Leita í fréttum mbl.is

Hannes Smárason: Þegiðu!

Ég átti þá ósk heitasta áður en ég sofnaði í höfuðið á mér í gærkvöldi að ég myndi vakna upp við það að niðurstaða hefði fengist í lánamálum, afsagnarmálum eða hreinlega kosningamálum þjóðarinnar.

Ég var að vona að kraftaverk hefði gerst "í nóttinni" og einhverri óvissu væri eitt.

Sillímí.  Láttu þig dreyma Jenný.

Ég las hins vegar að erindi Íslands hefði ekki borist inn á borð hjá IMF og hér í Mogganum segir að enn vanti upplýsingar fyrir það batterí.  Hér ætti að standa; eruði ekki að fokking kidda mig, en ég er orðin leið á að segja svoleiðis, það gagnast ekkert.

Svo las ég að ríflega helmingur þjóðarinnar treysti Geir Haarde og þá fór ég að hlæja brjálæðislega og ætlaði aldrei að geta hætt.

Þá rann upp fyrir mér að ég er annað hvort hluti af þrælslundaðri þjóð eða þá ljúgandi.  Ég veit ekki hvort er verra.  En þessi ríflega helmingur sem talað er um tengist mér ekki, ég þekki engan sem ekki er kominn með upp í kok af Geir og félögum bara svo það sé á hreinu.

Jákvæði punkturinn er Kristófer Jónsson hjá VR.  Þessi maður sem talar í fullyrðingum.  Hann og félagar hans ætla að koma formanni stjórnar VR og formanninum frá.  Þar kemst enginn efi að.  Ég kann að meta svona fólk.

Hvernig væri að prufa þetta.  Ég geri tilraun.  Einn, tveir, einn, tveir.

Geir, við almenningur ætlum að koma þér og vini þínum í Seðló frá.  Víktu!

Ríkisstjórn, boðið til kosninga á nýju ári og skiptið ykkur út fyrir neyðarstjórn þangað til. Gerið það núna!

Hver einasti ykkar útrásarvíkinga og bankamógúlæ sem settuð Ísland á haus; Hunskist til að hætta störfum og lútið í gras.  Núna!

Hannes Smárason: Þegiðu!

Björgólfur og þið hinir: Borga og mér er sama hvort þið brosið.  Gera núna!

Þetta var æfing.  Asskoti gott fyrir sálartetrið að tala í boðhætti.

Ég er farin að gráta morgungrátinn.

Tárin hrynja.

En ég kem aftur þegar ekkinn er orðinn viðráðanlegur.

Verið þið til friðs á meðan.

 


mbl.is Finnar vilja meiri upplýsingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Liberal

Já, mikið væri nú gott ef menn gætu bara ákveðið að gera hlutina án þess að spyrja kóng eða prest.  Þá einkum fólk eins og þú sem veist allt miklu betur en aðrir og getur haft vit fyrir okkur hinum.  Gott að þessi Kristófer skuli hafa ákveðið, fyrir hönd allra félagsmanna VR, að stjórnin eigi bara að fara.  Það sparar allt vesen í kringum hluti eins og kosningar til stjórnar og rannsókn.  Miklu fljótlegra líka.

Það er líka svo gott að þú skulir bara heimta hitt og þetta af "útrásarvíkingunum" svona án þess að vita hvað þeir gerðu rangt í raun og veru og hvort þeir hafi gert eitthvað ólöglegt (látum liggja á milli hluta siðferðið, enda siðleysi ekki lögbrot).  Þú bara vilt og heimtar, og þá áttu bara rétt á að fá það sem þú vilt.

Veistu Jenný, ein helsta ástæðan fyrir því að við erum í þessu klandri er þessi hugsunarháttur sem þú sýnir svo glimmrandi vel, þú bara vilt og heimtar og krefst og þá á það bara að vera svoleiðis.  Ekki spá í hvað sé rétt og hvað rangt, hvort fleiri séu þér sammála, hvort einhverjir aðrir hafi kannski aðra sýn, að kannski hafir þú bara rangt fyrir þér.  Sem sagt, ekki hugsa málið  heldur bara heimta og krefjast.  Svo þegar menn komast í aðstöðu til að framfylgja slíku (annað hvort í ríkisstjórn eða í útrásarfyrirtækin) þá bara fara menn sínu fram hvað sem tautar og raular.  Þess vegna segi ég, ef fólk eins og þú kemst til valda þá breytist nákvæmlega ekki neitt.  Við verðum enn með fólk við völd sem telur sig vita betur en alla aðra, fólk sem talar í boðhætti og skipar öðrum fyrir.  Ekkert pláss fyrir andmæli eða skynsemi.  

Kannski þú ættir að tempra aðeins þessa heimtufrekju í þér. 

Liberal, 11.11.2008 kl. 08:41

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Liberal: Fólk eins og ég hefur ekki minnsta áhuga á völdum.  Fólk eins og ég vill að þeir sem hafa hagað sér eins og mafíósar á sterum segi af sér.

Þetta hefur ekkert með heimtufrekju að gera, þetta hefur með sanngirni að gera.

Njóttu dagsins.

Og þú líka Ragna mín.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.11.2008 kl. 08:49

3 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Veistu, að ég vakna á hverjum morgni. hleyp fram í tölvuna til að kanna hvort einhver svör séu komin en það er aldrei neitt ...og þetta er orðið svo undarlegt og þreytandi..að ég á ekki orð til að lýsa því. Af hverju eru ekki upplýsingar tilbúnar, það er kominn rúmur mánuður síðan allt fór af stað, hvers vegna er ekki hægt að hafa hlutina í lagi, nema þá að verið sé að fela eitthvað og farið sé fram á að stjórnir víki, eitthvað sem Geir getur ekki skrifað upp á og meðan er þjóðin í óvissu! Ég er algjörlega hætt að skilja hvað er í gangi. Síðan trúi ég ekki að Geir njóti svona mikils stuðnings, sá einhvers staðar að könnunin er gerð um miðjan október, það er tæpur mánuður síðan og niðurstöðurnar yrðu eflaust aðrar í dag...þetta er einhver spuni hjá mogganum að senda þessa könnun út núna....ég sé bara samsæri í kringum mig !

njóttu dagsins

Sunna Dóra Möller, 11.11.2008 kl. 08:59

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Hm... mér finnst þessi nú ekkert sérlega "liberal"En allt um það... Jenný mín það kostar ekkert að láta sig dreyma

Jónína Dúadóttir, 11.11.2008 kl. 09:00

5 identicon

Liberal þú ert nátttröll

Jenný er ekkert að heimta neitt. Hún er ósköp eðlilega að fara fram á að þeir sem hafa komið okkur í bobba taki afleiðingum gjörða sinna. Viðurkenni getuleysi sitt og vanmátt og hætti.

Fyrr en það gerist getur ekki orðið neinn bati. 

Ef ekkert breytist, þá breytist ekki neitt.

Jón (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 09:13

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég ÆTLA að koma seðlabankastjórninni frá!! Ég SKAL koma seðlabankastjórum frá!!! Ég ÆTLA að fá óháða aðila í fjármálaeftirlitið!!

Ég SKAL kjósa eftir áramót!!

Sjáum þá til hvort Geir og félagar hafi svo mikið fylgi.

Hrönn Sigurðardóttir, 11.11.2008 kl. 09:17

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já! og eitt að lokum!! Hannes Smárason: ÞEGIÐU

púff þetta var gott! 

Hrönn Sigurðardóttir, 11.11.2008 kl. 09:18

8 Smámynd: Þórður Runólfsson

Við ætlum að koma ríkistjórninni frá.

Við ætlum að reisa landið við.

Að tala í fullyrðingum! Þetta er tær snilld.

Eitthvað sem þjóðin þarf að temja sér.

Þórður Runólfsson, 11.11.2008 kl. 09:33

9 Smámynd: Þröstur Unnar

Ég ætla að róa í land. Og svo ætla ég að verða ríkur.

Þröstur Unnar, 11.11.2008 kl. 10:06

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk fyrir athugasemdir.

Þórður: Eigum við ekki að taka fullyrðingarnar á allt slektið bara.

Þá fer það máske að skilja.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.11.2008 kl. 10:10

11 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Ég er froðufellandi brjáluð!

Svo er fólk að fárast yfir eggjum! Og bara af því að liberal fer svo í pirrurnar á mér þá ætla ég að standa mótmælin með honum Kristófer í dag.... ætlaði að gera annað í hádeginu en það er bara rugl að sýna ekki manninum samstöðu

Heiða B. Heiðars, 11.11.2008 kl. 10:11

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Heiða: Ég elska þig.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.11.2008 kl. 10:15

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

NN: Þú ert nafnlaus nobody og mátt vera úti og leika þar til þú kemur fram og stendur fyrir skoðunum þínum.

Farðu út að hlaupa.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.11.2008 kl. 11:06

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Okei, fer að dæmi þínu NN og fer og hleyp OG röfla.  Hehe.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.11.2008 kl. 11:12

15 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Hvernig væri að koma á grúppu þar sem væri bland kýlt, sparkað, argað og blásið í hóp? Spáum í það, við myndum stórgræða! Mætti byrja á því að hlaupa, auddað.

Nei, annars, höfum þetta FRÍTT, til tilbreytingar.

Soldið líkt karate að vísu...

Greta Björg Úlfsdóttir, 11.11.2008 kl. 12:28

16 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Hvað þetta er nú gott hjá þér.   Ég er ennnnnnnnn að bíða eftir að eitthvað gerist hjá þessari ríkisstjórn og meina það.    GARGGGGG

Það verður að draga fram kústinn og sópa vel úr öllum hornum.  

Marinó Már Marinósson, 11.11.2008 kl. 14:11

17 identicon

Sæll verið ég hefði þegið stuðninginn í baráttu við VR mafíuna

Jú ég tala í fullyrðingum vegna þess að ég tel að þeir skilji ekki annað.

Annað hitt ég tel að með því að sýna fólki að það sé hægt að koma þessum manni frá þá gefum við tónin út í samfélagið að saman getum  við knúið fram breytingar

kv

Kristófer Jónsson

áhugasamir hafi samband kristofer@internet.is 

Kristófer Jónsson (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 18:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband