Leita í fréttum mbl.is

Í hvaða sæti - einhver?

Eftir að útslitin í Júró lágu fyrir, lág ég sprungin af harmi, í drapplitaða sófanum mínum, með marglitu flauelspúðunum.  Ég var með hárið í hnút og klædd í rauðan silkikjól og var afskaplega rómantísk og kvenleg útlits, ef ég á að vera alveg hreinskilin.  Ég hafði háan ekka sem yfirgnæfði Sigmar í sjónvarpinu, og ég sá ekki út úr augunum vegna tára.  Ég heyrði sum sé hvorki né sá.

Þess vegna spyr ég ykkur.  Í hvaða fokkings sæti lentum við?

Vinsamlegast setjið svarið í kommentakerfið og verið snögg að því. 

 Annars góð,

later!


mbl.is Ísland endaði í 14. sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

14. sæti. Danir björguðu okkur upp úr því 17. með því að gefa okkur fullt hús. Ég elska Dani enn heitar en áður eftir þetta kvöld ...

Guðríður Haraldsdóttir, 24.5.2008 kl. 22:55

2 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Ég líka Dani, sérstaklega einn og hálfan Dana sem voru hjá mér í kvöld í okkar einka-míní-júróvisjóngilli. Að vísu líka alla hina sem kusu okkur. Já, ég heyrði líka 14. sætið.. þannig fór um sjóferð þá.

Bjartsýnin lengi lifi.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 24.5.2008 kl. 22:59

3 Smámynd: Huld S. Ringsted

Danirnir skutu okkur í það 14

Huld S. Ringsted, 24.5.2008 kl. 23:00

4 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Var enginn hjá þér til að þerra tárin? 

Fyndið að sjá og heyra hjá Önnu hvað byrjunin á rússneska laginu er dásamlega stolin frá Cat Stevens.

Rússneska lagið hér.
Cat Stevens lagið hér.

Berið saman.

Lára Hanna Einarsdóttir, 24.5.2008 kl. 23:01

5 Smámynd: Anna Guðný

Ég ákvað að taka þetta eins og sönnum hamingjusömum íslendingi sæmir og segi að við séum í 2. sæti (tel sem sagt bara norðurlöndin með Og  erum við í svo góðum málum að við unnum meira að segja svíana. Og það er nú ekki oft sem það gerist og ber því að flagga því.

Fer að sofa hamingjusöm í kvöld.

Anna Guðný , 24.5.2008 kl. 23:05

6 Smámynd: Þröstur Unnar

Kórrétt Lára Hanna.

Er feikna ánægður með norska lagið, tel það eitt besta lag keppninnar.

Farinn ti DK.

Þröstur Unnar, 24.5.2008 kl. 23:09

7 Smámynd: Snooze

Samkvæmt mbl.is lenntum í 8. sæti í undanúrslitunum en 14. í aðalkeppninni sem sagt 8+14=22 deilt með 2 keppnum = 11. sæti, samkvæmt mínum útreikningum ;)

Snooze, 24.5.2008 kl. 23:11

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég hefði átt að lesa fyrirsögn fréttarinnar betur sem ég linkaði við.  Þar stendur 14. sæti og gargar á mig.

Haha

Lygilega líkt LH.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.5.2008 kl. 23:16

9 Smámynd: Kolgrima

jajajaja en hva...

Kolgrima, 24.5.2008 kl. 23:18

10 identicon

Lang flottustu keppendur sem hafa tekið þátt fyrir Íslands hönd.  Sæt, örugg og syngja vel.  Regína lang sætasta stelpan.  Friðrik ótrúlega öruggur og cool.  Austur evrópu þjóðirnar standa bara saman.  Það þarf að breyta fyrirkomulaginu meira.

anna (IP-tala skráð) 24.5.2008 kl. 23:18

11 Smámynd: Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Já vá lygilega lík lögin hjá C S og Rússum.  Eigum við ekki að kæra bara og fá aðra keppni

Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 24.5.2008 kl. 23:32

12 identicon

Snooze góður  pottþétt tölfræði þar.

Mér fannst þetta æðislegt. Svíum var spáð velgengni, 7 sætum ofar en okkur en við vorum nr. 14 og Svíar nr. 18. Það sannast enn einu sinni að við vitum ekkert hvernig þetta leggur sig fyrr en í leikslok.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 24.5.2008 kl. 23:39

13 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Hva????? vorum við ekki í fyrsta????? Annars voru þarna 2-3 ágæt lög og mér fannst Íslensku flytjendurnir standa sig vel

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 25.5.2008 kl. 00:10

14 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þetta sýnir okkur að leikurinn er ekki búinn fyrr en feita kellingin flautar.....

Hrönn Sigurðardóttir, 25.5.2008 kl. 00:51

15 Smámynd: Tiger

Ég er náttúrulega heavy ósáttur. Sætti mig ekki við svona bara .. ussuss. Æi, maður vonar og heldur alltaf það besta - og svo verður maður hundfúll þegar stigagjöfin er svona hrikalega ömurleg.

Kannski það ætti bara að gera tvær keppnir úr þessu batteríi, eina norðurlanda og eina austantjalds ... þannig séð.

Eigðu ljúfan sunnudag mín kæra..

Tiger, 25.5.2008 kl. 01:39

16 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þetta var bara skemmtilegt.

Sigrún Jónsdóttir, 25.5.2008 kl. 01:46

17 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

'o, ertu ekki sæl Jenfo að píkukjóllinn dugði ekki til og það þótt "Endinn" á Charlottu sér eflaust augnayndi!?

Lára Hanna er auðvitað snillingur, ég tónlistarspekingurinn hrökk strax við þegar ég hyrði lagið í fyrsta skiptið í kvöld, en áttaði mig ekki fyrr en að lokinni keppninni hvað var á ferðinni!

Magnús Geir Guðmundsson, 25.5.2008 kl. 01:58

18 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ingimar Eydal sagði nú eitt sinn, og sýndi fram á það líka, að öll lög eru komin úr Gamla Nóa

Þannig að kannski mætti halda því fram að öll lög séu stolin......... 

Hrönn Sigurðardóttir, 25.5.2008 kl. 23:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 2985629

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.