Leita í fréttum mbl.is

1-0 fyrir Hildi Helgu - og húsráð í bónus

Ég veit ekkert um þetta mál á milli Hildar Helgu og Útvarps Sögu.

En ég reikna með að þar hafi fólk ekki getað talað saman.

Hildur Helga vann í undirrétti og auðvitað eru henni sendar hamingjuóskir héðan.

En...

Af því Hildur Helga er ekki með bílpróf frekar en ég, og var með einhvern helling af leigubílakostnaði sem hún fær ekki greiddan, þá sting ég að henni því húsráði sem hefur gagnast mér hvað best hin seinni ár.

Ég giftist leigubílstjóra.  No more problems.

Réttara sagt þá giftist ég þessum flotta tónlistarmanni og stakk síðan að honum hugmyndinni (þ.e. hefði gert ef hann hefði ekki fengið hana sjálfur), að það væri aldeilis gráupplagt að drýgja tekjurnar með leigubílaakstri tímabundið.

Það má svo segja að fjármál heimila í þessu landi kristallist í þeirri staðreynd að núna 8 árum seinna er hann enn á leigubílnum.

Hildur Helga hér.

Later.


mbl.is Útvarpi Sögu gert að greiða eftirstöðvar launa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Hún fær það hjá honum frítt,
femínisti hún var þar útspýtt,
á bísanum ráfaði,
en bílstjórinn gáfaði,
hann tók hana upp til sín títt.

Þorsteinn Briem, 16.6.2008 kl. 17:51

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Steini: Ég þakka kveðskapinn, þrátt fyrir að hann sé með vafasömu innihaldi.

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.6.2008 kl. 17:53

3 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Hm. Giftast leigubílstjóra. Ekki galin hugmynd. Ég giftist sjómanni og fékk ókeypis rosalega fína frystitogaraýsu í mörg ár. Það er líka ágætis búbót.

Helga Magnúsdóttir, 16.6.2008 kl. 17:56

4 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

ef þið vitið af huggulegri heimasætu, dóttur auðugs vínekrubónda....þá sendiði mér bara línu

Brjánn Guðjónsson, 16.6.2008 kl. 18:38

5 identicon

Ég giftist kafara,vélstjóra,bátsmanni,snillingi og sölumanni.Hann er með bílpróf venjulegt,meirapróf og mótorhjólapróf.Og allt þetta í einum frábærum manni.Er sjálf með einfallt bílpróf og reiðhjólaréttindi.Hlusta ekki á útvarp sögu,frekar en að lesa DV.Þar eru ritstjórar og útvarpseigandi vinir Byrgisperrans og þá ekki mínir vinir.Skemmtileg færsla

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 16.6.2008 kl. 19:04

6 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Ég fékk eðalkokk og það er sko ekkert slor skal ég segja ykkur ja nema þegar ég vil elda sjálf þá er hann með nefið ofan í öllu.  Arggg..

Ía Jóhannsdóttir, 16.6.2008 kl. 20:17

7 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ætli það sé einhver á lausu á "stöðinni"?

Sigrún Jónsdóttir, 16.6.2008 kl. 20:26

8 Smámynd: Guðrún Magnea Helgadóttir

Best er að taka leigubíl ef viðkomandi er undir áfengisáhrifum.

Guðrún Magnea Helgadóttir, 16.6.2008 kl. 20:46

9 Smámynd: Hulla Dan

 Þú ert ágæt

Hulla Dan, 16.6.2008 kl. 20:49

10 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Frábært húsráð! -  Verst að þetta skuli verið komið á bloggið ætli sé þá ekki þegar búið að setja öngul í þá lausu. - 

En segðu mér elskulega bloggvinkona ef ske kynni að það sé enginn laus á stöðinni. -  Hvað gerðu allir þessir "fyrrum" hús....?., svona ef ske kynni !

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 16.6.2008 kl. 20:50

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk fyrir innlegginn.

Guðrún Magnea: Ertu að beina þessu til mín?  Ef svo er þá er ég á leigubíl edrú og líka þegar ég var alltaf full.  Jájá.  En ef þú ert að gefa eitthvað í skyn um drykkju málsaðila hérna, þá vil ég ekki hafa svoleiðis inni á mínu bloggi.  Það kemur engum við nema viðkomandi sjálfum.  Þorrí.

Lilja Guðrún: Sko einn var sprengisérfræðingur nei þú hefur ekkert við hann að gera.  Og hinir, æi ég hef ekki tíma til að telja það upp.  Var að linka á ísbjörninn þinn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.6.2008 kl. 21:01

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Segi og skrifa þetta gildir EKKI um iðnaðarmenn, ég giftist múrara, hemm, það er alltaf tími fyrir alla aðra, en heima.... nei þá á maður frí frá múrverki.  Þekki líka til rafvirkja, vélaviðgerðamanns, málara viljið fleiri ?  Ég þurfti að fá einhvern annan til að leggja flísar heima hjá mér og leggja stétt.  En ég elska hann samt.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.6.2008 kl. 21:51

13 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Aha sprengisérfræðingur!  - Uhumm,  gæti gengið, ef hann einbeitti sér að því að sprengja borgarstjórnir, ríkisstjórnir, Seðlabankastjórnir,  fiskveiðistjórnir. - svo eitthvað sé nefnt. - 

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 17.6.2008 kl. 01:29

14 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Ásthildur þú ættir að prufa að fá þér Frí-múrara, þeir ku vera ansi séðir, við að sjá um sína.  Heyrðu þetta er nú bara ansi góð hugmynd hjá mér, ég ætti nú að spá í það líka. humm 

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 17.6.2008 kl. 01:32

15 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Heil og sæl Jenný Anna, 

Það rignir yfir mig hamingjuóskum v.þ.a. ég vann þetta prófmál gegn vinnuveitanda, sem er alræmdur fyrir að hlunnfara og hýrudraga starfsfólk.  T.D. frá fyrrv. starfsfólki Útvarps Sögu, sem hefur sérstaka ástæðu til að samfagna.  Einnig hef ég fengið heillaóskir frá formanni Blaðamannafélags Íslands, enda hér um mikilvægt mál að ræða, sem sýnir að það eru takmörk fyrir því hvernig hægt er að fara með fólk í þessum bransa.

Ástæður þess hve fáir hafa farið með sín mál alla leið gagnvart Arnþrúði Karlsdóttur má sjá í þeim ótrúlegu ærumeiðingum sem ég mátti sitja undir meðan á málaferlum stóð -og sumir sjá nú sóma sinn í að halda á lofti, eftir að málið er unnið.  (Varla væri það skárra hefði ég tapað...)

Þar eru svo miklar lygar og rangfærslur við völd að ég treysti á dómgreind þeirra sem hafa fylgst með mínum 28 ára ferli í fjölmiðlum, frekar en að standa í langvarandi leiðréttingum.

Vil þó aðeins koma að einu atriði, þessu með leigubílana -áður en það verður aðeinhvers konar falskri goðsögn:

Þar sem kaupið, sem um var samið í upphafi, var afar lágt -og ég "aumingjagóð", með talsverða biðlund, var einmitt fyrsta samningsatriði okkar A.K. að ég tæki leigubíl til vinnu á hennar kostnað.  Enda sagðist A.K. vera með sérstakan afsláttarsamning við Hreyfil-Bæjarleiði.  Alltaf fyllti ég út nótu samviskusamlega -og aldrei tók ég bíl á kostnað Ú.S. nema til og -reyndar sjaldan- frá vinnu.

Á sama tíma var ég -og er- í prívat reikningi hjá annarri leigubílastöð, BSR og nota þá þjónustu í mínum einkaútréttingum. Þetta kom skýrt fram í réttarhöldunum, staðfest af framkvæmdastjóra BSR.  Ég tók semsagt bíl í vinnuna á kostnað A.K. -og aðeins þá.   Þetta var A.K.auðv. kunnugt um, þó að hún haldi öðru fram síðar, enda hafa hún og sannleikurinn nú aldrei átt mikla samleið.

Nenni því ekki að sitja undir því að ég hafi verið "rúntandi um á leigubílum á kostnað Arnþrúðar Karlsdóttur".  Það hefur nú sennilega  frekar verið öfugt; að þessi manneskja hafi getað leyft sér ýmislegt fyrir launin sem hún var ekki að borga starfsfólki.

Svo finnst mér að þeir/þær, sem hlakka yfir þeim viðbjóði sem ég er að fá yfir mig vegna eðlilegrar og réttlátrar launadeilu, ættu að skammast sín. 

     Í þessu geta allir lent og ég er stolt af því að hafa tekið slaginn -og unnið. 

Hildur Helga Sigurðardóttir, 20.6.2008 kl. 20:21

16 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

p.s. Hvers vegna "reiknar þú með að þar hafi fólk ekki getað talað saman" ?

Er það algengasta ástæðan fyrir því að fólk fær ekki launin sín ? 

Reyndar er nokkuð algengt að greiðandi launa hlaupi í felur og tali lítið við skuldunauta sína þegar í óefni er komið.  En hvað átt þú annars við með þessu ? 

Hildur Helga Sigurðardóttir, 20.6.2008 kl. 21:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 2985630

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband