Leita í fréttum mbl.is

Fimmhundruðfjandansmilljarðar

Af hverju gengur stjórn gamla-Kaupþings enn laus?

Fimmhundruð milljarðar voru lánaðir til stærstu eigenda samkvæmt lánabók Kaupþings.

Stór hluti lánanna var veittur til eignarhaldsfélaga sem skráð eru í Hollandi og á Tortola.

Vitið þið að ég er hætt að geta fundið orð yfir þessa breytni sukkbarónanna.

Ég er bara reið.

Og muni ég rétt þá er einn af fyrrverandi stjórnarmönnum í bullandi kosningabaráttu til áframhaldandi formanns í VR og fáir gera athugasemdir þar við.

Ég held að ég ítreki enn og aftur þá skoðun mína að þetta lið í bönkunum gerir Mafíuna að nýskeindum kórdrengjum með feimnislegt yfirbragð.

Af hverju í andskotanum er þetta lið ekki í járnum?

Fimmhundruðhelvítismilljarðar.

Halló!


mbl.is Lánuðu sjálfum sér milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Þetta er að verða eitthvað svo surealískt..

hilmar jónsson, 7.3.2009 kl. 09:05

2 identicon

Sæl Jenný Anna.

Mikið get ég tekið undir með þér.

Niðurskurður í heilbrigðisgeiranum; 5 milljarðar, 1% af þessarri einu sukktölu.

Launahækkunin til verkafólks, sem átti að koma í mars, en var slegin af; 2 milljarðar, innan við 1/2 % af sömu tölu !!!!

Ég spyr; til hvers vorum við, alþýðan, að borga námskostnað f. alla hag- og viðskiptafræðingana sem unnu í bönkunum ef þetta er útkoman....  ??

Auðvitað  erum við fokvond.

Valdemar Ásgeirsson, bóndi á Auðkúlu.  LÍF OG LAND.....

Valdemar Ásgeirsson (IP-tala skráð) 7.3.2009 kl. 09:20

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Valdemar: Ég var einmitt að reyna muna niðurskurðartöluna í heilbrigðisgeiranum.  Þar munu sjúklingarnir fá að kenna illilega á græðgisævintýrinu mikla og það um ókomna tíð.

Hilmar: Segðu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.3.2009 kl. 09:24

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

já, já, og yfirdráttaheimildir sem fóru yfir miljarðinn þeir hljóta allir að hafa verið á ofskynjunarlyfjum

Sigrún Jónsdóttir, 7.3.2009 kl. 09:28

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sigrún: Nei, ekki ofskynjunarlyfjum held ég þeir voru á sileysispillum nema að þetta sé meðfæddur galli og fötlun.

Sykkópatar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.3.2009 kl. 09:30

6 Smámynd: Hlynur Hallsson

nákvæmlega. hvar er löggan núna?

það verður að handtaka þessa menn, glæpurinn hefur verið framinn.

bestu baráttukveðjur,

Hlynur Hallsson, 7.3.2009 kl. 09:40

7 Smámynd: Brattur

Já, og af hverju í andskotanum eru peningarnir sem þeir eiga ekki teknir af þeim með valdi til að minnka skuldirnar sem þeir settu á okkar herðar?

Brattur, 7.3.2009 kl. 09:56

8 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Akkuru..akkuru..akkuru..af því að þetta spillingarlið er um allt og heldur verndarhendi yfir hvort öðru og svo ´ætlar fólk að kjósa rumpulýðinn og ræningjana yfir sig aftur. Smart!!!

Það er örugglega fínt að flytja á svona eyju sem er troðull af íslenskum peningum..best að kanna það nánar. Ekki ætla ég að vera hér og borga skuldir fíbblanna.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 7.3.2009 kl. 10:16

9 Smámynd: Anna

Þetta lítur úr fyrir að vera abstrakt í nærmynd. Maður er orðin ruglaður af spillingunni. Hvað eru handjárnin.

Er ekki hægt að reka landráðsmenn út úr landi. Og banna þeim inngöngu.

Förum í fornaldasögurnar. Gapastokkurinn var frábær. Þá mátti almenning kasta miklaða grænmenið í þá sem sátu refsingar. Sú mesta niðurlaging.

Anna , 7.3.2009 kl. 10:27

10 identicon

Já gott væri að fá svar við því

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 7.3.2009 kl. 11:56

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég er svo löngu hætt að botna upp né niður......

Hrönn Sigurðardóttir, 7.3.2009 kl. 12:12

12 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég hugsa að ég bíði bara eftir bókinni -eða jafnvel myndinni!

Hrönn Sigurðardóttir, 7.3.2009 kl. 12:13

13 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Iss, þetta er ekki nema 25% af láni IMF. Þetta var samt bara einn banki. Kannski að það komi í ljós að við hefðum ekkert þurft lán, heldur bara að gera þetta fé upptækt.

Ég legg svo til að þessir gæjar verði skotni eins og hundar.

Jón Steinar Ragnarsson, 7.3.2009 kl. 12:34

14 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Fólk er handtekið fyrir að mótmæla og beitt ofríki fyrir að heimta aðgerðir gegn glæpahundunum, en þessir helvítins föðurlandsvikarar og rænigngjar fá að ganga lausir þó þeir steli tvöföldum fjárlögum ríkissins.

Jón Steinar Ragnarsson, 7.3.2009 kl. 12:37

15 Smámynd: Bergljót Aðalsteinsdóttir

Þetta tekur víst tíma að koma þessum  mönnum bak við  lás og slá og ekki má gleyma því að þeir eiga fullt af vinum sem dreifa málinu í stjórnkerfinu þræðir þeirra sem stjórnuðu s.l. 18 ár og settu þá að kjötkötlum þjóðarinnar liggja enn til þeirra þó nú séu sett upp ny andlit fyrir kosningar

Bergljót Aðalsteinsdóttir, 7.3.2009 kl. 14:02

16 identicon

Heil og sæl; Jenný Anna, og þið önnur, hér á síðu hennar !

Kommúnistinn; Steingrímur J. Sigfússon, og kratinn Jóhanna Sigurðardóttir; hafa fyrir löngu ákveðið, að halda hlífiskildi, yfir þessum raunverulegu VÍTISENGLUM íslenzks þjóðlífs, gott fólk.

Er það kannski; í boði Ljósálfsins, Sigmundar Davíðs Gunnlaugs  sonar ? Látið ykkur ekki; koma svo mjög, á óvart.

Eru þau Steingríur ekki bara - hreinir og klárir afleggjarar, frá klíku Geirs H. Haarde, þegar upp er staðið ?

Eða; hvaða hagsmuni hafa íslenzkir stjórnmálamenn; sumir, af því að þessir banka og Lífeyrissjóða lúðar gangi enn lausir, svo enn sé spurt,, gott fólk ?

Kannski; Hlynur Hallsson, hinn Norðlenzki, hafi einhver svör, á reiðum höndum, fyrir hönd Þistilfirðingsins Steingríms ?

Með þjóðernissinna kveðjum; úr Árnesþingi, sem fyrr /

Óskar Helgi Helgason

 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 7.3.2009 kl. 15:42

17 identicon

Steingrímur; átti að standa þar - Afsakið; bölvaða fljótfærni mína, gott fólk !

ÓHH

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 7.3.2009 kl. 15:55

18 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Sammála þér Jenný, hundfúl, reið, ill, og allt það!

Ingibjörg Hinriksdóttir, 7.3.2009 kl. 16:02

19 Smámynd: Katrín Linda Óskarsdóttir

Það á auðvitað að kæra þessa aðila og ekki seinna en STRAX. Ætli við séum ekki búin að missa af tækifærinu af að ná þessum peningum af leynireikningunum ..... en því fyrr sem það er reynt, því betra. ALLT OF LANGUR TÍMI HEFUR FARIÐ TIL EINSKIS NÚ ÞEGAR!!!

Katrín Linda Óskarsdóttir, 7.3.2009 kl. 17:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2985719

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.