Leita í fréttum mbl.is

Ísland best í heimi - jeræt!

Við Íslendingar erum bestir í svo mörgu.

Við gerum allt út í hörgul, sama hvað er, bæði gott og slæmt.  Við virðumst a.m.k. vera æðisleg, sko miðað við höfðatölu.

Arg.

Hér er dæmi um dásemdina.

"Um hundrað verkamenn bygginga- og verkfræðifyrirtækisins Stafnáss hafa ekki fengið greidd laun frá því í janúar. Langflestir þeirra eru Pólverjar, en þeirra á meðal eru einnig Litháar og örfáir Íslendingar."

Er engin sem getur stöðvað gróf brot á útlendingum sem eru að vinna fyrir íslensk fyrirtæki?

Svona mál eru alltaf að koma upp, einstaka sinnum koma þau í fjölmiðlum, við fussum og sveium og svo heyrum við ekki meir.

Ég er farin að hallast að því að það sé ekki nægur vilji til að laga þessi mál.

Ísland er best í heimi,

fyrir kverúlanta sem reka ýmiskonar fyrirtæki.

Þetta er hið eiginlega útlendingavandamál, þ.e. meðferðin á erlendum verkamönnum sem enginn virðist geta eða vilja stöðva.

Ég skammast mín f.h. þeirra sem hafa ekki vit á því.


mbl.is Sviknir um laun í tvo mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 29.3.2008 kl. 09:34

2 identicon

Efling er komin í málið með lögfræðinga sína. Það verða alltaf til menn (þ.e. manneskjur) sem níðast á öðrum. Pólverjar láta margt yfir sig ganga áður en þeir kvarta. Húsnæðismál þeirra sýna það. Óprúttnir Íslendingar sjá sér leik á borði.

Ég leigði hús með myglusvepp. Fjölskyldumeðlimir voru misveikir, ég merst þar sem ég vann heima. Við létum rannsaka þetta og létum leigusalann vita og sýndum honum gögn frá Húsi og heilsu. Sem betur fer var leigutímanum lokið um það leyti en það er mjög kostnaðarsamt að berjast við þennan eitraða svepp ef hann er kominn um allt í gömlu húsi. Það sem leigusalinn gerði var að leigja Pólverjum húsið

Eva Ólafsd. (IP-tala skráð) 29.3.2008 kl. 10:03

3 Smámynd: Aida.

Mikið er ég sammála.

Mér finnst oft á tíð Islendingar vera hreinlega siðlausir.

Aida., 29.3.2008 kl. 10:09

4 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Já hamingjuríkið Ísland!!  Skammarlegt og siðlaust!!! Hvar er allur mannkærleikurinn? 

Ía Jóhannsdóttir, 29.3.2008 kl. 10:39

5 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Eva, úff! Léstu ekki einhvern vita af þessu?

En svonalagað mun viðgangast, á meðan tekið er tilboðum sem eru greinilega allt of lág...

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 29.3.2008 kl. 10:43

6 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Já hva! Audda erum við best í heimi.

Edda Agnarsdóttir, 29.3.2008 kl. 11:32

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Segi ekki meir, en á ekki að vera til eftirlit með því að stjórnarskrárvarinn réttur sé ekki brotinn, hvort sem um er að ræða utlendinga eða íslendinga.  Eða ætli skýringin sé sú að það koma svo margir inn í einu, að það er ekki hægt að hafa eftirlit með þeim glæpahundum íslenskum sem gera sér gróða úr lífi fólks sem hingað kemur.  Var að lesa um pólsk hjón sem leigja 60m2 herbergi á 90 þúsund kall.  Byrjaði með 70 þús.  og var svo hækkað á skýringa upp í 90.  Og þau vita ekki einu sinni hvort þau eru með leigusamning eða ekki.  Hvað á þetta eiginlega að ganga langt áður er stjórnvöld grípa inn í og hætta að þjónka endalaust við óprútna atvinnurekendur, en það eru auðvitað þeir sem borga í kosningasjóðina.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.3.2008 kl. 12:13

8 identicon

þetta er þvílík skömm að fara svona með fólk er bara hrikalegt

Eyrún Gísladóttir (IP-tala skráð) 29.3.2008 kl. 12:26

9 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Held þú hafir hitt naglann á höfuðið....það er ekki vilji til að gera neitt í málinu.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 29.3.2008 kl. 12:48

10 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Sorglegt.

 Eigðu góða helgi Jenný mín

Kristín Katla Árnadóttir, 29.3.2008 kl. 13:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 2985742

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.