Leita í fréttum mbl.is

Í hvaða leikriti...

oli kongur

..er ég stödd? 

Hér má sjá leikritið "Markaðstorg hégómans".  Persónur og leikendur:  Nafnlaus ljósmyndari, Jakob Frímann stílisti og Olavius Perlufestus.

Og hvaða leikrit er þetta á litla sviðinu í Miðborgarleikhúsinu? Mér sýnist það vera söngleikurinn "Látum sem ekkert c"!! Persóna og leikandi: Hanna Birna Séekkiogheyriekki.

Mér er alveg hætt að lítast á blikuna.

Er ekki hægt að kalla inn nýja leikendur og samræma verkið.  Ég sting upp á "Sláturhúsinu hraðar hendur".

Tjaldið.


mbl.is Furðar sig á einræðistilburðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 29.7.2008 kl. 16:48

2 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Þú gleymir athyglisleikhópnum sem setur upp leikritið; "Ég geri það sem ég vil þegar ég vil og ef einhver tjáir sig eitthvað um það vil ég að orð þeirra verði ógilld, uppreisnu æru og skaðabætur."

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 29.7.2008 kl. 16:55

3 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Virkilega góður Pistill hjá þér Jenný.  Mér finnst að jón Viðar ætti að gagnrína þetta leikrit og ekki að spara stóryrðin.

" Leikendur og handritargerð var einkennilega ósannfærandi og því útkoman eins og afleidd og hugsast getur" Væri eitthvað sem ég hygg að Jón myndi þá segja.

"frekar klént"  myndi hann bæta síðan við.  

Brynjar Jóhannsson, 29.7.2008 kl. 17:17

4 identicon

Blessaður Stuðmaðurinn hann Jakob Frímann er að verða jafnhlægilegur eða réttara sagt sorglegur og borgarstjórinn, sem minnir mest á trúð í stórum sirkus og svo eru borgarstjórnarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins eins og lítil peð í höndum einræðisherrans.

Stefán (IP-tala skráð) 29.7.2008 kl. 17:18

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Vitiði að þetta er orðið sorglegt að sjá þessar raðfréttir í blöðunum.  Núna af þessari myndatöku.  Jakob talar um borgarstjóra eins barn með kenjar sem hafi loksins fengið sínu framgengt.

Aumkunarvert ástand.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.7.2008 kl. 17:20

6 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Getur ekki verið að Ólafur sé bara svona útsmoginn og ætli að hefna ófara sinna forðum með því að leggja Sjálfstæðisflokkinn í borginni í rúst með framferði sínu? Hann er á góðri leið með það sbr. pistil Össurar. Er ekki bara upplagt að hafa hann í borgarstjórastólnum út kjörtímabilið... með Kobba Magg sem aðstoðarmann? Þeir eru góðir saman.

Hégóminn er svo aftur á móti átakanlegur. 

Lára Hanna Einarsdóttir, 29.7.2008 kl. 17:29

7 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

hahaha, svo talar Kobbi um rakstur og sól í sambandi við andlitsáferð Ólafs. ætli hann hafi aldrei heyrt um Photoshop?

Brjánn Guðjónsson, 29.7.2008 kl. 18:24

8 Smámynd: Þorsteinn Briem

Kallinn ei lengur kindarlegur,
kominn aftur nýmyndarlegur,
þegar fær gesti,
þurs er með festi,
æði í framan er ímyndarlegur.

Þorsteinn Briem, 29.7.2008 kl. 19:06

9 identicon

Guðrún B. (IP-tala skráð) 29.7.2008 kl. 19:20

10 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Sé að þú átt enn þína bloggvini. Hvað ætli hafi orðið um mína? Þeir hafa sennilega forðað sér frá appelsínuhúðinni...

Brynja Hjaltadóttir, 29.7.2008 kl. 19:27

11 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Veistu Jenný, leikendurnir hérna eru bara límdir við sviðið, fastir og í ofanálag hegndir upp á þráð! við losnum bara ekki svo glatt við þá og kannski er það bara gott, eins og sagt er he´r að ofan!?

En við hana Brynju hérna vil ég segja til hughreistingar, að maður verður líka skotin í stelpum með appelsínuhúð, vinirnir munu örugglega snúa aftur til hennar jafnskjótt og þeir hurfu!

Magnús Geir Guðmundsson, 29.7.2008 kl. 20:42

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þið sem eruð búnir að týna bloggvinunum, spilaranum og öllu því, farið í bloggstillingar tengdar útliti bloggs, síðueiningar og náið í það sem vantar.  Ákaflega auðvelt. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.7.2008 kl. 20:47

13 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég er búin að þessu öllu, Jenný - en nú finn ég ekki hvernig ég get breikkað toppmyndina og breytt og stækkað letrið aftur... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 29.7.2008 kl. 21:03

14 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já hver skyldi semja og setja upp leikritið, en það væri nú hættulegt að
dæma það það væri hægt að fara í mál við viðkomandi.
Eins og landsmenn vita þá voru hér á húsavík mærudagar, þar sáust
þeir vinirnir Jakob Frímann með fjölskyldu, með þeim var Olavíus perlufestus.
Gárungarnir höfðu gaman af og sögðu að Jakob hefði ekki þorað að skilja
borgarinnar olavíus eftir einan í borginni, hann gæti farið út fyrir sviðið,
Nú síðan fór hersingin austur fyrir, þar var dóttir Jakobs að syngja.
Bara til gamans sagt.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.7.2008 kl. 21:03

15 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 mér leidist litid ad missa af thessari uppsetningu.....enda frekar léleg leikritamanneskja yfirhøfud...en hljómar frekar lummó bara...og hjákátlegt...og hégómafullt...ogogogogogog...

María Guðmundsdóttir, 29.7.2008 kl. 21:07

16 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég er sammála þér Jenný, þetta er orðin langdregin sorglegur "farsi"

Sigrún Jónsdóttir, 29.7.2008 kl. 23:00

17 identicon

Gvuð hvað ég er ánægð þar sem ég er, en það er sárt að horfa upp á þetta og lesa um þetta.

Fyrverandi Frk. Reykjavík (IP-tala skráð) 29.7.2008 kl. 23:28

18 Smámynd: Huld S. Ringsted

Þetta er að verða hallærislegur farsi

Huld S. Ringsted, 29.7.2008 kl. 23:32

19 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Skildi ekki myndina verða stækkuð og setta á veggina heima hjá honum? segi bara oj oj oj

Ásdís Sigurðardóttir, 29.7.2008 kl. 23:42

20 Smámynd: Steingrímur Helgason

Flottur á myndinni, jafnaldrinn...

Steingrímur Helgason, 30.7.2008 kl. 00:05

21 Smámynd: Heiða B. Heiðars

þú ert fyndin Jenný Anna Baldursdóttir. Þessi pistill er náttúrulega tær snilld og ég mynd hrósa þér mikið fyrir hann........EF...........................................

ÞÚ HEFÐIR EKKI VERIÐ SVONA MIKIL SKEPNA OG SETT ÞESSA HÖRMULEGU
MEÐ HENNI

Heiða B. Heiðars, 30.7.2008 kl. 00:07

22 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Brjánn skrifar: "...  ætli hann hafi aldrei heyrt um Photoshop?"

Ja, reyndar þegar eg sá myndina fyrst á visi, þá datt mér í hug: Þetta er fótósjoppað (eða allavega lagað mikið til með nútíma tækni)

Svo hafnaði ég því nú: Hvaða vitleysa.  Til hvers.

Bara nýrakaður og pússaður.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 30.7.2008 kl. 00:12

23 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

skil ekki svona lagað... hvað á að bjóða borgarbúum lengi upp á þetta í viðbót?????

Sædís Ósk Harðardóttir, 30.7.2008 kl. 00:14

24 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Heiða: Gat ekki stillt mig um að birta mynd af aðalleikaranum í búning.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.7.2008 kl. 00:39

25 Smámynd: Laufey B Waage

Frábært að hafa húmor fyrir þessum fáránleika.

Laufey B Waage, 30.7.2008 kl. 08:37

26 Smámynd: Birna Guðmundsdóttir

Hvar er húmorinn gott fólk? Viss um að Jakob Frímann var bara að spauga

Dáist að borgarstjóranum að halda sönsum í öllu skítkastinu sem hann fær - er hann ekki bara að gera hluti sem ykkur hin dreymir um- allavega er stóllinn hans vinsæll og margir sem vilja verma hann Látum skítabomburnar liggja í viku og gefum þeim sem stjórna vinnufrið

Góða verslunarmannahelgi !  

Birna Guðmundsdóttir, 30.7.2008 kl. 09:13

27 identicon

Birna, ég dáist miklu frekar að okkur Reykvíkingum að halda sönsum yfir öllu skítkastinu sem frá Borgarstjóra kemur þessa dagana.

Stefán (IP-tala skráð) 30.7.2008 kl. 10:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 2985742

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband