Leita í fréttum mbl.is

Afsakið á meðan ég garga af þækklæti

Sumir réttlæta ósannandi í alls kyns myndum.  Það heita hvítar lygar, sem er auðvitað rangnefni, lygar eru subbulegar og meira út í brúnt.

Ég veit þetta, alkinn í neyslu lýgur þannig að það stendur útúr honum lygabunan.

Af hverju?  Ég veit það ekki, sennilega vegna þess að hann er í stöðugri vörn, reynir að flikka upp á ruglástandið og kaupa sér fresti.

Er það réttlætanlegt?  Nei, auðvitað ekki, þess vegna fer maður í að taka til í lygakompunni og loka henni síðan og henda lyklinum.

En það er ekki þess vegna sem ég skrifa þessa færslu.

Ég rakst á þetta blogg frá Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur, hvar hún réttlætir ósannindin í Lalla Logsuðu og Geir Haarde.

Ef þeir hefðu ekki logið blablabla þá hefði bankinn hrunið og sóandsó allt í tómu helvítis tjóni bara.

Ergó: Við ættum að þakka þeim fyrir þetta mönnunum að verja okkur fyrir oss sjálfum.  Vér þurfum raunveruleikann í dropatali.

Afsakið á meðan ég garga af þakklæti.

Borgarfulltrúinn hefur kannski aldrei heyrt þessa gullvægu speki:

Þegar þú hefur ekkert að segja, þá er best að þegja?

Sennilega ekki.

Er það ekki dæmigert fyrir jakkafötin að geta ekki stillt sig um að blaðra í viðtölum og ljúga eins og alki í dauðateygjunum í staðinn fyrir að láta ekki taka við sig viðtöl fyrr en staðreyndirnar liggja á borðinu?

Og er það ekki líka dæmigert fyrir fólk sem er OFANÍ kjötkötlunum að réttlæta lygaþvæluna og færa fyrir henni rök?

Sveiattann.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Það er ekki mjög snjallt að ljúga að þjóðinni þótt í "góðum" tilgangi sé. Miklu frekar segja að eitthvað sé verið að gera en ekki sé hægt að ræða það á þessu stigi málsins ... eitthvað slíkt, eða bara þegja.

Guðríður Haraldsdóttir, 30.9.2008 kl. 11:21

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nákvæmlega Gurrí því það er alltaf til önnur og vænlegri leið en að ljúga.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.9.2008 kl. 11:25

3 identicon

Hún segir :

"Ef Lárus Welding hefði sagt í Silfri Egils að bankinn ætti í vandræðum með að fjármagna næstu greiðslur af lánum, hvað hefði þá gerst?  Í stuttu máli hefðu hluthafar og viðskiptamenn bankans hlaupið af stað að bjarga sínu og bankinn hefði hrunið"

Já er það ekki eðlilegt að bjarga sínu!!???

Guð minn góður var að lesa í Fréttablaðinu að eldri hjón væru búin að tapa ÆVISPARNAÐINUM sínum út af atburði dagsins i gær!

Ef þessi hjón hefðu fengið að vita að Glitnir væri að fara á hausinn þá hefðu þau getað forðað peningunum sínum eitthvað annað!  

Kræst hvað þetta er hneykslanlegt! Já sumir eiga bara að steinþegja!

Ragnheiður Arna Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 30.9.2008 kl. 11:40

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þetta er morfís andinn

Sigrún Jónsdóttir, 30.9.2008 kl. 12:00

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Lalli logsuða ! you kill me woman 

Ásdís Sigurðardóttir, 30.9.2008 kl. 14:45

6 Smámynd: María Guðmundsdóttir

eigdu gódan dag

María Guðmundsdóttir, 30.9.2008 kl. 14:51

7 Smámynd: Birna Guðmundsdóttir

Hef einhverntíman heyrt að maður á aldrei að leggja meiri pening í hlutabréf -en maður er tilbúin til að tapa.  Hve mikinn pening í rauninni höfðu þeir sem tapa miklu -í rauninni lagt út?  Hjónin og ævisparnadurinn er audvitad sorgleg saga -en þau lögdu peninginn í hlutabréf og á þeim markadi getur maður bæði grætt og TAPAD! Geri samt ráð fyrir að áðurnefnd hjón eigi enn hlut í Glitni og hver veit nema hluturinn eigi eftir að margfalda sig á næstu árum. Bankinn er ekki farinn á hausinn ! En mikið rosalega vildi ég vera orðin fluga á veggnum og kíkja hve miklu hjón geta nurlað saman á heilli ævi 

Birna Guðmundsdóttir, 30.9.2008 kl. 14:55

8 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Já, þetta er sannarlega undarleg hegðun. Maður spyr sig líka hvar ábyrgðin á öllu þessu liggi og hvort enginn verði látinn axla sinn hluta af henni.

Steingerður Steinarsdóttir, 30.9.2008 kl. 15:01

9 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

Sammála sannleikurinn er sagna bestur alveg óþarfi að vera að hlífa okkur við erum öllu vön alskonar helv.... rugli.

Eyrún Gísladóttir, 30.9.2008 kl. 15:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 2985731

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband