Leita í fréttum mbl.is

Það varðaði bara svona

Ég tek ofan fyrir Sigmari Guðmundssyni þegar hann í Kastljósi kvöldsin reyndi að fá Geir til að svara og gekk hart fram í því.

Það er amk. ekki við hann að sakast þó upplýsingarnar sem fengjust hafi verið langt í frá fullnægjandi.

Strákurinn stóð sig með prýði.

Það fór um mig hrollur þegar Geir sagði að ekki stæði til að skipta út stjórn Seðlabankans.

Ekki að ræða það.

Geir ætlar heldur ekki að láta kjósa á næstunni.

Ekki að þeir Sjálfstæðismenn séu hræddir við kosningar - ónei, ástandið er bara þannig.

Bankarnir stækkuðu bara sí svona og enginn er ábyrgur.

Það varðaði bara svona eins og börnin segja.

Takk Sigmar - þú gerðir þitt besta og vel það.

ARG

KASTLJÓS KVÖLDSINS


mbl.is Við munum ekki láta kúga okkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kreppumaður

Sko Jenný á krepputímum forheimskast fólk svo ef kosið yrði núna fengi Framsókn 55%.  Nema að það sé það sem þú vilt?

Kreppumaður, 22.10.2008 kl. 20:59

2 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Kosningar eru ekki það sem við þurfum á að halda Jenný. Alveg sama hvað okkur þyrstir í breytingar þá er það ekki málið núna.....Stjórnarkreppa oná allta annað yrði skelfing

Heiða B. Heiðars, 22.10.2008 kl. 21:07

3 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

http://www.vb.is/frett/1/48800/islendingar-hafa-ekki-bedid-nordmenn-um-adstod

Var að hrorfa á Kastljos ...og nú er minn seinasti neisti fyrir Geir Harde farinn...sorry HARDe?...þú ert meira að hugsa um landráðamann (Davíð) heldur en þína eigin ÞJÓÐ!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 22.10.2008 kl. 21:10

4 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Heiða, við þurfum nú UTANÞINGSSTJÓRN, skipaða sérfræðingum!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 22.10.2008 kl. 21:12

5 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Það sennilega búið að koma fram en nú eru unglarnir farnir að segja "horda" (dregið af Haarde) í staðinn fyrir að bíða.

María Kristjánsdóttir, 22.10.2008 kl. 21:13

6 Smámynd: María Kristjánsdóttir

unglingarnir átti það að vera

María Kristjánsdóttir, 22.10.2008 kl. 21:13

7 identicon

Að kjósa núna...

Ertu ekki að grínast...?

Fólk er að tala um að ríkisstjórnin sé svifasein, bætum kosningabaráttu við á scedulið hjá þeim...

Það er alveg rétt, þjóðin kaus þetta fólk til 4 ára þingsetu.

Hver gæti hugsanlega mögulega staðið sig betur en Geir ?

Ekki segja Framsókn eða VG, báðir flokkar eru "fjósafýla"...

KK (IP-tala skráð) 22.10.2008 kl. 21:22

8 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Kreppumaður, ekki samkvæmt óformlegri könnun hjá Púkanum, þar fær framsókn innan við 4% og semsagt ekki mann inn. Svo forheimskuð erum við ekki...

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 22.10.2008 kl. 21:31

9 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

ég tek algerlega undir með Önnu. utanþingsstjórn skipaða fólki sem kann til verka. ég er á þeirri skoðun að breyta þurfi reglum um kosningar, þing og ríkisstjórn.

ég skrifaði smá hugleiðingu um það.

Brjánn Guðjónsson, 22.10.2008 kl. 21:33

10 Smámynd: Hulla Dan

Arggggg

En  til þín engu að síður.

Hulla Dan, 22.10.2008 kl. 21:43

11 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Sigmar stóð sig afar vel í þessu viðtali, spurði krítískra spurninga sem eru á allra vörum og hann fylgdi þeim vel eftir. Vel meðvitaður um að nú séu uppi örlagadagar og IMF og Bretar beinlínis að fjárkúga Ísland.

Geir sagði meira í þessu viðtali en samanlagt í mörgum viðtölum síðustu vikurnar.

Friðrik Þór Guðmundsson, 22.10.2008 kl. 21:43

12 Smámynd: Kreppumaður

Heill foringja vorum Guðna, hann lifi, hann lifi, húrra, húrra, húrra...

Kreppumaður, 22.10.2008 kl. 21:47

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sagði ég einhvers staðar að ég vildi kosningar?

I don´t think so.

Ég er að éta upp eftir manninum.  Mér finnst nefnilega að hann ætti að skoða það sem möguleika strax eftir að búið er að koma þessu á koppinn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.10.2008 kl. 21:57

14 identicon

Auðvitað segir Geir ekkert í þá veru hvort Davíð og hinir seðlabankastjórarnir eru að fara eða ekki. Hver veit hvað þeir vinirnir hafa talað sig saman um í skjóli nætur? Kannski er búið að ákveða brottför þeirra án þess að við höfum hugmynd um, þannig að þeir geti farið með reisn. Hver veit? Við þjóðin fáum bara pínkulitla fréttabrauðmola til að hafa okkur góð á meðan verið er að ákveða allt fyrir okkur. Okkur er sagt að fara inn í herbergið okkar á meðan "fullorðna fólkið" er að tala saman. Auk þess legg ég til að Framsóknarflokkurinn verði lagður niður.

Nína S (IP-tala skráð) 22.10.2008 kl. 22:08

15 identicon

Auðvitað þarf að skipta um sett þarna "uppi". Ég segi nú bara eins og ónefnd elítustjarna í fréttablaðaskítkasti út í aðra elítustjörnu: "Það er ótrúlegt hvað þunna loftið þarna uppi gerir fólk vitlaust!" Súrefnisgrímur á liðið barasta.

Og Anna: "horda" er æði

Og hvað voru ráðamenn að gera svona merkilegt (í eiginhagsmunaskyni sjálfsagt) á meðan bankarnir stækkuðu eins og stjórnlaus ofæta á alla kanta? ég bara spyr ...

Æ, minn hálfmenntaði kommon-sens haus bara skilur ekkert í þessu öllu saman ..........

Martha Elena Laxdal (IP-tala skráð) 22.10.2008 kl. 22:13

16 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sigmar stóð sig mjög vel.  Svo bættist enn einn prófessorinn í hóp gagnrýnenda og talaði um kolranga stefnu seðlabankans síðustu ár í 10 fréttum RÚV.

Sigrún Jónsdóttir, 22.10.2008 kl. 22:54

17 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Jamm, eitthvað eru menn nú hressari með strákin Simma núna en þeir voru um daginn með DO!

Magnús Geir Guðmundsson, 22.10.2008 kl. 23:37

18 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Auðvitað á á að efna til kosninga. Það er alls ekki rétt að setja samasemmerki milli kosninga og stjórnarkreppu. En við erum líka með ákveðna lausn við stjórnarkreppu ef svo ólíklega vildi til að hún kæmi upp.

Sigurður Þórðarson, 22.10.2008 kl. 23:53

19 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Sigmar var frábær....hinn ekki

Hólmdís Hjartardóttir, 23.10.2008 kl. 01:25

20 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Geir Haarði er snillingur í því að svara ekki spurningum, eða að svara þeim út í hróa hött.  Okkur almenningi kemur þessi kreppa ekki við, nema að því leiti að við megum borga brúsann. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 23.10.2008 kl. 01:33

21 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Sigmar stóð sig afar vel, hann lét ekki slá sig út af laginu og spurði um það sem brennur á þjóðinni. Ég veit ekki um ykkur en ég get ekki hugsað mér að bíða í þrjú ár eftir að fá að kjósa, finnst nauðsynlegt að fá að kjósa eftir ca tvo mánuði - ef við gerum ekki neitt núna, þá erum við að samþykkja það sem er að gerast - svo einfalt er það.

Birgitta Jónsdóttir, 23.10.2008 kl. 07:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband