Leita í fréttum mbl.is

Ég, hið seka samfélag

angry_woman 

Þeir segja að það séu mjög erfiðir tímar framundan.

Ég, meira að segja held að það séu helvíti erfiðir tímar framundan, spurningin er hvernig við ætlum að takast á við það og halda geðheilsunni.

Þessir dagar óvissu og endalausrar biðar eru eins og í draumi, draumi sem ekki er líklegt að við vöknum upp af á næstunni.

Þegar það kom í fréttum að það yrði jólatrjáaskortur fölnaði ég þar sem ég sat í minni eðalstofu og ég greip um hjartað.  Guð hjálpi okkur öllum stundi ég þar sem ég sat með augun uppglennt af skelfingu.  Var enginn endir á hamförunum?

Það voru verstu fréttir sem ég hafði heyrt lengi - sko þangað til að ég mundi eftir að Hljómsveitin hafði neytt mig (já með andlegu offorsi) til að kaupa gervitré fyrir tveimur árum síðan en hann hefur barist fyrir þessu hjartans máli sínu í áraraðir.  Á þessu heimili eru öll baráttumál vandlega valin með tilliti til þarfa alls mannkyns.  Enginn helvítis hégómi hér.

Húsband náði mér, sem sagt þar sem ég var aum og meðfærileg og nýlega komin úr meðferð hvar ég gekk óstyrkum fótum í jólatrésskógi Garðheima, vart vitandi hvort ég var komin eða farin. 

Plattréð var keypt.  Það er með margra ára ábyrgð.  Jájá.

Þegar ég mundi þetta varð ég afskaplega hamingjusamur jólafrömuður og ég nananabúbúaðist út í alla sökkerana sem enn eru að kaupa lifandi dauð jólatré frá Danmörku.

Já það eru vissulega erfiðir tímar framundan en hjá mér er jólatrésvandamálið mikla leyst og það breytir auðvitað heilmiklu.

Ég get ekkert verið að horfast í augu við þessa kreppu þannig lagað séð fyrr en jólin eru búin.

Jólin eru fyrst á dagskrá - örvæntingin ein tekur svo við í janúar enda janúar fínn bömmermánuður.

Það er svo sem búið að reyta af manni skrautfjaðrirnar í lifnaðarháttum fyrir lifandis löngu þannig að ég er ekki hrædd um að ég muni fara einhvers á mis.

Ég er reyndar enn í áfalli yfir rjúpnastatus undanfarinna ára og í fyrra bauðst mér þessi nauðsynlegi hátíðarmatur á 5000 krónur stykkið.  Já þakka kærlega fyrir en ég gat ekki þegið það vegna þess að ég átti ekki íbúð með lausum veðréttum til að nýta mér þetta frábæra tilboð.

Íslendingar (lesist rjúpnasalar) eru alls ekki gráðugir og nýta sér ekki samdrátt á fuglamarkaði til að hagnast feitt - ónei.

Annars veit ég ekki hvað ég er að röfla hérna vitandi að það eru erfiðir tímar framundan.

Ég ætti að vera að taka slátur, míga á hákarl eða hreinlega vera að stela mér kjöti á fæti fyrir mig og mína fjölskyldu.

En ég viðurkenni hér með að ég er ábyrg á útrásarsukkinu, Björgvin viðskipta og bankamála sagði það beinum orðum í Kastljósi gærkvöldsins.  Hann sagði eitthvað á þá leið að allt samfélagið væri ábyrgt.

Hann er einmanna þarna á ábyrgðartoppnum maðurinn og ég skal taka á mig skellinn, ég er nefnilega hið seka samfélag.

Með mínar 170 þúsundir í lommen á mánuði hef ég ekki linnt látum í útrásarævintýrinu.

Ég átti bara eftir að versla mér þotu þegar allt hrundi.

Dem, dem, dem, svona er að þekkja ekki sinn vitjunartíma.

Allir glaðir í bjóðinu.

Jefokkingræt.

BJÖRGVIN Í KASTLJÓSI


mbl.is Mjög erfiðir tímar framundan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Veistu að ég fékk líka sjokk þegar ég sá jólatrés fréttina, svei mér þá ef þessi bansetta kreppa ætlar ekki að taka af mér jólatréð líka....., þá er nú fokið í flest!!

Eigðu góðan dag , það er ókeypis í sund og fjölskyldu og húsdýragarðinn svo við getum öll verið saman að knúsa börnin okkar..., jamm enginn mætir á mótmæli þar sem flestir munu liggja í bleyti !

Sunna Dóra Möller, 25.10.2008 kl. 10:29

2 Smámynd: Sunna Dóra Möller

pées....vona samt að kreppan taki ekki rjúpuna líka frá mér, húsband búinn að plana tvær ferðir á fjöll....!

Sunna Dóra Möller, 25.10.2008 kl. 10:30

3 Smámynd: Þröstur Unnar

Ég hef álit á Björgvin. Hann vill skoða dæmið allt.

Og ég held að hann verði einn af þeim sem munu stíga til hliðar, hafi hann gert mistök í málinu og viðurkenna þau.

Þröstur Unnar, 25.10.2008 kl. 10:32

4 Smámynd: Víðir Benediktsson

Menn sjá ekki skóginn fyrir trjánum. Það er í samræmi við annað. Ég er svo heppin að eiga jólatré úr plasti. það hefur dugað í mörg ár og ég reikna með að það dugi eitthvað áfram.

Víðir Benediktsson, 25.10.2008 kl. 10:40

5 identicon

Ekki veit ég hvað var verið að selja Rjúpurnar í Rvk en ég sem er nú Rjúpnaskytta til margra ára seldi stk á 1000 krónur,,svo er ég sammála Rugludall það hlýtur að vera nóg af trjám á Íslandi til að metta markaðinn...kveðja

Res (IP-tala skráð) 25.10.2008 kl. 10:43

6 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Er hægt að panta rjúpur hjá þér, Res...? 

En fyrst það er bannað að selja þær geturðu bara gefið mér nokkrar og ég gef þér svo pening í staðinn. Það getur varla verið ólöglegt að skiptast á gjöfum, eða hvað?

Lára Hanna Einarsdóttir, 25.10.2008 kl. 10:57

7 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Þetta er líka mér að kenna. Sorrý

Laufey Ólafsdóttir, 25.10.2008 kl. 11:01

8 Smámynd: Brynja skordal

Var í sumarbústað á síðustu helgi og Jólamaturinn trítlaði um allt þarna(Rjúpan) dí hvað það var freistandi að plaffa nokkrar en nei nei það má ekki verð bara að senda einhvern á fjöll til að ná í þetta gúmmelaði sko Er alltaf með gerfi tré svo ekki eru áhyggjur af því fyrir jólin hafðu ljúfa helgi Jenný mín

Brynja skordal, 25.10.2008 kl. 11:03

9 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Ég var með svona gervi tré hér í mörg ár enda fékkst ekkert jóla, jóladót hér.  Fannst það alveg fatalt dæmi en reddaði málunum með því að tína hér og þar grenigreinar og setti undir plastið, fékk alla vega smá grenilykt í húsið. Hlýjar kveðjur héðan úr sveitinni. 

Ía Jóhannsdóttir, 25.10.2008 kl. 11:05

10 Smámynd: María Guðmundsdóttir

bara plast hjá mér og hefur verid i mørg ár..nenni bara ekki thessum greni stingandi i rakkatid á mér hér og thar og allstadar.. fint ad fá eina til tvær greinar samt alvøru..bara fyrir smellid sko

Kreist og krammar til thin Jenný,hafdu gódan laugardag

María Guðmundsdóttir, 25.10.2008 kl. 11:57

11 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég vil réttarhöld yfir mínum hluta samfélagsins, svo hægt sé að hreinsa okkur af þessum óhróðri

Sigrún Jónsdóttir, 25.10.2008 kl. 12:18

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Var að hlusta á viðtalið við Björgvin, þetta er með ólíkindum hvernig menn svara út í hött, fara undan í flæmingi, og skorast undan að segja satt.  Það er ólíðandi framkoma, en þetta viðtal er dæmigert viðtal við sökudólgana, sem hvergi þykjast hafa nærri komið.  Ekkert fyrirséð í ágúst um það sem koma skyldi, my ass... þá er ekkert af þessu fólki starfi sínu vaxið.  það er bara einfaldlega þannig, og því ber þeim öllum að fara frá.  Það versta er, að þau eru að gera þjóðinni greiða, og axla ábyrgð með því að hanga eins og hundar á beini í sínum stöðum.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.10.2008 kl. 12:25

13 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Jólatré segirðu..... ég á nú eftir að athuga hvernig mitt gervijólatré kom undan skjálfta! Hef ekki þorað að kíkja á það af ótta við að það sé ónýtt!

Ég verð þá líklega bara að fá að vera samferða Rugludalli og höggva niður eins og eitt grenitré á Þingvöllum - sem mætur maður sagði eitt sinn að væru eins og skegg í andliti fjallkonunnar!! Það má þá líta á það sem rakstur......

Hrönn Sigurðardóttir, 25.10.2008 kl. 12:45

14 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já.... eða þotu? Fást þær ekki ódýrt þessa dagana? ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 25.10.2008 kl. 12:58

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hrönn og Rugludallur: Á ekki að fara drífa í að pússa sig saman? Ég meina þið eruð andlegir tvíburar.

Takk öll fyrir innlegg hef ekki tíma í að svara hverju og einu, er svo mikilvæg á heimili.  LALALALALA

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.10.2008 kl. 13:48

16 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Já...sæll...er ekki Öskjuhlíðin líka ágætis búbót????

Þar eru jólatré í öllum stærðum..kanínur og rjúpur...svei mér ef ég sá ekki nokkur svín á beit þarna...já...og svo er flugvöllurinn við hliðina....

 Fyrst lendir maður þotunni....fer svo og skýtur sér í matinn...heggur sér tré...skokkar svo á ilströndina í bað...röltir sér svo í keilu....trítlar svo í Perluna og fær sér að éta...villibráð eða jólamat...ís i desert og svo þegar maður er búin að fá nóg er bara að plampa aftur út á flugvöll og koma sér heim....eftir langan og viðburarríkan dag...og svo meiga jólin koma....

Hrönn og Rugludallur...eruð þið game????

Bergljót Hreinsdóttir, 25.10.2008 kl. 15:17

17 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

PS...ef það er eitthvað brúðkaup í spilunum...þá er kirkja á Hlíðarenda...í göngufæri sko...

Bergljót Hreinsdóttir, 25.10.2008 kl. 15:19

18 Smámynd: Laufey B Waage

Jeremías. Á gjörsamlega að taka allt af manni? Þarf maður að búa sig undir jól án jólatrés og rjúpna? Ómæ.

Laufey B Waage, 25.10.2008 kl. 15:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2985720

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband