Leita í fréttum mbl.is

Íslensk þjóð kann sig ekki

Já sæll Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings.

Auðvitað kemur okkur ekkert við um þín persónulegu veð í þinni persónulegu sumarhöll.

Djöfuls frekja og hnýsni í þeim sem vilja velta sér upp úr strangheiðarlegum, gagnsæjum og lágmarks siðspilltum fjármálaferli þínum.

Segðu þeim að halda kjafti og hugsa um sínar eigin sumarhallir, þessum nörðum sem eru að bögga þig með eilífum spurningum.

Ég meina það, má maðurinn ekki eiga sér sín persónulegu fjármálaumsvif í friði?

Má hann ekki skulda VÍS 200 milljónir króna gegn veði í hálfbyggðri sumarhöll?

Ekkert að því.

Djöfuls hnýsni.

Láttu þá heyra það Sigurður minn.

Þessi íslenska þjóð kann sig ekki.


mbl.is 200 milljóna veð í sveitasetri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét Birna Auðunsdóttir

"Samkvæmt ársreikningi félags í eigu Sigurðar, Veiðilæks ehf., sem stofnað var utan um byggingu setursins, hafði Sigurður sjálfur lánað 218 milljónir króna til framkvæmdarinnar í árslok 2007."

Helvíti flott að byggja sér hús og lána sjálfur til verksins

Margrét Birna Auðunsdóttir, 2.4.2009 kl. 09:42

2 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Jæja Jenný, þá er hveitibrauðsdögunum ríkistjórnarinnar lokið. Á meðan þið finnið eitthvað til að benda á, hvernig væri þá að taka til hendinni til þess að koma til bjargar heimilum og fyrirtækjum. Eitt hefur tekist og það er að ná hæstu raunstýrivöxtum í heiminum rúmlega 22%, en þeir voru nálagt núllinu þegar stjórnin tók við. Heimilin í landinu og fyrirtækin eru sennilega eitthvað auðvaldslið sem  nú er kominn tími til þess að láta borga. Hafið þið hugað að einhverjum öðrum aðgerðum,þjóðinni til bjargar?

Sigurður Þorsteinsson, 2.4.2009 kl. 09:46

3 identicon

Sigurður Þorsteinsson villt þú gjöra svo vel og nefna okkur nokkur dæmi um björgunaraðgerðir heimila frá hendi Sjálfstæðisfokksins ? Hinu eina sanna auðvaldi Íslands ?  Og reyndu að svara heiðarlega en ekki af þeim hroka og hræsni sem einkennir þína flokksbræður í dag.  

Stefán (IP-tala skráð) 2.4.2009 kl. 11:11

4 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Hahaha... við erum eins og síamstvíburar...ég sver´ða

Heiða B. Heiðars, 2.4.2009 kl. 13:12

5 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Sigurður Þorsteinsson: Það væri nú eðlilegra að þú talaðir um hversu háir raunvextirnir voru þegar Sjálfstæðis/Samfó hrökktust frá en ekki hvernig staðan á þeim þegar Sjálfstæðisflokkurinn tók við......  Enda skandallinn allur á þeirra vakt.... Það á eftir að þrífa upp eftir íhaldið og það á eftir að kosta þessa þjóð blóð svita og tár.. og verða mörgum enn dýrkeyptari en það

Hvílík ósvífni að óskapast yfir 22% og láta eins og þessi 3ja mánaða ríkisstjórn beri ábyrgð á því!

Og ég ætla að biðja þig vinsamlegast að sleppa því að verða við beiðni Stefáns.... ég er alveg orðin pakksödd af froðusnakki heilaþveginna Sjálfstæðismanna

Heiða B. Heiðars, 2.4.2009 kl. 13:17

6 identicon

Já ég segi það nú hvað kemur okur þetta við ??????????????????

Er maðurinn ekki í lagi??????Eru til lyf við þessu?Sennilega ekki en meðferð einhverskonar??????Á ég að hlægja eða gráta núna?

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 2.4.2009 kl. 13:36

7 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Heiða raunstýrivextir voru innan við 5% þegar núverandi stjórn tók við, en er nú 22%. Það er á ábyrgð stjórnvalda hverju sinni. Steingrímur gagnrýndi stýrivaxtastig alveg réttilega í tíð fyrri ríkisstjórnar, enda þá á ábyrgð hennar. Stýrivaxtastigið nú er á sama hátt á ábyrgð núverandi ríkisstjórnar. Það má vera óþægilegt fyrir einhverja en staðreynd engu að síður.

Sigurður Þorsteinsson, 2.4.2009 kl. 13:40

8 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Birna

Okur kemur þjóðinni afar ílla við þessar aðstæður. Það þarf ekki endilega að gefa lyf við óþægindunum, heldur taka á þeim.

Sigurður Þorsteinsson, 2.4.2009 kl. 13:42

9 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Segðu, þvílík frekja í fólki.  Nú byrjar ballið fyrir alvöru.  Það eru nefnilega til fleiri sumarhallir á Íslandinu góða.

Ía Jóhannsdóttir, 2.4.2009 kl. 13:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband