Leita í fréttum mbl.is

Guðni segir af sér

"Guðni Ágústsson hefur sagt af sér þingmennsku og var bréf þessa efnis lesið upp í upphafi þingfundar á Alþingi í dag. Engar skýringar komu fram í bréfinu en þar sagðist Guðni láta í ljósi einlæga von um að þjóðinni takist að sigrast á þeim erfiðleikum, sem nú steðja að."

Engar skýringar?

Hvað er í gangi?

Það eru allir segjandi af sér í Framsókn en þeir sem eiga að taka pokann sinn í ríkisstjórninni sitja límdir í andskotans stólunum.

Arg og ég er að drepast úr forvitni.

Af hverju er Guðni að hætta?


mbl.is Guðni segir af sér þingmennsku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þetta er skárra á DV.is

Hrönn Sigurðardóttir, 17.11.2008 kl. 15:15

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Búið að laga.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.11.2008 kl. 15:16

3 identicon

Var honum orðið flökurt ?

j.a. (IP-tala skráð) 17.11.2008 kl. 15:16

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Hmmm...hvað býr undir?? Og án skýringa??? Skrítið!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 17.11.2008 kl. 15:28

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Kannski er það bara þannig að strákarnir hérna megin við fjallið kunna að axla ábyrgð?

Hrönn Sigurðardóttir, 17.11.2008 kl. 15:31

6 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Kannski er hann að axla ábyrgð, hann var nú ráðherra í ríkisstjórn Davíðs og Halldórs sem sat í 12 ár. -

 Á meðan allar þessar afdrifaríku  ákvarðanir voru teknar sem við erum nú að súpa seyðið af.

Vonandi segja fleiri syndaselir af sér í kjölfarið.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 17.11.2008 kl. 15:37

7 Smámynd: Sævar Einarsson

Ég var einmitt að rausa um þetta hérna, þetta eru stórtíðindi !

Sævar Einarsson, 17.11.2008 kl. 15:43

8 Smámynd: Einar Indriðason

Eftir að segja af sér eru:  (amk):  Davíð Oddsson, Geir Haarde, Árni Matthísen, Heck Allur D-listinn, Fjármálaeftirlitið, Álgerður.....

Þetta væri amk góð byrjun.

Einar Indriðason, 17.11.2008 kl. 15:58

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Krakkar: Ég ímynda mér að þetta sé vegna harðrar gagnrýni á flokksforystuna á miðstjórnarfundi um helgina.

Sé það svo þá þekkir Guðni sinn vitjunartíma, sem er frábært og ekki alvanalegt í íslenskri pólitík.

Þá er að bíða eftir að hinir skúrkarnir segi af sér.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.11.2008 kl. 16:10

10 Smámynd: nicejerk

Er þetta bara ekki rökrétt hjá Guðna? Hann gekk út úr viðtali við Stormsker þegar leikurinn var ekki eftir hans höfði. Nú hefur hann fengið meiri krítík og labbar bara aftur út!

Hann stofnar kannski Útgönguflokkinn.

nicejerk, 17.11.2008 kl. 16:25

11 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ætli hann sé ekki að stofna nýjan flokk, kannski ég bjóði mig fram með honum og komi mér á þing.  við erum jú í sama kjördæmi.

Ásdís Sigurðardóttir, 17.11.2008 kl. 17:16

12 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Menn geta líka bugast.

Edda Agnarsdóttir, 17.11.2008 kl. 18:58

13 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Það mættu margir taka Guðna sér til fyrirmyndar. Veit varla á hverjum ég á að byrja svo ég læt upptalningu bara bíða.

Helga Magnúsdóttir, 17.11.2008 kl. 19:20

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Bjarni Harðar segir okkur þetta á blogginu sínu;

Til hamingju Valgerður!

Til hamingju Valgerður Sverrisdóttir með að vera orðinn formaður Framsóknarflokksins.

Ég get aftur á móti ekki óskað Framsóknarflokknum til hamingju með þessa breytingu. Vísir hafði eftir mér að ég hefði neitað að segja mig úr flokknum. Það er rétt, ég taldi ekki rétt að gera það í samtali við blaðamann Vísis og mun bíða átekta um sinn. En líkurnar á að það takist að endurreisa flokkinn þannig að Framsóknarflokkurinn verði fyrir framsóknarmenn, þær líkur eru minni en áður eftir atburði dagsins.

Líklega er það rétt hjá Guðna að eftirláta flokkinn því fólki sem hefur nú um langt skeið beitt öllum meðulum til að ná þar völdum. Leyfa þeim sem eyðilagt hafa flokksstarfið allt þetta kjörtímabil að spreyta sig. Kannski rís flokkurinn í höndum þessa fólks þegar við framsóknarmennirnir erum farnir.

Við Guðni ræddum þessa ákvörðun í gærkvöldi og ég studdi hann heilshugar í því sem hann er að gera. Ekki vegna þess að mér hugnaðist þessi lending, heldur vegna þess að ég tel að þær aðstæður sem honum voru skapaðar í flokknum hafi verið utan þess sem hægt sé að leggja á nokkurn mann.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.11.2008 kl. 19:26

15 Smámynd: Linda litla

Ég held að það séu einhverjir aðrir sem hefðu átt að sjá sóma sinn í því að segja af sér en Guðni minn.

Linda litla, 17.11.2008 kl. 19:52

16 Smámynd: María Guðmundsdóttir

Ad mínu mati ekki mikil eftirsjá ad Gudna greyinu, en thad mættu mun fleiri og stærri hákarlar fylgja i kjølfarid..

kvedja til thin Jenný

María Guðmundsdóttir, 17.11.2008 kl. 20:29

17 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég er líka forvitin en ætli við fáum nokkurn tímann að vita raunverulega ástæðu. Það mættu margir aðrir tíkusar taka sér þetta til fyrirmyndar en það er lengi hægt að láta sig dreyma.

Huld S. Ringsted, 17.11.2008 kl. 20:40

18 identicon

Svona sálfræðilega séð finnst mér menn ekki haga sér með þeim hætti sem Guðni gerði nema vera verulega sárir. Kannski átti hann sér drauma um Framsóknarflokkinn sem rættust ekki þegar á reyndi. Guðni er bara mannlegur eins og við öll. Hann hefur trúlega fengið upp í kok þarna á miðstjórnarfundinum, enda hafa flokksmenn verið sundraðir og ísmeygilegir í garð hver annars ef marka má umræðuna, tilbúnir með hnífana í bak annarra, eins og þetta væri einhver bændaflokkur þar sem hver bóndi er kóngur á sinni jörð. Jamm, gott hjá Guðna að hvíla sig eftir að hafa bergt á þeim beiska kaleik sem miðstjórnarfundurinn bauð honum.

Nína S (IP-tala skráð) 17.11.2008 kl. 21:49

19 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Hann hefur kannski bara verið búinn að fá nóg.....

Jónína Dúadóttir, 18.11.2008 kl. 07:42

20 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Honum var bara bolað frá af Evrópuliðinu með hörku. Það er ekki að hann hafi þekkt sinn vitjunartíma. Þetta er eins ólýðræðislegt eins og það gerist. Þrýstihópur hagsmunatendra aðila púar þá út úr flokknum, sem þora að setja sig út fyrir flokkslínuna. Svona er helst að finna í gamla sovét.  Ég vona að Guðni syngi nú eins og kanarífugl um viðbjóðinn í þessum flokki. Það er raunar skylda hans í stöðunni. Þið skuluð muna að hann er í stjórnarandstöðu en ekki í ríkistjórn. Það er eins og fólk kunni ekki skil á þeim mun hér, fjandinn hafi það.

Jón Steinar Ragnarsson, 18.11.2008 kl. 08:05

21 Smámynd: Dóra

Þeir fara einn af öðrum fyrir jólin.  Kærleikskús til þín  frá Esbjerg Dóra

Dóra, 18.11.2008 kl. 08:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband