Leita í fréttum mbl.is

Brúðir Krists

Ég er ekki höll undir kaþólska trú, og reyndar ekki undir nein trúarbrögð svona yfirhöfuð, þannig að ég ætla ekki að fara mæra hana, aldeilis ekki.  Fyrr dett ég dauð í gólf.

En þessar nunnur, sem eru búnar að vera hérna frá því 1952 eru algjörar dúllur.

Samt finnst mér sorglegt að einhver gangi um og trúi því að lífinu sé best lifað í ektastandi með Guði almó.  Það er eitthvað svo snubbótt.

En ég skil ekki allt og þó ég nái ekki þessu elementi í fólki sem "gefur" sig Guði á meðan það er enn í jarðvist, þýðir auðvitað ekki að það sé ekki bara í góðu.   Þannig að ég er ekki að fordæma eitt né neitt.

Mig rámar í mynd um nunnu með Audrey Hepburn, sem ég sá í Nýja Bíó þegar ég var 10 ára og það grét allt bíóið.  Ég líka.  Þá man ég eftir að mér fannst þetta nokkuð fýsilegur kostur, þ.e. að vera bara einn og sjálfur með Drottni í botni, enginn eldri maður um tvítugt myndi fokka upp lífi manns um leið og gelgjunni slægi inn.

Þetta átti eftir að breytast snarlega og ég hef skilið minna og minna í trúarbrögðum eftir því sem ég verð eldri.

Er það þroska- eða vanþroskamerki?  Ég hallast að báðu.

En þessu nunnukrútt eru örugglega búnar að gera helling til góðs í Stykkishólmi.

Fari þær í Guðs friði.

Amen.


mbl.is Gaman að koma en ekki að fara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hef á stundum sett fram þá pælingu í tengslum við orð biskups og annarra trúaðra sem tala um brot á lífsins lögmáli að vera samkynhneigður, þessir sömu aðilar segja ekkert við því að nunnur basically giftist sögufígúru, nú eða munkar sem gera svipaða hluti, eða bara páfinn.
Ég hef ekki heyrt biskup segja þetta fólk brjóta lífsins lögmál um að fjölga sér blah
Tvískinnungurinn er grátlegur.

Annars hef ég lítið að segja um þessar nunnur nema það að eitt sinn var ég staddur í hafnarfirði og þurfti að spyrja vegar, keyrði upp að 3-4 nunnum á gangi og skrúfaði niður gluggann til þess að spyrja þær, þær tóku á rás og flugu í burtu á harðahlaupum ... weird ha ;)

DoctorE (IP-tala skráð) 29.3.2008 kl. 13:38

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Mamma á reyndar ekki góðar minningar um dúllurnar í Hólminum. Þegar Hilda systir var að fæðast  þurfti mamma að ríghalda í eina nunnuna svo að hún tæki á móti Hildu og færi ekki í morgunmessu. Hilda fæddist fimm mínútum síðar. Svo lá ég lærbrotinn þarna, 13 mánaða, með fótinn í strekk upp í loft. Mamma (hjúkka) benti þeim á í kvöldheimsóknartímanum að strekkurinn væri að losna en þær hlustuðu ekki á hana. Ég lá víst alla nóttina og grét, eftir að strekkurinn losnaði og vakti heyrnarlausu konuna sem var með mér á stofu, en þær tímdu ekki að sækja lækninn ... eða hugga barnið. Hmmm, ég er enn beisk með innleggin mín í skónum þótt ég muni ekkert eftir þessu. Þær földu sig morguninn eftir þegar læknirinn kom og trylltist. Þetta nunnudiss var í boði himnaríkis ... (þær hafa samt ábyggilega gert eitthvað gott líka, dúllurnar)

Guðríður Haraldsdóttir, 29.3.2008 kl. 14:49

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Helv.... þær eru hér með teknar út af sakramentinu.  Fyrir að hafa vakið heyrarlausukonuna.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.3.2008 kl. 14:53

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Doktor E: Sammála.

Hallgerður: Ekki alveg í réttri röð en gott að það var fyndið

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.3.2008 kl. 14:54

5 Smámynd: halkatla

ég skil nunnur alveg hrikalega vel, að öllu leiti nema að þær skuli vera kaþólskar. Það er svindl að það sé ekki í boði fyrir aðra en kaþólikka (amk í okkar menningarheimi)

halkatla, 29.3.2008 kl. 15:08

6 identicon

Guðríður: Kannski er meðhöndlunin vegna þess að þjáning er guðleg.. Mamma Theresa var jú þekkt fyrir ómannesjkulegar aðferðafræði sem má skrifa á trúna.

Anna: Ég trúi þér ekki, þú sem ert nýbúin að segjast í makaleit :D

DoctorE (IP-tala skráð) 29.3.2008 kl. 19:32

7 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Ég bjó í Hólminum um árið og vann með þessum nunnukrúttum....eftir vikudvöl með þeim snarhættu þær að vera krútt, hef sjaldan hitt kaldari manneskjur....gæti sagt hryllingssögur af þeim en nenni ekki að eyðileggja fyrir mér daginn...

hef heldur aldrei skilið þetta nunnu og munka stand er ekki málið að gefa af sér til samfélagsins...er það hægt á þennann hátt???? 

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 29.3.2008 kl. 19:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 2985732

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.