Leita í fréttum mbl.is

Djö... sem við erum flott

Auðvitað fer það ekki fram hjá nokkrum manni sem hefur augu og eyru í fullri funksjón að stór hluti þjóðarinnar vill fá að endurnýja umboð stjórnmálamanna til að fara með mál fólksins.

Málið er að það virðist ekki skipta nokkru máli.  Ríkisstjórnin hefur ákveðið að "bjarga" okkur frá sjálfum okkur hvort sem okkur líkar það betur eða ver.

Í gróðærinu fór ég oft hjá mér yfir að vera Íslendingur. 

Ég fór hjá mér þegar nýinnfuttu bílabreiðurnar voru sýndar í sjónvarpinu.  Þær teygðu úr sér við Sundahöfnina svo langt sem augað eygði.

Ég fór líka hjá mér þegar það kom í fréttum að Íslendingar hentu nýjum hlutum í gáma til að kaupa nýja.  Rándýrir hlutir fóru í ruslið, dansinn í kringum gullkálfinn var í algleymingi.

Ég fór oft hjá mér þegar ég heyrði og las um sjálfhælni Íslendinga sem töluðu fyrir okkar hönd á erlendri grundu.  Þegar þeir höfðu dregið þá ályktun að við værum best í heimi, klárust og með einhverja vitneskju um fjármál sem enginn annar í heiminum hefði.

Jabb, það var stundum erfitt að vera Íslendingur á þessum tíma.  Gróðærið var í algleymingi þó það hafi sem betur fer aldrei náð tökum á undirritaðri nema þegar hún missti sig í fatabúðum en það hefur sögu um að gerast á öllum tímum.  Í upp- og niðursveiflum.  Ég biðs hér með afsökunar á því.  Ér er nú hrædd um það ójá.

Stoltið yfir að vera Íslendingur lýsti því nær algjörlega með fjarveru sinni á þessum tíma.  Reyndar hef ég aldrei verið sú sem grætur yfir þjóðsögnum, nema auðvitað þegar hann er rappaður og þá úr hlátri.

En á undanförnum vikum hefur áhugaleysi nú eða aumingjahrollur yfir þjóðerni mínu horfið smátt og smátt.

Nú er ég svo stolt af því að vera Íslendingur að ég tárast með reglulegu millibili.

Stoltið náði hámarki sínu í gærkvöldi á borgarafundinum.  Það svall í brjósti mér svo ég verði smá væmin.

Íslendingar eru seinþreyttir til vandræða.  Þeir stökkva ekki á næsta mótmælaskilti fyrir hvaða lítilræði sem er, en núna hafa þeir hrist af sér slenið, sleppa því sem þeir eru að gera og steðja á borgarafundi og mótmæli.

Það þarf kannski kreppu til að fólk sýni úr hverju það er gert.  Á góðæristímum er meiri ástæða til að lúlla af sér óréttlæti. 

Íslendingar eru amk. búnir að fá nóg og þeir sýna það með aðgerðum.  Þeir mæta.

Í dag er ég stolt af þjóðerni mínu.  Fyrst núna finnst mér að við eigum inni fyrir því.

Ég er hreinlega ástfangin af okkur almenningi.

Djö... sem við erum flott.


mbl.is Tæp 70% vilja flýta kosningum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sama segi ég, ég er stolt af því að tilheyra hjörðinni íslensku, eins og mér leið illa hér áður fyrir að vera á kafi í einhverju me me me standi, og gat ekki hreyft mig.  Takk íslenska þjóð. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.11.2008 kl. 10:53

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Jenný.......mótmælin hafa áhrif á vinnubrögðin. þau vita að allt er undir smásjá............svo trúi ég að við fáum kosningar í vor

Hólmdís Hjartardóttir, 25.11.2008 kl. 10:59

3 identicon

Ja tad var lika mjog gott hja radamonnum ad maeta, tau fa prik fyrir tad oll somul, ja nema Ingibjorg Solrun Gisladottir sem ekki gat leynt innbyggdum og yfirlaetislegum hroka sinum gagnvart folki, tegar hun sagdi yfirlaetislega ad tetta folk vaeri sko ekkert ad tala fyrir hond tjodarinnar og uppskar mikid baul fyrir !

Tad hefur enginn stjornmalamadur a Islansi fallid jafn hatt a skommum tima eins og Ingibjorg Solrun i tessu bankahruni, ja nema kanski Arni Johnsen tegar hann vard uppvis af sinum glaepum !

Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 25.11.2008 kl. 11:41

4 identicon

Hæ mamma varstu búin að sjá þetta. Bloggaðu um þetta og leyfðu öllum að sjá hvað forsetisráðherra er barnalegur og dónalegur.

http://www.youtube.com/watch?v=E3zqtGWEc8U

Sara Hrund (IP-tala skráð) 25.11.2008 kl. 11:51

5 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Sara mín (finnst pínu eins og ég þekki þig orðið eftir að vera "constant reader" hérna) hún mamma þín er sko löööööngu búin að sjá þetta!!! Það fer ekkert framhjá konunni :)

En já Jenný... ég er sammála. Var einmitt að blogga um svipað undir hetju-formerkjum

Heiða B. Heiðars, 25.11.2008 kl. 12:57

6 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ég segi það sama, ég hef aldrei verið svona stolt af að vera Íslendingur fyrr.

Þetta er alveg ný upplifun hjá mér, því hingað til hef ég ekki verið neitt sérstaklega stolt af því. Þó ég hafi kannski ekki skammast mín fyrir það, nema kannski smá stundum þegar Íslendingar á staðnum tóku pleisið yfir með hávaða og hlátrasköllum.

Núna erum við auðvitað best.

Greta Björg Úlfsdóttir, 25.11.2008 kl. 13:13

7 identicon

Takk Jenný.

Sannleikurinn streymir frá þér - og á mergjaðri íslensku!

Þráinn Bertelsson (IP-tala skráð) 25.11.2008 kl. 13:40

8 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Tek undir með Þránni

Sigrún Jónsdóttir, 25.11.2008 kl. 13:49

9 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Hjartanlega sammála ykkur, Sigrún og Þráinn. Jenný á ekki sinn líka.

Greta Björg Úlfsdóttir, 25.11.2008 kl. 14:23

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þráinn: Nú er ég upp með mér.  En það er einfaldlega þannig þessa dagana að það er ekki hægt að újeast einu sinni, hvað þá að súast. 

Takk öll fyrir innlegg.

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.11.2008 kl. 14:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2985720

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband