Leita í fréttum mbl.is

Nýtt af skjálfta

Búist er við sterkum eftirskjálftum.

Fólk í Hveragerði og Selfossi er beðið um að halda sig utan dyra.

Ekki nota símana að óþörfu.

Þvílíkt og annað eins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Svakalegt ! Ég skammast mín fyrir mitt innlegg fyrr í dag

Ragnheiður , 29.5.2008 kl. 16:25

2 Smámynd: Signý

Þetta þykir mér spennandi!!...

Ég er svo dýrlega mikill nörd!... ég er að hugsa um að leggjast út á tún hérna í sveitinni og reyna að finna blygjunar í næstu skjálftum!...

Signý, 29.5.2008 kl. 16:29

3 Smámynd: Hulla Dan

JE er þetta svona mikið???
Vona að allt fari vel.

Hulla Dan, 29.5.2008 kl. 16:31

4 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég er alveg skíthrædd við þetta, var að tala við vinkonu í Hveragerði og allt er í rúst hjá henni !

Sunna Dóra Möller, 29.5.2008 kl. 17:15

5 Smámynd: Kolbrún Baldursdóttir

Hvað næsta mínúta ber í skauti sér veit sannarlega engin. Eina mínútuna er allt í ljúfri löð þá næstu er Suðurland á hvolfi. Þetta er ótrúlegt en svona gerist þetta.

Hefur annars einhver frétt hvort tjón hafi orðið á Hellu og nágrenni?

Kolbrún Baldursdóttir, 29.5.2008 kl. 17:25

6 Smámynd: Ylfa Lind Gylfadóttir

Veit ekki afhverju en mig langar heim (í Hveragerði) þó svo að ég geti ekkert gert þá finnst manni maður svo gagnslaus hérna í Reykjavík!! Óþæginlegt að vita ekki neitt, annars er ég að verða búin að fá skilaboð frá svona flestum að heiman.....

Ylfa Lind Gylfadóttir, 29.5.2008 kl. 17:45

7 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Hugur okkar er með ykkur öllum á suðurlandinu. 

Ía Jóhannsdóttir, 29.5.2008 kl. 18:42

8 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Já hugur okkar er sannarlega með fólkinu sem eiga heima fyrir austan

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 29.5.2008 kl. 20:09

9 Smámynd: Huld S. Ringsted

Úff! ég öfunda svo sannarlega ekki fólkið þarna á suðurlandinu.

Huld S. Ringsted, 29.5.2008 kl. 21:59

10 Smámynd: Loopman

Hvernig stendur á því að þeir sem ég kallaði tuðara bloggheima hér um daginn eru allir nema einn (sem gerir það síðar væntanlega) að blogga um jarðskjálftann. Jenný og Stefán Friðrik (Jóna líklega síðar) blogga bæði eins og þau séu blaðamenn að skúbba frétt. Lýsingar á skjálftanum, fyrstu fréttir, ráðleggingar til okkar hinna. AF hverju ekki að stofna fréttablogg og reyna skúbba on regular basis. Nú eða ráða sig í vinnu hjá fréttablaðinu eða 24 stundum.  Vonnabí blaðamennska og já hjörðin hópast inn á kommentakerfið og jarmar í kór. Kræst maður...

Loopman, 29.5.2008 kl. 22:54

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Loopman: Gússígússígússi, ég bloggaði um skjálftann til að valda þér ekki vonbrigðum.  Stebbi Fr. hlýtur að vera vant við látinn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.5.2008 kl. 23:03

12 Smámynd: Loopman

Stebbi bloggaði helling...mér er óglatt....svimi... grrrrr

Loopman, 29.5.2008 kl. 23:14

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Loopmann: ARG 

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.5.2008 kl. 23:18

14 identicon

Það er gaman að lesa allar vangavelturnar um bústaðinn minn undir Ingólfsfjalli. Ég er búin að eiga þennan bústað í 16 ár, og það er alltaf jafn gott að vera þar. Það vill nú svo til að ég var í bústaðnum þegar að ósköpin dundu yfir, hávaðin og lætin voru ólýsanleg og jörðin hennti manni bókstaflega til og frá. Það var skrítin tilfining að heyra björgin riðjast niður fjallshlíðarnar, og vita ekki hvort að maður kæmist heill á húfi niður á veg. Maður er svo vanmáttugur gagnvart náttúruni. Frænka mín var með mér, og ætluðum við frænkurnar að eiga rólegan og góðan dag saman í góða veðrinu og kyrðini, en raunin varð önnur. Álfarnir hugsa um sína á meðan að við tökum tillit til þeirra, allavega mínir álfar. Ég á eftir að vera í bústaðnum mínum áfram, þó að það eigi kanski eftir að vera smá beigur í mér um sinn. Það er hvergi betra að vera þetta er alger paradís. Er þó ekki viss um að frænka mín komi með mér þangað aftur, allavega ekki í bráð.         Kveðja: Kolla

Kolla (IP-tala skráð) 31.5.2008 kl. 22:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.