Leita í fréttum mbl.is

Nútímalist á krepputímum

Ég sit hér við kertaljós og bjarmann af tölvuskjánum og blogga.  Ég elska að sitja í kyrrðinni og heyra í veðrinu úti sem mér heyrist vera að færast í aukana í þessum skrifuðu orðum.

En þegar ég sá þessa frétt um konuna á flæðiskerinu þá snarbrá mér.

Það er ekki klukkutími síðan ég sagði stundarhátt við hinn meðlim kærleiksheimilisins; Einar ég er á flæðiskeri stödd.

Hann: Nú afhverju segirðu það?

Ég: Það er kreppa maður minn og við eigum enga frystikystu.

Og hann náði ekki samhenginu á milli krísu í efnahagsmálum og frystikistuskorti.

Þannig að ég leiddi hann í allan sannleika um nauðsyn þess að eiga svoleiðis þarfaþing.

Og hér með bið ég ykkur að láta mig vita ef þið vitið um slíkt appírat til sölu.

Bara svo það sé á hreinu þá ætla ég ekki að geyma í henni slátur og svoleiðis viðbjóð.

Nei, í hana fer lambakjöt sem ég ætla að kaupa hjá austurlambi, brauð sem ég ætla að baka og fleiri ætem sem ég ætla að viða að mér í þeim tilgangi að spara peninga.

Þarna var sem sagt komin ástæðan fyrir flæðiskerstalinu og þess vegna brá mér smá þegar ég sá þessa frétt.

Ég og Mogginn göngum í takt.

En af því að nú þarf maður að herða hina ömurlegu sultaról þá verður maður enn pirraðri á flottræflishættinum og firringunni á stjórnmálamönnunum.

En ég ætla að taka þetta sparsemisátak alla leið.

Ég er nefnilega ógeðslega góð í hlutum sem ég tek mér fyrir hendur þegar þeir meika sens.

Ég ætla að taka sparsemishugtakið upp á æðra plan.

Ég ætla að gera það að friggings listrein.

Hugmyndir um sparnað í heimilisrekstri óskast.

En engan innmat  eða kattarfisk úr fiskbúðinni takk.

Það eru takmörk fyrir öllu.

Farin að lúlla.

 


mbl.is Kona á flæðiskeri stödd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Grótta getur nú seint talist sker!!   Grótta er eyja, og þangað er hægt að ganga á fjöru.  Sparnaðarráð Jónu er það að fara sjaldnar í búðina og versla bara hjá Jóa í Bónus.  Þannig græði ég fullt af peningum

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 29.8.2008 kl. 01:48

2 identicon

Jamm, elda stærri skammta en venjulega.. og frysta afganginn (jafnvel í fleirum en einum skammti) .. og muna að merkja hvert innihaldið er!!

Eins og þú sjálf kemur inn á, versla stórt - helst milliliðalaust!!

Muna eftir að skipta um allar ljósaperur - bara að kaupa orkusparandi perur (náttlega fyrir utan aðal leslampann)!!

Safna þvotti í fulla vél - ekki vera að þvo hálf fullar vélar!  Það sama gildir auðvitað með uppþvottavélar (ef þú ert það mikið "lúxusdýr" að eiga svoleiðis) ..... annars að hálffylla vaskinn með vatni ... og alls ekki vaska upp undir rennandi vatni!!

Það er alveg örugglega e-ð meira sem frændur okkar danir hafa kennt mér... en ég læt þetta nægja í bili - og veit að þú munt spara alveg heilmikið ef þú ferð eftir þessu 

Edda (IP-tala skráð) 29.8.2008 kl. 02:07

3 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Edda virðist hafa þetta á hreinu en eitt skal ég segja þér svona undir fjögur hérna yfir morgunsopanum.  Ég á forláta frystiskáp hér einhvers staðar úr í geymslu og svei mér ef ég hef opnað hann í marga mánuði, hef ekki hugmynd hvað hann hefur að geyma.  Síðast þegar ég leit inn í hann var hann að mig minnir hálf tómur og það er víst ekki alveg það besta fyrir svona græjur, ólygin sagði mér að þeir skemmast ef þeir eru ekki stútfullir af matvælum.  Og eitthvað kostar það, eins og tengdó sagði alltaf.

Farin að athuga málið.  Eigðu góðan dag.

Ía Jóhannsdóttir, 29.8.2008 kl. 07:35

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Spara já það hefur flögrað að mér líka, að það sé best að fara að herða þessa sultaról.  Allavega um eitt gat, eða jafnvel tvö.  Vona að þú verðir leidd af flæðiskerinu eins og þessi kona í gær

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.8.2008 kl. 08:00

5 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ég hef alltaf átt frystikistu og stóran frystiskáp og svo er líka frystir öðrum megin í stóra ljóta ameríska ísskápnum okkar Borðar þú ekki fisk ?

Jónína Dúadóttir, 29.8.2008 kl. 08:02

6 identicon

Fáðu þér brauðvél og eldaðu nóg af súpu

En ég veit um lambakjöt fyrir þig alva@torg.is ef þú vilt nánari uppýsingar.

alva (IP-tala skráð) 29.8.2008 kl. 08:57

7 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég er að hugsa um að fara í Kringluna núna í morgunsárið og segja kreppunni stríð á hendur ! Þannig að það verður grjónagrautur í matinn frá 15. sept........! Síðan ætla ég að bregða mér í tvær ferðir til Kína, skella mér í laxveiði í Miðfjarðará og gista á góðu hóteli við Elliðavatn....mér finnst ég eiga það eitthvað svo skilið, sérstaklega í þessum stormi !

Sunna Dóra Möller, 29.8.2008 kl. 09:07

8 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Fara sem sjaldnast í búð og éta sem minnst, engar neglur eða augnháralitanir, sauma upp úr gömlum fötum. 

Pjúff, ég er að reyna að komst í gírinn.  Kílóin verða allavega ekki að trufla mann.

Elísabet Sigurðardóttir, 29.8.2008 kl. 09:16

9 Smámynd: Linda litla

Núðlur Jenný núðlur.... þá þarftu enga frystikistu

Linda litla, 29.8.2008 kl. 09:34

10 Smámynd: Hulla Dan

Ég fékk kast þegar ég las um sparnaðarráð í einhverju dönsku konublaði. Þar sagði kona frá sínu uppáhalds sparnaðarráði.
Hún fer alltaf í sturtu með 3 skrúingarfötur og í þær safnast vatn svo hún getur sturað niður í allavega 3-6 skipti.

Farin að spara.

Hulla Dan, 29.8.2008 kl. 11:09

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Guðlaugur: Já auðvitað er það leið til sparnaðar að borða af og til, hehe, en ég er með sykursýki og fyrir mig dugar engin léttúð í matarvenjum.

Kjöt, fiskur, grænmeti og ávextir.  Allur pakkinn.

Linda: Núðlur eru ágætar tvisvar á ári, hehe, og pasta, nónónó, er ekki af þeirri kynslóð.

Edda: Takk og þið sem komið með uppástungur.

Hulla: Er líka í kasti, en svona fólk á varla tilverurétt, þarna er þetta ekki lengur spurningin um sparnað heldur geðveikislega nísku.

Alva: Takk, skoða þetta.

Takk öll.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.8.2008 kl. 11:20

12 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

ég er síðasta manneskjan til að gefa sparnaðarráð. Enda ekki rétta manneskjan heldur. En við vorum svo heppin að fá gefins frystikistu og án hennar vildi ég ekki vera. Hún sparar ferðir í búðina sem þó eru allt allt of margar fyrir.

Jóna Á. Gísladóttir, 30.8.2008 kl. 00:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 2985732

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband