Leita í fréttum mbl.is

Tekin í görn og nananabúbú

 kreisí

Eftir daginn í dag ætti ég að fá húsmóðursverðlaun ársins þ.e. ef þau væru veitt.

Hvernig ætli svoleiðis verðlaunastytta væri í laginu?  Silfursleif - gullpanna - áritaður pottur - eða bara úttekt í Bónus?

Ég gjörsamlega sló sjálfri mér við í dugnaði.

Ég fór í Krónuna, reif þar ofan í körfu eftir miða.  Eyðslusemi minni er við brugðið.

Hillusvipurinn var skilinn eftir heima.

Ég þreif, ég bakaði og ég lýg því ekki ég fór í svuntu á meðan ég bjó til kökuna.

Ég hefði átt að vera minna yfirlýsingaglöð á árum áður þegar ég sór og sárt við lagði að ég myndi ekki baka köku þó líf mitt lægi við.  Ég myndi aldrei fá kikk út úr því að dúlla mér í eldhúsi.  Aldrei!

Þetta var spurning um að vera hipp og kúl í kvennahreyfingunni.

En svona étur maður stöðug ofan í sig.

En..

Rosalega er það í stíl við allt annað hér á þessu landi að maður skuli lesa um hvað stendur til að taka af lánum úr ýmsum áttum til að redda fjárhag landsins sem er í rúst eins og þið vitið eftir að gulldrengir þjóðarinnar tóku okkur í görnina og nananabúbúuðu á okkur jónana og gunnurnar.

Financial Times er að færa okkur fréttir af ástandi mála.

Í framhaldi af því þá langar mig að vita hvort það er ekki kriminellt að hafa komið þjóðinni á kaldan klaka, þ.e. heiti maður feðgar eitthvað og hafi átt banka?

Má bara gera svona og tjilla svo í útlöndum á meðan heimurinn er að garga sig hása yfir því hvað við erum ómerkileg þjóð?

Munið þið eftir manninum sem stal hangikjötslærinu í fyrra og fékk óskilorðsbundið fangelsi?

Ég meina er hægt að brenna upp svo miklum peningum að það séu ekki til refsilög yfir það?

Hvað ætli björtustu vonirnar hafi kostað okkur mörg hangikjötslæri síðan þeir rúlluðu yfir?

Svara plís, ég er eins og ómálga barn, ég veit ekki neitt.

En..

Vikuinnkaupin í Krónunni voru níuþúsundogeitthvað með afslætti.

Ég tók strimilinn Ibba mín.

Ég er neytafrömuður og fyrirmyndarborgari villingarnir ykkar.


mbl.is Óska eftir 6 milljörðum dala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

Svo er nett súrt að reddingin skuli eiga að vera lántaka...

Voru það ekki akkúrat himinháar lántökur sem fóru með útrásarpésana og bankana þeirra. Og við erum óforspurð gerð ábyrgðarmenn  og það í annað skiptið...

Mig minnti að skjalafals væri sjálfvirk ávísun á fangelsisvist.

Þorsteinn Gunnarsson, 20.10.2008 kl. 17:07

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Auðvitað eigum við að heimta að þessir menn skili peningunum okkar heim aftur. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.10.2008 kl. 17:26

3 Smámynd: María Guðmundsdóttir

hvad annad!!!!!!! menn skulu taka ábyrgd! nákvæmlega,læsa greyid hangiketskarlinn inni medan alvøru glæponar valsa um í útløndum á sinum feitu hestum..

En thú ert megaflott Jenný  en er ekki ad sjá thig fyrir mér med svuntu... thad bara gerir sig ekki fyrir mig....hverju sem thad nú veldur..

Hafdu gott kvøld og njóttu vikunnar

María Guðmundsdóttir, 20.10.2008 kl. 17:56

4 Smámynd: Ragnheiður

urg..ég verð sífellt meira pirruð....hangjikjötskallarnir og "himmarnir" fengu engan afslátt. Þessir fá 100 prósent off.

Ég þoli heldur ekki að þurfa að lesa erlenda miðla til að fá fréttir héðan...GARG

Ragnheiður , 20.10.2008 kl. 18:28

5 Smámynd: Ágúst Hjörtur

Ég veit ekki svarið Jenný en stenst ekki áskorunin að giska á kostnaðinn. Ef við þurfum að taka 700 milljarða króna að láni til að borga fyrir okkar björtustu vonir og ef við gefum okkur að hvert læri kosti 3.500 kr. - sem er svona eftir minni og ég er viss um að það var ekki á innkaupalistanum hjá þér í dag - ja þá eru þetta 200 milljón hangikjötslæri.

Það eru meira en 6.000 læri á hvert mannsbarn í landinu. Við værum miklu meira en áratug að borða það allt ef við einbeittum okkur að því og slepptum öllu öðru nema meðlæti og yrði örugglega ekki8 gott af því.

Og refsingin er þá líkleg til að verða 200.000.000 x óskilorðbundið fangelsi (sem er = 0), sem sagt = óskilorðbundið fangelsi og því enginn tími í grjótinu.

Þótt þetta sé í gríni sagt er ég því miður hræddur um að þetta reynist rétt og skilaboðin séu þessi: Ef þú ætlar að stela, steldu þá bara nógu miklu.

Ágúst Hjörtur , 20.10.2008 kl. 23:24

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Mikið djö.... varstu dugleg í dag kona

Sigrún Jónsdóttir, 20.10.2008 kl. 23:43

7 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Já en maðurinn var líka að stela sér til matar og það er saknæmt samanber sauðaþjófnað hér á árum áður. - 

En okkar gæjar voru að stela af einskærri græðgi og gróðafíkn,  og það er dyggð. - Samanber "mikill vill meira", eins og húrrahrópin sem Davíð lét hrópa til heiðurs þessum gæjum afþví lófaklappið var allt of alþýðlegt hrós, ekki nógu voldugt,  þegar hann verðlaunaði þá forðum fyrir dugnaðinn. -  og við fengum að sjá það  endursýnt í fréttum RUV í kvöld.

Svo er ég ansi hrædd um að þú fáir hvorki gull né nokkuð annað í verðlaun fyrir sparnað, - frekar að þú verðir úthrópuð fyrir að vilja leggja niður heila stétt "stórkaupmanna" með þessari nísku þinni í formi sparnaðartals.

Var ekki verið að hvetja fólk til að hamstra í nafni kreppunnar, burtséð frá því hvort þú hafir þörf fyrir vörurnar eða ekki. 

Og hagsýn húsmóðir er, og verður alltaf bara kverúlant,  sem engum lifandi manni dettur í hug að virða, hvað þá verðlauna. - Samanber hugsjón frjálshyggjunnar.

Svona hef ég allavega skilið stöðuna.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 21.10.2008 kl. 02:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 2985622

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.