Leita í fréttum mbl.is

Svona lala og lúlú

Í gærkvöldi var minn einlægi ásetningur að horfa ekki á Júró, ætlaði að passa mig á að eyða ekki kvöldinu í aulahrolli og svo vildi ég geta sagt með nokkuð góðri samvisku að ég hefði ekki heyrt flest lögin og væri því ekki umræðutæk.

En svo endaði ég inni í lok þáttarins.  Nóg til að sjá einhvern sautjándajúníhroðbjóð með sportsokkastelpum og mér varð nær allri lokið.  Ókei, mér gæti ekki staðið meira á sama, er að reyna að byggja upp spennu hérna.

Svo komst gleðimarsinn í úrslit. 

Nú, nú, á að koma í veg fyrir að maður geti horft á Moskvuleikana (arg) og tékkað á tískunni.  Ég get ekki horft á þennan Ingó and ðe lúlús gera okkur illt í Moskvu.

Þá kom þessi fallega stúlka, kom sá og sigraði.

Róleg, ég er ekkert að missa mig af hrifningu, en stúlkan söng vel, lagið var svona lala og þetta er ekki aulahrollvekja. 

Þá datt mér í hug að þeir hefðu planað þetta svona hjá RÚV.

Láta þjóðhátíðarlagið komast í úrslit til þess eins að hræða úr manni líftóruna.

Allt sem á eftir kom hefði slegið í gegn.  Jafnvel Geir Ólafsson hefði verið ættleiddur af mér persónulega eftir smalalag Ingós.

Þetta er nú einfaldlega svoleiðis.

En ekki taka mig alvarlega.  Ég elska að hata júróvisjón. 

Mér gæti ekki staðið meira á sama hver vinnur.

En ég óska þessari efnilegu söngkonu, henni Jóhönnu Guðrúnu til hamingju með Moskvuferðina.

Labbílei.


mbl.is Lagið Is it true til Moskvu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ég var að vinna í gærkvöldi og missti alveg af herlegheitunum og er svo sem sama... Lagið er fallegt og stúlkan líka, svo þetta er bara hið besta mál ábyggilega

Jónína Dúadóttir, 15.2.2009 kl. 13:59

2 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Hehehe vissi að þú gætir nú ekki stillt þig um að kíkja í restina.  Hef eki heyrt lagið enda stendur mér svo nákvæmlega á sama eins og þér en stelpan er flott á mynd.

Ía Jóhannsdóttir, 15.2.2009 kl. 14:37

3 Smámynd: Auður Proppé

Sammála, ég elska að hata júróvisjón

Auður Proppé, 15.2.2009 kl. 15:02

4 Smámynd: halkatla

"Nú, nú, á að koma í veg fyrir að maður geti horft á Moskvuleikana (arg) og tékkað á tískunni.  Ég get ekki horft á þennan Ingó and ðe lúlús gera okkur illt í Moskvu.

Þá kom þessi fallega stúlka, kom sá og sigraði.

Róleg, ég er ekkert að missa mig af hrifningu, en stúlkan söng vel, lagið var svona lala og þetta er ekki aulahrollvekja."

þetta segir einfaldlega allt sem segja þarf um þetta mál, gott að hún vann en ekki eitthvað gleðifífl, annars er ég aldrei neitt spennt fyrir íslenskum lögum í þessari keppni, og maður þarf alltaf að treysta á aðrar þjóðir til þess að koma með the good stuff þær gera það svo bara stundum en samt horfi ég alltaf... vonandi það besta, sannkallað eurovisionnörd

halkatla, 15.2.2009 kl. 18:49

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég heyrði einhversstaðar talað um að þessar útsendingar hefðu ekki verið í beinni.  Barn sem afhenti umslag með sigurlagi var farið í sólarlandaferð með mömmu sinni þegar útsendingin var, og mikið rétt ég var einmitt það kvöld með þrjú ungmenni sem ætluðu að kjósa, en allt kom fyrir ekki, þau einfaldlega gátu ekki kosið það kvöldið.  Svo eitthvað virðist vera til í að ekki hafi allar útsendingarnar verið beint, og hverngi var þá frágengið að þau lög færu í úrslit??

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.2.2009 kl. 20:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband