Leita í fréttum mbl.is

Varphæna kveður

Talandi um óþarfa nefndir á mánudagsmorgni þegar kona er með flensu og beinverki sem hljóta að stafa frá sendingu úr neðra.

Ég hef aldrei skilið þessa mannanafnanefnd.

Reyndar hefur hún tilgang blessuð, ákvarðanir hennar eru skemmtiefni í hvert skipti sem þær koma í fjölmiðla.

Það virðist í alvöru vera þannig að ákvarðanir nefndarinnar séu byggðar á geðþótta.

Hvað er að Skallagrími?

Eða Kveldúlfi?

Það þarf varla nefnd til að úrskurða að nöfn eins og Satan, Lofthæna, Sautjándajúnía og Almannagjáa gangi ekki upp er það?

Það er bara almenn skynsemi sem ég reikna með að prestar (flestir) hafi til að bera og þeir starfsmenn sem koma nöfnum formlega á börn.

Góð vinkona mín ætlaði að skíra dóttur sína Hrafnhettu fyrir tæpum átján árum síðan.

Fallegt nafn fannst mér, en nefndin fékk raðtaugaáfall.

Nei, nei, nei, veinaði hún og barnið fékk annað og þolanlegra nafn að mati nefndarinnar.

Annars er ég mjög þakklát fyrir að hafa ekki verið skírð Kapítóla, Ölvína eða Yndisfríð.

Ekkert persónulegt en þessi nöf koma út á mér gæsahúð.

Ég var heppin, um miðja síðustu öld þegar ég drattaðist í heiminn hétu flest allir sömu nöfnum.

Sigríður, Guðrún, Margrét, Sigrún, Halldóra, Jóna, Sigurður, Guðmundur, Magnús og svo framvegis.

Ekkert að þessum nöfnum en það voru svo margir af hverri tegund.

Foreldrar mínir voru rebellar í nafnagiftum á börnin sín, þó þau misstu sig í nokkrum sinnum í standardana.

Miðað við sjö dætur og einn strák tókst þeim vel upp.

Jenný Anna, Greta, Ingibjörg Jóna, Guðlaug Björk, Ingunn, Hilma Ösp, Steinunn og Guðmundur.

Ég heppin þarna.

Gerðist varla að ég hitti nöfnur mínar.

En hvað um það, ég get ekki verið að velta þessu fyrir mér á mánudagsmorgni.

Leggið þennan nefndarfjanda niður og treystið fólki fyrir því að velja nöfn á börnin sín.

Kveðja,

Varphæna kveður og óskar lesendum þessa fámiðils skemmtilegs mánudags. 


mbl.is Mannanafnanefnd klofnaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

fekk ekki að skira oddþór

gislihjalmars (IP-tala skráð) 23.3.2009 kl. 10:37

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ha?  Ertu að meina þetta?  Ég verð ekki eldri.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.3.2009 kl. 10:45

3 Smámynd: Maelstrom

Endemis rugl er þetta eiginlega!!!  Á þá ekki að stroka út öll nöfn sem byrja á Aðal-, því það er til styttri útgáfa af nafninu?

 Hvað með Hrafnhildur?  Hvaða fávita datt í hug að leyfa það?  Er ekki nægilegt að hafa bara Hildur?  Borghildur? Brynhildur, Gunnhildur, Matthildur, Bjarnhildur?  Ásbjörn?  Bjarnhéðinn?

Að halda því fram að það sé ekki hefð fyrir því að 'viðurnefni' séu sett framan á eiginnöfn á Íslandi er fáfræði á hæsta stigi.  Hvað er t.d. Hrafnhildur annað en Hildur sem er dökk yfirlitum?  Bjarnhéðinn er Héðinn sem er stórvaxinn. 

Á þessu síðustu og verstu tímum þarf að spara.  Leggjum nefndina niður!

Maelstrom, 23.3.2009 kl. 12:19

4 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Ég er fegin að hætt sé að skíra Varphæna, verra finnst mér ef það er eingöngu vegna þess að engn veit lengur hvað það þýðir. -  Það eru engar varphænur til lengur, þetta er allt gert í vélum, og útungunarvélum.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 23.3.2009 kl. 18:47

5 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Ætla bara að láta ykkur vita það, stúlkur, að hún Lofthæna Guðmundsdóttir heitin (d.1912) var af fjórða og áttunda við mig.

Veit ekki með Varphænu, enda mun hún aldrei hafa verið til, nema í líflegum hugarheimi sumra...

Hildur Helga Sigurðardóttir, 24.3.2009 kl. 09:21

6 identicon

Ég er algerlega ósammála því að leggja eigi mannanafnanefnd niður. Annað hvort leyfum við hvaða nöfn sem er eða við höfum einhverskonar samræmt kerfi um nafngiftir.

Það að ætlast til þess að prestar hafi allir þá "almennu skynsemi" til að ákveða hvað sé í lagi er auðvitað hlægilegt, og ekki bara vegna þess að skírn og nafngift barns eru tveir óskyldir atburðir. Ef valdið er lagt í hendur presta og þeir hafa aðeins sinn smekk til að styðjast við, þá fáum við fyrst að sjá geðþóttaákvarðanir!

Mannanafnanefnd þarf þó að rökstyðja sínar ákvarðanir og þær eru birtar og gagnrýndar, og það sama gengur yfir alla. 

Ágústa (IP-tala skráð) 24.3.2009 kl. 23:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 2985742

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.