Leita í fréttum mbl.is

Ég vill ekki hleypa upp þessu partíi en....

 fíll

Ég vill ekki vera gleðispillir, ég vil ekki hleypa upp partíinu með því að hella úr glasinu mínu framan í næsta mann og ég vil ekki úa þegar allir klappa en kæra ISG ...þú segist myndu vera með á mótmælunum á Austurvelli værir þú ekki í ríkisstjórn.

Sko.. ef þú værir ekki í ríkisstjórn ásamt Geira þá væru engin mótmæli.

Málið er einfalt.

Þjóðin vill kjósa.

Þjóðin vill Seðlabankafílinn í postulínsbúðinni burt.

Þjóðin vill nýtt fólk, nýja sýn.

Nýir vendir sópa best.

Kommon, fólkið fyrst svo flokkurinn segir þú.

Voðalega hljómar þetta eitthvað áróðurskennt og búið til af Sven Ingvars frá Nató.

Fólkið vill kjósa - það er bara þannig.

Það þarf ekkert að draga lappirnar okkar vegna.  Bara svo það sé á hreinu.

Svo má Samfylkingin klappa fyrir þér þangað til hún verður marin á fingrunum.

Að öðru leyti finnst mér þú frábær.

Ójá.


mbl.is Áfallastjórnuninni lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Hernaðarsérfræðingurinn hans Geirs hlýtur að vinna fyrir Ingibjörgu líka og leggja línurnar í allri framkomu við okkur líðinn. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 23.11.2008 kl. 00:35

2 Smámynd: Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)

Það þarf ekki að taka mikið úr heila samfylkingarmanns til að hann verði að sjálfstæðismanni og missi skynbragð á tölum. !

Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock), 23.11.2008 kl. 00:42

3 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Mikið er ég sammála þér. Ég skil ekki þessa röksemdafærslu nöfnu minnar. Einmitt það sem þjóðin þarfnast er að einhver úr ríkisstjórninni sýni að hún/hann standi MEÐ fólkinu!  Fólkið á Austurvelli hrópar "ríkisstjórnina burt" ... það er í fínasta lagi. Það hrópar líka að klíkuliðið eigi að fara, það hrópar að stjórn Seðlabankans eigi að víkja og að það vilji spillingarliðið út úr æðstu stöðum. Er þetta ekki einmitt það sem nafna mín og langflestir ef ekki allir gildir limir Samfylkingarinnar vilja.

OK ... nafna vill ekki úr ríkisstjórn, það er bara ein af kröfunum. Hún ætti barasta að mæta á Austurvöll næsta laugardag, í ríkisstjórn eða ekki. Með því sýndi hún þó vilja til þess að fólkið kæmi framar flokkum og að hún sé tilbúin til þess að tala við fólkið!

Ingibjörg Hinriksdóttir, 23.11.2008 kl. 00:55

4 Smámynd: Steingrímur Helgason

Fráfæra má þá frábæru ...

Steingrímur Helgason, 23.11.2008 kl. 00:59

5 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

Little bluehér er góðæri

Brjánn Guðjónsson, 23.11.2008 kl. 01:12

6 Smámynd: María Guðmundsdóttir

Gódan Sunnudag Jenný

María Guðmundsdóttir, 23.11.2008 kl. 09:00

7 identicon

Ekki veit ég hvort Ingibjörg vill láta fara svona með sig, en svona er farið með börnin í landinu ef þau voga sé að kíkja á mótmælin.

http://www.anna.is/weblog/

Emma (IP-tala skráð) 23.11.2008 kl. 09:09

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hmmmmm

Hrönn Sigurðardóttir, 23.11.2008 kl. 10:06

9 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Imba veit ekkert hvort hún er að koma eða fara...hún er eins og upptrekkt áróðursdúkka sem malar áfram heilalaus.

Greta Björg Úlfsdóttir, 23.11.2008 kl. 10:52

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta atvik við lögreglustöðina gæti verið dropinn sem fyllir mælinn hjá alþýðunni, enda virðist þetta hafa verið algjörlega gerræðislegt hjá lögreglunni. Þetta er fólki sem á að gæta réttar okkar, gæta okkar, en hefur nú sýnt að þeir eru ekkert annað en varðhundar kerfisins, o svei.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.11.2008 kl. 11:26

11 Smámynd: halkatla

Innlitskvitt og knús

halkatla, 23.11.2008 kl. 11:41

12 Smámynd: Einar Þór Strand

Um hvað á að kjósa? Fyrst verður að leggja niður alla flokkana og koma í vega fyrir að þessi þingmenn sem núna sitja bjóði sig fram, það er ekkert val að þurfa að velja kúk eða skít.

Síðan verður að gefa ykkur smá smakk af stjórnleysi enda er það eitthvað sem þjóðin og fjölmiðlar virðast dýrka sbr árásina á lögreglustöðina, þar sem hópur sem heldur að mótmæli feli í sér að segja "fuck you" við lögregluna séu einhver lausn.  Ég er nefnilega hræddur um að þú myndir fara fljótlega að grenja ef menn af kaliberi nefnds Hauks kæmust til valda hér því þeir kunna ekki að meta skoðanir annarra bara frelsi sitt til að terrorisera aðra.

Og ef rétt er að Álfheiður Ingadóttir hafi tekið þátt í Hverfisgötu bullinu þá skuldar hún þjóðinni afsökun á framferði sínu og afsögn.

Einar Þór Strand, 23.11.2008 kl. 12:07

13 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ingibjörg Sólrún hefur tækifæri til að standa við orð sín og setja fólkið framar sérhagsmunum flokksins og taka áskoruninni um að mæta í Háskólabíó annað kvöld og tala beint við fólkið. Hins vegar setur að mér hroll þegar hún segir að nú verði að steja sérhagsmuni flokksins til hliðar og fólkið fyrst...Halló!!!! Er konan búin að halda allan tímann að kjósendur hafi kosið hana og hina til að stand vörð um sérhagsmuni flokkanna..en ekki standa vörð um fólkið í landinu?? Er það nema von að við séum valdalaus, eignalaus að verða og algerlega komin í duftið. Það hafa allir verið svo uppteknir við að standa vörð um sig og sitt....gott að þau loksins viðurkenna það opinberlega sem við öll vissum.

Og guði sé lof fyrir alþingiskonur eins og Álfheiði Ingadóttur sem er búin að fá nóg eins og almenningur og þoriir að stilla sér upp með okkur gegn spillingaröflunum og aumingjunum á alþingi. Og bara svo það sé á hreinu þá hafði Haukur valið að fara frekar í fangelsi en að greiða sektina. Hann var settur inn í 5 daga en svo hent út vegna plássleysis..og til að ljúka afplánuninni þá verða yfirvöld að senda honum tilkynningu um lok afplánunar með 3ja vikja fyrirvara sem honum hafði ekki verið sent. Þess vegna var þessi fangelsun lögbrot og mannréttindabrot.  Og nú er ég búin að vera að horfa á Silfrið og afglapapólitíkin og spillingin verður bara meiri og meiri og ekkert er verið að gera. Til hamingju Ísland..með spillinguna sem nær inn í alla innviðina í stjórnsýslunni og svo eru venjulegir íslendingar að reyna að verja þetta. Sumir njóta þess greinilega betur að láta níðasta á sér en öðrum.

Ég á ekki orð.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 23.11.2008 kl. 13:47

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Katrín: Takk fyrir þetta.

Einar Þór: Þú ert hugarfarslega strand ef þér finnst eitthvað að því að þingmaður stilli sér upp við lögreglustöðina til að mótmæla.

Ertu á móti lýðræði maður minn?

Merkileg niðurstaða; Álfheiður á að biðjast afsökunar og segja af sér hvorki meira né minna fyrir að standa og mótmæla, en svik og prettir ríkisstjórnar skulu ekki verða afsagnarinnar virði.

Ég hef aldrei heyrt aðra eins vitleysu.  Fleiri alþingsmenn ættu að fara að fordæmi Álfheiðar og mótmæla með fólkinu.  Þeir eru hluti af almenningi.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.11.2008 kl. 14:36

15 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Katrín, eitthvað þóttust yfirvöld hafa sent kvaðninguna norður á Blönduós - en því í ósköpunum þangað, er ekki Haukur heimilisfastur í Reykjavík? Hann stundar alla vega nám við H. Í. , - ekki fjarnám, að því er mér hefur skilist.

Greta Björg Úlfsdóttir, 23.11.2008 kl. 20:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 2985735

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband