Leita í fréttum mbl.is

Nei!

 nada

Aðalfréttin í Danmörku í dag er um hundinn hennar Möggu drottningar, sem varð fyrir bíl og slasaðist.

Halló, auðvitað hef ég samúð með dýrinu en rosalegt hype er þetta í sveltandi heimi.  Einn hundur á slysó og Danmörk bara í frussandi  hýsteríu.  Það er eitthvað að þessari forgangsröðun.  Svíar eru svona drottninga- og kóngaóðir líka.  Jafnvel þó því væri trúað um árabil að sjálfur kóngurinn væri eitthvað heftur.  Hann reyndist svo ekki vera það, er bara seinn til og fælin, sem mér finnst vel sloppið komandi undan nánustu ættingjum sínum.  Samkvæmt einræktun í kóngafjölskyldum ætti allt þetta lið að vera hálfvitar og rúmlega það.

Annars var Gurrí að skrifa um meðvirkni.  Sumir misskilja það hugtak geypilega og heimfæra samúð og samkennd upp á meðvirkni og sjúkdómsgera eðlilega hjálpsemi við fólk.

Einu sinni var aðalmálið að læra að segja nei og fólk fór á námskeið til að fullnuma sig í þeim hæfileika.  Það átti að slá á meðvirknina.  Ég þekkti nokkra sem rifu sig á viðkomandi fræðslu og urðu gjörsamlega óþolandi á eftir.

Geturðu rétt mér kaffið? Nei! Villtu gefa mér eld?  Nei! Geturðu svarað í símann, ég er í baði?  Nei! Ég er fótbrotin, villtu hringja á sjúkrabíl? Nei!

Ef þetta er ekki sjúkt, þá er ég mamma mín.

Maður má ekki fella tár yfir óförum annarra þá heyrast ramakvein í sérfræðingunum sem helda að þeir séu með fræðin á hreinu: "Ertu að grenja, djöfull ertu meðvirk."

Jájá.  En eitt er á hreinu, ég er ekki meðvirk með hundinum hennar Möggu, það eru aðrir í því.

Skiljið þið mig?

NEI!

Farin að lúlla.  Ójá.

 


mbl.is Ekið á hund Danadrottningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emma Vilhjálmsdóttir

Þetta er bara eitt dæmið enn um það hve miklu máli Séra Jón skiptir fólk, miðað við hinn venjulega Jón.  Mjög ósanngjarnt og bara asnalegt!  Við eigum öll að vera jöfn, sama hvaða starfi  við gegnum og sama hver við erum, hvort við erum fræg eða í ræsinu.  Við erum öll manneskjur og eigum öll að njóta þess sama. 

Svolítið skrýtið að vera með heila frétt bara um hundinn hennar.  En öll hin dýrin sem verða fyrir illri meðferð og fleira í þeim dúr, hvers vegna fá þau enga umfjöllun?  Því þau eiga ekki nógu merkilega eigendur?  Sveiattan!

Emma Vilhjálmsdóttir, 30.4.2008 kl. 00:11

2 identicon

Sammála öllum upptöldum atriðum. Í einu og öllu amen.

Lúllaðu góða mín, láttu þér batna. Ekki gott að fá vírus, ónei, láttu mig vita það.

Knús á þig Jenný Anna.

Guðrún B. (IP-tala skráð) 30.4.2008 kl. 00:11

3 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Æ, æ ég er harmi slegin.  Aumingja frú Þórhildur!  Hvaða bull fréttir eru þetta?  Ég er búin að vera í kerfi eða þannig  af því að ég hef verið fjarverandi mínum hvutta í heila viku og veit ekki hvort hann er lifandi eða dauður.  Sorry, tók þann pól í hæðina þegar ég eignaðist hudspottið að hann væri hundur ekki barnið mitt.  Þoli ekki þegar fólk segir:  Komdu til mömmu, fæ bara netta gæsahúð.  Ég er fóstra hans Erró míns ekki mamma, punktur basta.

Jesús, María og Jósep ég er farin að blogga hér á síðuna þína Jenný mín.  Fyrirgefðu frekjuna, var bara sí svona á bloggvinainnliti og langaði að láta vita af mér. 

 Helli út skálum mínum þegar ég kem heim eftir helgi.  Knús á þig vinkona

Ía Jóhannsdóttir, 30.4.2008 kl. 00:44

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Svakalega er ég sammála þér ! Og sammála Íu líka ! Úbbasía ætli ég sé ekki svona meðvirk bara ?

Jónína Dúadóttir, 30.4.2008 kl. 06:04

5 identicon

Í fljótu bragði man ég eftir 3 kóngafjölskyldum á næsta leiti - landfræðilega.

Mér þykir sennilegt að þegar allr ferfætlingar innan þeirra vébanda og þeirra eðlilegu kvillar ásamt eðlilegum óförum (sé miðað við tölfræðilegar líkur gæludýra á því að verða fyrir hnjaski - í meðalári) þá sýnist mér að það mætti hæglega fylla eins og eitt dagblað með ítarlegri umfjöllun um hægðir og hárafar þessara skepna.

Það er kannski bara öllum fyrir bestu að vera ekkert að spekúlera í vanda heimsbyggðarinnar og sökkva sér bara ofaní svona þægi- og meðfærileg vandamál, sem fara vel í blaðagrind og gera fólki kleift að krafsa sig í gegnum tilveruna án þess að klóra úr sér augun.

Varðandi meðvirknina þá hefði ég ekki orðað þetta betur sjálf

Linda María (IP-tala skráð) 30.4.2008 kl. 06:53

6 Smámynd: Linda litla

Mikið rétt mikið rétt mikið rétt..... Hallelúja.

Linda litla, 30.4.2008 kl. 08:31

7 identicon

Meðvirkni er allt annað en hjálpsemi.Vona að snati drottningar nái sér.Þetta mundi flokkast undir lúxusvandamál annarstaðar en í baunaríki.Góðan dag

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 30.4.2008 kl. 08:59

8 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 30.4.2008 kl. 08:59

9 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Mér finnst kóngafólk svo mikil tímaskekkja að ég alveg fer að hristast þegar það er nefnt! Afnema konungsættir núna strax og fara að sýna hungruðum heimi áhuga !

Sunna Dóra Möller, 30.4.2008 kl. 11:13

10 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

lúúúkaaaas :D

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 30.4.2008 kl. 12:34

11 Smámynd: Sunna Guðlaugsdóttir

Já, sama segi ég - ég hef ekkert heyrt hérna úti! Ætli það séu ekki bara hin gömlu tryggðarbönd við Möggu og fjölskyldu sem koma íslenskum fjölmiðlum svona í uppnám?

Annars vildi ég bara kvitta fyrir mig... Hef lesið bloggið þitt í nokkurn tíma, ákvað að vera það kurteis að láta allavega vita af mér!

Hafðu það gott

Sunna Guðlaugsdóttir, 30.4.2008 kl. 17:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband