Leita í fréttum mbl.is

Jóhanna I love you

Mér líst ágætlega á þennan norsara.

Komi hann fagnandi og farnist honum vel fyrir okkar hönd.

Þar sem við erum með orðspor á við lélegan sprúttsala í augum heimsins hlýtur það að vera til mikilla bóta að fá nú mann sem virðist kunna til verka.

Sem tengist hvorki sukkbarónum Íslands eða Sjálfstæðisflokknum.

Bara þær tvær staðreyndir gera það að verkum að ég er til í að elda handa honum hakkabuff með lauk og prjóna handa honum grifflur, eða væri til í ef ég kynni að prjóna.

Kannski fer umheimurinn að taka okkur alvarlega og trúa því að við ætlum að hysja upp um okkur.

Ekki að ég hafi nokkurn tímann verið með buxur á hælum.

Það hafa verið aðrir í því.

Jóhanna - I love you.


mbl.is Skilur vandamál Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

þetta er bara bull af því hann er útlendingur þá er hann betri en samlandi - ansk - samanber þegar herskipin komu þá hópuðust gelgjurnar niður á höfn (fyrirgefðu orðbragðið)

Jón Snæbjörnsson, 27.2.2009 kl. 10:37

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Láttekki svona Jón..hún Jenný er engin gelgja og ég sé það í anda að hún fari að hanga fyrir utan Seðlabankann í stuttu pilsi með pilsner í þeirri von að negla norsara.

Ég er vissum að hann kemur til að gera góð verk..eða góðverk...og það er akkúrat það sem við þurfum á þessu guðsvolaða skeri einmitt núna.

Upp með prjónana Jennsla mín..slétt brugðið..slétt brugðið:) 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 27.2.2009 kl. 10:41

3 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Ég er sæl og ég er rjóð......tralalalala

Svanur Gísli Þorkelsson, 27.2.2009 kl. 10:46

4 identicon

Það þýðir líklega ekkert að segja ykkur kommúnista þverhausum að frá því að fjármálakreppan reið yfir hefur Seðlabankinn staðið sig mjög vel styrkt gengið á ísl krónunni úr 250 stigum niður í 188 stig. 

Það var skilgreint sem mikilvægasta verkefni seðlabankans á þeim tíma og þeir hafa staðið sig afskaplega vel í þeim efnum.

En það eina sem þið sjáið er "persónan Davíð" sem þið hatið :-/

Joseph (IP-tala skráð) 27.2.2009 kl. 10:47

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jósep: Farðu til Maríu og þegiðu svo.

Svanur: Múha.

Katrín: Kenndu mér að prjóna og ég skal ættleiða þig.

Jón: Þú ert jafn málefnalegur og Jósep.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.2.2009 kl. 10:58

6 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Ó jóseph Jóseph  Er þetta á Celsíus eða Fahrenheit?

Svanur Gísli Þorkelsson, 27.2.2009 kl. 11:02

7 identicon

Til þess sem kallar sig hér Joseph: Það er ekki gáfulegt hjá þér að kalla alla kommúnista sem ekki hafa skoðanir eins og þú, slíkt er bara virkilega barnalegt af þér. Varðandi stjórnun Sellabankans, þá voru bæði innlendir og erlendir hagfræðingar stöðugt að gagnrýna þær aðgerðir sem þar voru gerðar í kjölfar bankahrunsins ( raunar líka þær aðgerðir sem Seðlabankinn gerði fyrir hrunið ). Í virtum erlendum fjármála blöðum/tímaritum voru oft virkilega háðuglegar greinar um aðgerðir Seðlabankans og Davíðs. Þessi sömu blöð/tímarit kvöttu okkur til þess að losa okkur við Davíð úr Seðlabankanum og það gerðu raunar líka erlendir Seðlabankastjórar. Reynum að horfa á staðreyndir málsins í stað þess að rjúka upp í illsku og kalla fólk kommúnista og þverhausa. Við erum örþjóð og þeir einir eru þverhausar, sem ekki hlusta á umheiminn.   

Stefán (IP-tala skráð) 27.2.2009 kl. 11:05

8 identicon

1 Þetta er bara málið. Við eigum að láta færa útlendinga stýra öllu hérna. Við höfum sannað það að við erum hálf vangefin þjóð sem best er að sé stjórnað frá útlöndum! Ekki gaman að þurfa að segja þetta enn þetta er satt. Við getum núna td sagt við Dani að þetta rugl í okkur 1944 hafi verið e h fylleríisflipp og að kórónan sé enn á Alþingishúsinu og að okkur langi "heim" aftur!

óli (IP-tala skráð) 27.2.2009 kl. 11:06

9 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Hvað ætli Sjálfstæðismenn verði lengi að jafna sig á þessu?

Sigrún Jónsdóttir, 27.2.2009 kl. 11:08

10 Smámynd: Tína

Þess óska ég af heilum hug að þessum manni gangi vel í starfinu. Vonandi verður Seðlabankinn samt ekki hálflamað á meðan hann er að koma sér inn í hlutina. En hvað veit ég svo sem.

Knús á þig tjelling og eigðu nú ljúfa helgi.

Tína, 27.2.2009 kl. 11:12

11 identicon

Það er komin Norsari í seðlabankann mér líst bara vel á hann og ég vona það Jóhönnu vegna að þetta sé ekki brot á stjórnarskrá okkar. Samt virðist það vera svo.

Þórður Möller (IP-tala skráð) 27.2.2009 kl. 11:26

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm blessaðir sjallarnir eiga langt í land með að jafna sig.  Þeir eru ekki vanir þessum mótbyr, Davíð dottin af stallinum og orðin bitlaus, ekki langt að bíða að Hannes, Halldór og kó fái sömu meðferð, ef þeir eru ekki farnir.  Þeir þurfa ef til vill að fara að VINNA fyrir kaupinu sínu eins venjulegir íslendingar.  Von að þeir gráti. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.2.2009 kl. 11:54

13 Smámynd: Óskar Þorkelsson

sammála þér Jenný.  Bara það að hann sé ekki íslenskur og alls ekki í sjálfstæðisflokknum gerir hann sjálfkrafa stikkfrí af spillingarmálum og vinatengslum hérlendis. 

Gangi honum sem allra best í starfi 

Óskar Þorkelsson, 27.2.2009 kl. 11:57

14 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Jenný I love you too, varstu annars ekki örugglega að tala um mig?

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 27.2.2009 kl. 12:07

15 Smámynd: Isis

Sko... Ragnar reykás er ekkert spaug... "við viljum Davíð úr bankanum! hann er að standa sig svo illa" ...nokkrum mánuðum seinna... "nei ekki reka davíð úr bankanum hann stóð sig svo vel!"

"við viljum ríkisstjórnina burt!".... hún fer, önnur tekur við "oj nei, ég vil ekki hafa kommúnista ríkisstjórn...afhverju gat hin ekki bara verið áfram fram að kosningum?" ...

pretty please!... make up your mind!  annars elska ég jóhönnu líka... og skal alveg með glöðu falla undir kommúnusta skilgreininguna ef hún snýst um breytingar og baráttu fyrir manneskjulegra samfélagi...

farðu svo að læra prjóna Jenný! sparnaðarráð á krepputímum

Isis, 27.2.2009 kl. 12:18

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jóhanna: Auðvitað var ég að meina þig.  Amk. elska ég þig líka.

Isis: Farin á prjónanámskeið og ég fell undir kommúnistaskilgreininguna.

Takk öll fyrir innlegg.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.2.2009 kl. 12:29

17 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Bíddu nú við Jenný mín, hvað er hægt að setja út á málefnaleg rök Josephs?? Það er ekkert logið í hans athugasemd. Ég hallast að því að það sé rétt sem hann segir, þið hafið ekki málefnin eða störf Seðlabankans á hreinu svo þá er auðveldast að drulla yfir Davíð..... persónugera vandann, þú veist. Þú manst nú vonandi samt, að Jóhanna sat líka í gömlu ríkisstjórninni en lyfti ekki putta þar til að mótmæla neinu sem fram fór í Seðlabankanum á þeim tíma!!

Lilja G. Bolladóttir, 28.2.2009 kl. 12:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband