Leita í fréttum mbl.is

Rigningu takk

Ég gæti aldrei búið í LA eða á öðrum stöðum þar sem sólin skín allan ársins hring.

Ekki að það verði einhver þjóðarsorg vegna þess, nebb, ég er bara að velta mér upp úr veðri hérna.

Forsenda þess að mér geti liðið vel eru árstíðirnar.  Mér finnst eins og rythminn í mér stemmi við vetur - sumar - vor - og haust.

Og núna er ég í brýnni þörf fyrir rigningu, þó ekki væri nema í einn dag.  Sólin hefur skinið í tvær vikur sleitulaust ef minnið er ekki að svíkja mig.

Og þá verð ég eirðarlaus.  Ég fer að gá til veðurs.  Ég stökkbreytist í Tóbías í Kardimommubænum.  Ég fer að fylgjast náið með veðurfréttum.  Er engin friggings lægð á leiðinni?  Og núna er ég eiginlega farin að örvænta.

Plís veðurmaður það þarf aðeins að stokka þetta upp.

Einn dagur af mígandi rigningu myndi fínstilla kerfið upp á nýtt og svo væri ég farin aftur í sólbað.

Trén og blómin eru á því að þetta sé sanngjörn krafa.  Við þurfum vökvun hérna.

Annars góð.

Later.


mbl.is Áfram bjart vestantil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Sammála, gæti ekki búið í landi þar sem væri eilíf lognmolla.  Verð að hafa þær vinknonur, árstíðarnar fjórar. Annars skal ég reyna að senda þér lítið brot af okkar úrhelli óska engum þess að fá það allt yfir sig.

Kveðja inn í góðan dag með smá sudda bara fyrir þig.  

Ía Jóhannsdóttir, 30.6.2008 kl. 08:41

2 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

Það væri mikið gott fyrir gróðurinn að fá smá rigningu þá myndu blómin brosa til okkar .

Kveðja inn í daginn. 

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 30.6.2008 kl. 09:10

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Það rignir hér á Akureyri, væri sanngjarnt að fara að skipta við ykkur, þó ekki væri í nema nokkra daga

Jónína Dúadóttir, 30.6.2008 kl. 09:27

4 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Ég er búin að panta rigningu í marga daga en það er ekkert hlustað á mann frekar en fyrri daginn .  Ég finn til með gróðrinum, er akkúrat á leiðinni út að vökva.

Eigðu góðan dag

Elísabet Sigurðardóttir, 30.6.2008 kl. 09:57

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Alveg sammála, grasið er orðið "útlenskt" á litin sumstaðar.

Sigrún Jónsdóttir, 30.6.2008 kl. 10:05

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hei... ekkert svona. Er í fríi þessa viku. Vil sól og gott veður. Svo vil ég líka getað setið á svölunum hjá þér í kaffi og sígó.

Jóna Á. Gísladóttir, 30.6.2008 kl. 10:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband