Leita í fréttum mbl.is

Engin dömubindakona hér

 42-17452310

Dagurinn í dag er formlega liðinn, kl. er 00.09.  Af því hann er farinn þá ætla ég að tala illa um hann.  Heyrir þú það dagur?

Ég vaknaði í morgun og nú bar svo við að ég sveif ekki fram úr rúminu, með hvítar dúfur sem fylgdu mér hvert fótmál, ég dansaði ekki morgundansinn á stofugólfinu og ég leit ekki út eins og hamingjusöm kona í vespré dömubindi.  Enda aldrei notað það stöff.

Dagurinn hefur verið ömurlegur.  Ö-M-U-R-L-E-G-U-R.  Megi hann hverfa í gleymskunnar dá.

Allir sem ég hef talað við í dag hafa átt leiðinlegan dag, er þetta að ganga?

Hvað er í andrúmsloftinu?  Af hverju eru sumir dagar handónýtir, frá byrjun til enda?

Ég fann að ég slappaði af rétt áðan og ég þurfti ekki að líta á klukkuna, það var kominn nýr dagur.

Í dag reif ég kjaft, var ókurteis amk. einu sinni, sparkaði í einn vegg (já vont) og hamraði eins og motherfucker með fingrunum á allar borðplötur sem á vegi mínum urðu.

ARG.

Ég má bara við einum svona degi í mánuði, ég er alki "for crying out loud", svo veik fyrir spennu.

Eins gott að ég er nokkuð jafnlynd oftast nær.

En varðandi þetta lið á ströndinni í Dubai, þá sagði heimildarmaður minn í þeirri borg mér að helvítis útlendingarnir 79 hafið glennt sig á ströndinni án trefla, látið sjást í ökkla og öxl, og einhverjir fóru úr peysunum.  Er það nema von að Dubaingunum sem misboðið.

Svona eru þessir útlendingar, kunna sig engan veginn.

Lalalalala lífið er ljúft.

Guði sé lof fyrir gullfiskaminnið.


mbl.is „Dónaskapur" á baðströndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Það er ekki að spyrja að þessum útlendingum, hvergi flóafriður fyrir þeim, - hugsaðu þér, - þetta rífur utanaf sér spjarirnar,  um leið og þeir sjá sólarglætu,  - eins og þeir hafi aldrei heyrt útfjólubláugeisla nefnda á nafn,  eða SPF 15, -  enda er þetta náttúrulega líka, ólæst,  allt upp til hópa. - Það er munur en við Íslendingar, ég segi nú ekki meira.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 15.7.2008 kl. 00:51

2 Smámynd: Himmalingur

Batnandi mönnum, nei afsakið konum er best að lifa! Framfarir hjá Jenný minni! Sparkar bara í vegg í stað þess að hlaupa í vegg! Kveðja: HIMMI.

Himmalingur, 15.7.2008 kl. 00:59

3 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Hilmar... Jenný hleypur sko ekkert í veggi - hún hendir sér á þá! Eins gott að hún býr ekki í tjaldi eða bara gömlu timburhúsi.

Annars er fullt tungl á föstudaginn. Gæti dagurinn verið undirbúningur undir það? Alltaf 5 dögum fyrir fullt tungl...? 

Lára Hanna Einarsdóttir, 15.7.2008 kl. 01:33

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jónína Dúadóttir, 15.7.2008 kl. 06:41

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég er nokkuð viss um að enginn nema Jenný getur sameinað í eina færslu dömubindi, þ.e. Vespre og baðstrandagesti í Dubai  hehehehehe.  En portugölsku konurnar mínar voru einmitt að ræða það í morgun í rigningunni, að heima hjá sér, færu þær aldrei út í rigningu nema í regngalla með regnhlíf.  Það kom þeim því spánskt fyrir sjónir að sjá íslendingana spóka sig í rigningunni, berhöfðaða, jafnvel bara í stuttermabolum.  Heima myndum við verða veikar ef við klæddum okkur ekki vel í rigningu, sögðu þær.  Já stundum er veðrið betra hér heima en í útlöndum, jafnvel hið íslenska rigningarveður og suddi. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.7.2008 kl. 10:22

6 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

átti bara alveg sallafínan dag, í gær

reyndar skítaveður úti, en það er í góðu lagi meðan í sinninu skín sól

Brjánn Guðjónsson, 15.7.2008 kl. 10:32

7 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Suma daga barasta tekur því ekki að fara á fætur. Dagurinn í gær var ágætur hjá mér en ég kannast sko við svona ömurðardaga.

Helga Magnúsdóttir, 15.7.2008 kl. 10:47

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk fyrir innlegg öll.  Þið komið mér alltaf til að hlægja og eruð til í að taka þátt í fíflaganginum í mér.

I love it.

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.7.2008 kl. 11:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.