisflokkurinn kaupir útbrunna íþróttamenn eins og Pétur Marteins og Fúsa handbolta á framboðslista sína, sem er bara hallærislegt. Sjálfstæðisflokkurinn er íhald sem tilheyrir fortíðinni. Elsta fólk þjóðarinnar mun enn um sinn kjósa Sjálfstæðisflokkinn af gömlum vana, en allt yngra og hugsandi fólk snýr sér annað í komandi kosningum.  

Stefán (IP-tala skráð) 2.4.2009 kl. 14:47

3 Smámynd: halkatla

þvílíkur horror!!!

halkatla, 2.4.2009 kl. 15:27

4 Smámynd: Finnur Bárðarson

og Árni söng. Er ekki komið að lokakaflanum? Er Birgir ekki búinn með syngja loka aríuna ? Þjóðin býður í ofvæni eftir því að óperunni ljúki.

Finnur Bárðarson, 2.4.2009 kl. 16:00

5 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Búsáhaldabyltingunni er sannarlega ekki lokið. Hún tók bara hlé á meðan móðurfélagið hélt sinn landsfund. Nú eru 17 þúsund manns atvinnulausir og fjöldi heimila og fyrirtækja riða til falls. Í stað þess að finna lausnir á þeim vanda er verið að skoða umræðuvettvang um breytingu á Stjórnarskránni. Á meðan eru vextir hækkaðir upp úr öllu valdi, til þess að gera vandamálið enn torleystara. Jenný og hin úr byltingarráðinu hóta að fara fyrir framan Alþingishúsið með pottana sína. Þá verður kallað: Vanhæf ríkisstjórn, vanhæf ríkisstjórn. Aðrir munu bera skilti sem á stendur sendum Seðlabankastjórann heim, og enn aðrir Aðgerðir fyrir atvinnulausa eða Aðgerðir fyrir heimilin. Þetta er auðvitað gott. Ég mætti niður á Austurvöll síðast, nú hittumst við niður á Austurvelli, ef ekki í dag, þá á laugardaginn.

Sigurður Þorsteinsson, 2.4.2009 kl. 16:40

6 Smámynd: Carl Jóhann Granz

Búsáhaldadeild vinstri flokkana var sett í geymslu þegar vinstri stjórnin tók við.
Ekki er hægt að segja að minni þörf sé á henni núna miðað við þörfina sem fólk sagði þá.
Meira að segja Hörður Torfa felldi niður laugardagsfundina sína sömu helgi og landsfundur Vinstri Grænna var haldinn, tilviljun ?

Ég rétt vona að þingmenn Sjálfstæðisflokksins haldi uppi almennilegu málþófi á Alþingi gegn þessu lýðskrumi sem þar fer fram í dag, tala um stjórnlagaþing og í sömu setningu vilja þau byrja að fikta í stjórnarskránni. Þvílík vitleysa þetta er orðin á Alþingi.

Það væri nær að þingmenn Íslands taki nú höndum saman og vinni á þeim málum sem brýnust eru fyrir land og þjóð (heimili og fyrirtæki) og hætti að bullast í svona vinsældarmálum.

Það jákvæða álit sem ég hafði á Jóhönnu Sigurðardóttur er algerlega horfið eftir hún fór að taka þátt í þessari vitleysu gegn eigin samvisku og gegn því sem hún hefur áður lagt til á þingi.

p.s. Ekki allir mótmælendur eru vinstra lið en öll megin uppistaða þeirra var það þó.

Carl Jóhann Granz, 2.4.2009 kl. 20:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 2985630

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband