Leita í fréttum mbl.is

Vanir menn og vönduð vinna

 ist2_3609038_theater_mask

 

Fólk hefur missjúkan húmor. 

Sumir svo sjúkan að manni nánast blöskrar. (Ég er svo sjúk að ég brosti, ók hló, þetta er svo bilað stönt).

Eða var þetta kannski ekki til gamans gert, var þetta tilraun til fjársvika?

Djöfuls spilling á Hrauninu ef rétt reynist.

Algjörar helvítis glæpajurtir þar innan dyra.

Ég hélt að alvöru glæpamenn væru allir UTAN girðingar!

Þetta verður ekki fyrirgefið.

Fangarnir Knold og Tot eru að gera eitthvað vitlaust.

Snúa sér til eigenda gömlu bankanna drengir.

Þar eru vanir menn og vönduð vinna.

Úje


mbl.is Grín sem gekk of langt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Þeir hafa áreiðanlega fengið það út úr þessu sem þeir þurftu, semsagt ókeypis auglýsingar og kynningar á fangastarfsemi á Litla Hrauni. -

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 12.12.2008 kl. 00:58

2 identicon

Djöf.... líkaði þér sem sagt ekki við myndina af mér ?

Stefán (IP-tala skráð) 12.12.2008 kl. 01:09

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Það þarf að kenna þessum mönnum almennilega til verka!

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 12.12.2008 kl. 01:16

4 Smámynd: Ragnheiður

Þetta sló mig illa enda kennitalan sem gefin var upp næstum alveg sú sama og Himma míns.

Mér fannst þetta ekki fyndið en ég skil alveg að sumum geti þótt það fyndið.

Ragnheiður , 12.12.2008 kl. 01:30

5 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

alvöru glæponar eru ekki bara utan girðingar, heldur er þeim komið fyrir í bankakerfinu og í ríkisstjórn. þar eru þeir best geymdir

Brjánn Guðjónsson, 12.12.2008 kl. 02:00

6 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Glæponarnir innan dyra eru fyndnir - ekki þeir sem eru utan girðingar!  Þeir sem húka inni eru vændir um fjársvik við minnsta tilefni meðan hinir mega fremja óteljandi fjársvik og önnur svik án þess að talandi sé um.......

Þetta er lýðræði

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 12.12.2008 kl. 02:22

7 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Er þetta nokkuð verra en fjármálaspillingin hjá þeim sem ganga lausir utan fangelsanna ? Bara ný aðferð...

Jónína Dúadóttir, 12.12.2008 kl. 06:16

8 Smámynd:

Þeir hafa greinilega horft á "Friends" en tekið þetta skrefinu lengra og bætt við styrktarbeiðni. Þessi aðferð er nú síst verri en sú sem stjórnvöld eru að nota á okkur.

, 12.12.2008 kl. 11:09

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég skemmti mér nú ágætlega yfir þessu, en ég get skilið fólk sem ekki getur tekið þessu gríni, sérstaklega varð mér hugsað til ættingja piltsins sem átti að vera "dauður", þ.e. annar þessara pörupilta.  Sérstaklega hafði ég gaman af setningunni um að þeir sem vildu minnast hans, leggðu inn á söfnunarreikning blalalala  Þetta gæti orðið til þess að fólk bæði frekar um að leggja inn á slíkan reikning, heldur en að gefa blóm og kransa.  Enda ekki slæm hugmynd, það myndi geta slagað upp í greftrarkostnaðinn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.12.2008 kl. 11:36

10 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Þetta er nú ekkert í fyrsta, annað eða þriðjaskiptið sem svona kaldranalegur húmor fer af stað. Ég man þá tíð þegar jafnaldri minn setti dánartilkynningu sína í blöðin og er talið að þar hafi hann fyrst og fremst verið að mótmæla skírnarnafni sínu s.s. tilkynna andlát þess og þeirri neikvæðu athygli sem hann fékk við nafninu. Vegna nafn þess sem hann bar og kannski ber þótti fólki þetta fyndið þeir sem ekki þekktu til, því eflaust hefur það haldið að nafnið væri ekki til! Nafnið er notað töluvert sem seinni liður í bæði kvennmanns og karlmannsnöfnum en ekki sem einnefni nú á dögum nema í þessu tilviki.

Edda Agnarsdóttir, 12.12.2008 kl. 12:01

11 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Með húmorinn í lægi

Anna Ragna Alexandersdóttir, 12.12.2008 kl. 12:05

12 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Mér fannst þetta hreint ekkert fyndið.

Bæði vegna þess að ég berst sjálf við krabbamein, þó ég sjái fram á að enda ekki ævi mína á líknardeildinni í bráð, og líka vegna þess að mér varð hugsað til móður hans Himma og þess söknuðar sem hún býr við eftir drenginn sinn og hans sorglega dauðdaga.

Greta Björg Úlfsdóttir, 12.12.2008 kl. 16:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.