Leita í fréttum mbl.is

Haldið til haga hálfa leið

Það er best að halda til haga því sem máli skiptir.

Seðlabankastjórar hafa fengið bréf um að haska sér.  Tjéééééékk.

Frumvarp um endurskipulagningu  Seðlabanka lagt fyrir í ríkisstjórn á morgun. Tjékk.

Innlagnargjöldin ljótu á sjúkrahúsin afturkölluð.  Tjékk, tjékk, tjékk.

Menntamálaráðherra ætlar að einhenda sér í málefni stúdenta, bæði heima og að heiman.  Tjékk.

Jóhanna búin að skipta um ráðuneytisstjóra, ekkert endilega tjékk, en konan veit hvað hún vill.

En nú nenni ég ekki meiru í bili.

Hélt einhver að ég væri einhver friggings bókhaldari fyrir gesti og gangandi?

Teljið sjálf, ef þið viljið endilega fá þetta klippt út í pappa fyrir ykkur.

Þetta er eins og sagan um tjakkinn.  Jabb, nákvæmlega sami hlutur.

Nú getur Davíð farið að grilla kvölds OG morgna.

En ætlar enginn að reka Hannes Hólmstein?

Ó, hann er í stjórn Seðlabankans, hann hlýtur að fjúka.

Jabb, svona getur lífið verið djöfull grillað.


mbl.is Seðlabankastjórar víki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Nú einhendir seðlabankapakkið sér í það að reikna út hvað það geti mögulega kríað út í starfslokasamningum eftir "vel" unnin störl.

Helga Magnúsdóttir, 2.2.2009 kl. 22:42

2 identicon

Takk fyrir að tjékka út dag 1 af 81. Þetta verður táknræn athöfn fyrir lof nýfrjálshyggjunar þegar Jóhanna leiðir sjálfan höfundin út. Hannes fylgir á eftir. Hann eltir DO hvert sem er. Ég er búinn að biðja um beina útsendingu frá athöfninni. Skrá í nýja Íslandssögu. Og engir starfslokasamningar. Andvirðið rennur í atvinnuleysistryggingarsjóð.

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 2.2.2009 kl. 22:48

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Einar ég held að Davíð fari ekki nema með illu.  Alveg svakalega illu.

Helga: Við fylgjumst með.

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.2.2009 kl. 22:50

4 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Lesa bloggið hjá Jenný, kinka kolli, brosa (glotta jafnvel) - tééékkkk!

Ingibjörg Hinriksdóttir, 2.2.2009 kl. 23:14

5 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Mér sýnist að þú hafir ekki undan ef þú ætlar að halda áfram að haka í reitina ... þetta gerist hratt og örugglega.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 2.2.2009 kl. 23:28

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég hef mestar áhyggjur af að Jóhanna ætlar að slá skjaldborg um heimilið mitt, svo ég kemst líklega ekki í vinnuna.

Jón Steinar Ragnarsson, 3.2.2009 kl. 00:22

7 identicon

Sagan um tjakkinn, hvernig var hún aftur?

Þórður J. (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 00:49

8 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 3.2.2009 kl. 01:42

9 Smámynd: Þráinn Jökull Elísson

Burt með Hólmstein líka!

Þráinn Jökull Elísson, 3.2.2009 kl. 06:57

10 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jónína Dúadóttir, 3.2.2009 kl. 07:16

11 Smámynd: María Guðmundsdóttir

ekki slæm tékk thetta

María Guðmundsdóttir, 3.2.2009 kl. 07:22

12 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þetta byrjar vel, ekki hægt að halda öðru fram

Sigrún Jónsdóttir, 3.2.2009 kl. 08:40

13 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Svínvirkar.........

Hrönn Sigurðardóttir, 3.2.2009 kl. 09:20

14 identicon

Já sagan um tjakkinn er góð.Með svakalega illu trúi ég.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 09:26

15 Smámynd: Laufey B Waage

Og nú á að leggja fyrir þingið lagabreytingu um seðlabankann.

Laufey B Waage, 3.2.2009 kl. 09:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.