Leita í fréttum mbl.is

Hjónaband í stórkostlegri hættu

pd_arguing_080129_ms

Áhugi minn á fótbolta er lítt þekktur.  Enda ekki nema von, hann er lágmarks.

En einhvern veginn tókst mér að ná mér í eitthvað boltahugarfar gagnvart leiknum í gær, Holland - Rússland.

Það kom til að því að ég lét bloggheim hafa áhrif á mig í þessa veru og svo auðvitað Húsbandið.

Og ég var orðin talsvert stressuð yfir því að Holland myndi nú jafnvel tapa af því að ég héldi með þeim.

Og svo töpuðu þeir.

Ég: Andskotinn, þeir töpuðu fyrir helvítis Rússunum (veit ljótt að blóta).  Skyrpti líka á gólfið þarna til að vera alvöru bulla.

Húsband: Já en Rússarnir voru betri.  Betra liðið vann, þannig á það að vera.

Ég: En þú sagðir að Hollendingar ættu skilið að vinna, þú taldir mér trú um að þeir væru skemmtilegra lið og ég veit ekki hvað og hvað.

HB: Æi svona er fótboltinn bara!

Ég: Ætla ekki að hafa eftir sjálfri mér hérna.  Trúið mér, það er ekki prenthæft.

En sem betur fer gekk ég ekki svo langt að horfa á leikinn.  Ég er ekki tilbúin til að teygja mig svo langt til að ná boltahugarfarinu.

En ég er að hugsa um að súa RÚV, þetta fótboltaofbeldi er gjörsamlega komið út fyrir allt velsæmi.

Er ég eina manneskjan á þessu landi sem gæti ekki staðið meira á sama um fótbolta?

Og hvenær í andskotanum er þessi fótboltahátíð á enda?

Hjónabandið siglir hraðbyri inn í alvarlega krísu.  Allt boltanum að kenna.

Ég mun ekki láta blekkjast í annað sinn.

Holland hvað?


mbl.is Síðasti landsleikurinn hjá van der Sar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Himmalingur

Jenný mín : Ég er farinn að  hafa pínulitlar áhyggjur af þessum veggjaáhlaupum þínum! Samúðarkveðja með þér og veggjunum!HIMMI!

Himmalingur, 22.6.2008 kl. 17:17

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Tók út vegginn fyrir þig Himmi minn.

Búkolla: Ég garga aldrei.  Ég er fullkomin.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.6.2008 kl. 17:22

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Þessu lýkur um næstu helgi, darling. Tvö ár í næsta stórmót, HM í fótbolta, og ég hlakka SVVVVOOOOOOOOOOO mikið til.

Knúskveðjur úr sólinni!

Guðríður Haraldsdóttir, 22.6.2008 kl. 17:47

4 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Fyrir mér er það ámóta skemmtilegt að horfa á fótbolta og horfa á tré vaxa.....  húsbandið mitt kíkir með öðru auganu ef hann hefur ekkert annað að gera, þannig að hjónabandið mitt heldur..

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 22.6.2008 kl. 19:15

5 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ég er mjög þakklát fyrir að faðir minn og bræður höfðu minna en engan áhuga á fótbolta og öðrum íþróttum. Ég lifði því í sælu algleymi þangað til ég slysaðist til að giftast manninum mínum. Þetta er það mesta sem reynir á hjónabandið, held að framhjáhald væri skárra, það færi allavega ekki fram inni í stofu hjá mér. Vonandi!

Helga Magnúsdóttir, 22.6.2008 kl. 19:34

6 Smámynd: Þröstur Unnar

Þetta er dásamleg vertíð. Verst að gula fíflið er að trufla mann og vill toga mann út á milli leikja.

Þröstur Unnar, 22.6.2008 kl. 19:39

7 Smámynd: María Guðmundsdóttir

ussussusss, thetta er bara veisla  "komaso" konur, ef mann er ekki ad fíla íthróttina thá eru nú asskoti flottir karlmenn ad sprikla tharna og svo er farid úr ad ofan á eftir  smá icing on the cake sko...

En bara hafa gaman ad...nú ef ekki, getur mann thá ekki bara verid gladur ad kallinn er upptekinn vid imbann og thá er hægt ad gera thad sem madur vill á medan 

Sorry,ekkert ad marka mig, sé ad jafnadi 5 leiki á viku med krøkkunum minum i adalhlutverki svo thad kannski telst ekki med hvad mér finnst góda viku .

María Guðmundsdóttir, 22.6.2008 kl. 19:44

8 Smámynd: Hulla Dan

 Þú ert æði!!!

Hulla Dan, 22.6.2008 kl. 20:09

9 Smámynd: S. Lúther Gestsson

Þú getur nú sagt þínu heittelskaða húsbandi að Hollendingar voru betri aðilinn í þessum leik. Áttu nátturulega að skora allavega 2-3 mörk strax í fyrri hálfleik.

Það má standa á fætur og öskra, taka um höfuð sér og stappa niður fótum,  meira að sega má blóta meðan leikur stendur yfir. 

ENN JENNÝ MAÐUR SPÝTIR EKKI Á GÓLFIÐ. 

Svo er ágætis ráð handa þér Jenný:

Fórnaðu skyndilega höndum og æptu rangstæða!!

Haltu höndunum yfir andlitinu í 2-3 sekundur og hvíslaðu lágt: hvað var hann að spá?

Ef húsbandið grunar að þú sért að grínast með hann, bentu þá með öllum fimm puttum á skjáinn og segðu ákveðið:

Þeir loka ekki miðsvæðinu með svona afturliggjandi 3 manna vörn.

Þá réttir hann þér fjarstýringuna og spyr hvort þú viljir skipta á eitthvað annað. 

S. Lúther Gestsson, 23.6.2008 kl. 01:23

10 Smámynd: Linda litla

Nei, Jenný mín. Þú ert ekki sú eina... ég þoli ekki fótbolta, verð hreinlega bara þreytt ef að ég sé einhverja stráka hlaupa á eftir tuðru.

Linda litla, 23.6.2008 kl. 01:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 2985622

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.