Leita í fréttum mbl.is

Ég er ekki Jóhanna

 kyndilför

Halló, ég er ekki fyrr búin að blogga um andúð mína á persónudýrkun fyrr en ég fæ þessa aulahrollsvekjandi frétt í andlitið þegar ég kíki á Mogga í sakleysi mínu.

Hvernig væri að sýna fólki þá lágmarks virðingu að leyfa því segja nei ef það kýs svo.

Eða bara leyfa því að hugsa sig um?  Ha?

Það er einhver "ég geri þér tilboð sem þú getur ekki hafnað"-bragur á þessu.

"Ef þú verður ekki formaður Jóhanna og hættir þessari þvermóðsku þá verður blysför!"

Ég myndi kjósa Sjálfstæðisflokkinn og borða hval ef það væri verið að undirbúa blysaðför að mér.

Mér myndi líða eins og það væri verið að "stalka" mig.

En ég er ekki Jóhanna, þannig að það er best að ég þegi.

En eitt er á hreinu, ég fer ekki í neitt árans kyndilpartí.

Farin að tilbiðja eitthvað.


mbl.is Blysför til Jóhönnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Ha ha ha.

hilmar jónsson, 11.3.2009 kl. 12:54

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Þvílík djö... frekja í fólki... segja hana þvera og hún þurfi að fá að vita vilja fólksins... er verið að hóta konunni ??? Hún ræður þessu sjálf og ef hún vill ekki, þá vill hún ekki... málið dautt !

Jónína Dúadóttir, 11.3.2009 kl. 13:10

3 Smámynd: Emil Örn Kristjánsson

Þegar allt annað bregst þá getur dramatíkin hugsanlega bjargað málstaðnum.

Emil Örn Kristjánsson, 11.3.2009 kl. 13:12

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Má Jóhanna ekki þakka fyrir að þetta verður ekki bálför???

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.3.2009 kl. 13:19

5 identicon

sammála.eins mikið og ég vil hana sem formann á að virða þegar fólk segir nei

páll heiðar aadnegard (IP-tala skráð) 11.3.2009 kl. 14:12

6 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Ekki fyrsta Jóhannan sem er notuð til að sameina sundraða hjörð og ekki sú fyrsta sem verður að feisa eldinn af því hún stendur á sínu. Nú gerir hún það í bókstaflegri merkingu vegna þess að "nú er hennar tími upprunninn" og seinna þegar hennar tími er liðinn verður henni eins og öllum útbrunnum pólitíkusum varpað í öskustó svipaða og Davíð Oddson og Halldór fyrrum frelsarar landsins, dveljast í um þessar mundir og pára eftirmæli sín í öskuna.

Þeir borga nú fyrir það að hafa gert friðarsama þjóð þar sem þegnarnir hafa ekki farið með stríði á hendur hvor öðrum eða öðrum þjóðum í 600 ár, ábyrga fyrir vígum á saklausum borgurum í fjarlægum löndum.

Þrátt fyrir þetta, hrópa maurmennirnir enn, fylgjum foringjanum!

Svanur Gísli Þorkelsson, 11.3.2009 kl. 14:40

7 Smámynd: Heidi Strand

Mér finnst að þeir eiga að láta Jóhanna í friði og  bera virðingu fyrir hennar ákvarðarnir.Fólk má heldur ekki gleyma að Jóhanna er orðin 67 ára gömul.
Mér finnst frábært að hafa hana sem forsætisráðherra!

Heidi Strand, 11.3.2009 kl. 14:43

8 Smámynd: Finnur Bárðarson

Blysför, hvað næst, kerta fleyting ? Afsakið meðan ég....

Finnur Bárðarson, 11.3.2009 kl. 16:24

9 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Úff... hvað þetta er orðið vandræðalegt, Jo hanna  hey Hanna, hanna hanna hey ..

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 11.3.2009 kl. 16:29

10 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knús og ljúfar kveðjur :=)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 11.3.2009 kl. 16:33

11 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Ef ég gæti gengið lengra en 200 metra myndi ég mæta.

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 11.3.2009 kl. 16:43

12 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Heheheheh næst fleyta þau kerlingar á tjörninni!  Alveg er þetta magnað, aumingja konunni er bara stillt upp við vegg. 

Ía Jóhannsdóttir, 11.3.2009 kl. 17:13

13 Smámynd: Helga Jónsdóttir

Alveg sammála ég myndi kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef svona aðför yrði gerð að mér,mætti ég þá frekar biðja um bálför. Er alveg sammála sumum að Jóhanna væri besti kosturinn fyrir Samfylkinguna í stöðunni en almáttugur hún verður nú að fá að meta það sjálf hvort hún hafi áhuga eða treysti sér til þess að takast á við verkefnið. Ég treysti Jóhönnu algjörlega til að meta það hvort það sér rétt af henni að fara í formanninn.

Helga Jónsdóttir, 11.3.2009 kl. 17:32

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Mér finnst bara sjálfsögð virðing og kurteisi að leyfa konunni að taka um þetta ákvörðun í rólegheitum.
Svo finnst mér þetta faktískt dálítið of tilbeiðslu og foringjadýrkunarlegt if you ask me.

Svo held ég að Jóhanna Sigurðardóttir kæri sig ekki hætishót um svona fyrirkomulag.

Konan er alltof jarðbundin og eðlileg til þess.  Hehe.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.3.2009 kl. 17:34

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Svanur: Þú ert helvíti góður.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.3.2009 kl. 17:34

16 identicon

http://visir.is/article/20090311/FRETTIR01/122609953

 Hann mætti víst bara einn, karlinn. Vandræææðaleeegt :)

ekkiheldurjohanna (IP-tala skráð) 11.3.2009 kl. 21:01

17 identicon

Verður ekki stundum hlutverkið stundum stærra en manneskjan? T.d. Mandela?

Þorsteinn Úlfar Björnsson (IP-tala skráð) 11.3.2009 kl. 21:17

18 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 11.3.2009 kl. 23:12

19 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Alltaf þegar maður er við það að missa móðinn koma fréttir sem hressa mann aðeins við

Ég fékk pínulitla trú á mannkyninu á ný, þegar ég sá að enginn kvittaði upp á þessa herfilegu hugmynd um blysför.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 12.3.2009 kl. 09:40

20 Smámynd: Emil Örn Kristjánsson

Ha, ha, segjum tvö, Ragnhildur.

Emil Örn Kristjánsson, 12.3.2009 kl. 10:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband