Leita í fréttum mbl.is

Menn með perlufestar eru algjörlega sneyddir kynþokka

 

Þegar ég er gagnrýnin og pirruð út í það sem er að gerast í heiminum og einkum og aðallega í íslensku samfélagi, þá fæ ég gjarnan skammarpósta.  Stundum, en bara stundum, á ég þá skilið.  Á það til að  vera ansi fljót í förum á undan sjálfri mér.

En þeir póstar sem mér er verst við eru þessir fáu en öflugu skammarpóstar sem ég fæ frá fólki sem heldur því fram að þeir sem séu í góðum bata edrúwise eigi ekki að vera með pirringsblogg, að það sé jafnvel merki um lélegan bata.   Nú geta þeir mundað lykilaborðið, því ég blæs á það blaður og kem hér með eina skelfilega neikvæða færslu um gerviskartgripi og lélegan smekk ákveðinna karlmanna á sjálfskreytilist.Whistling

Í dag var hengt blikkdrasl í barminn á ellefu Íslendingum.  Forsetinn gerði það heima hjá sér at Bessastadir.

Þetta er ábyggilega allt hið vænsta fólk, enda er ég ekki að blogga um það, heldur bévítans pjátrið sem hengt er utan á það.  Hvað ber sá úr býtum, áþreifanlega, sem fær orðu?  Plístell.

Hvað er það með orður og venjulegt samfélag?  Af hverju finnst mér eins og svona tildur og hégómi eigi heima í löndum með kónga og drottningar, ekki í samfélagi eins og okkar sem allir eiga að vera jafnir.

Kannski af því að það eru ekki allir jafnir?  Dhö!

 Gæti verið.  Jájá, búin að kveikja ljósin og komin heim en sé tæpast útúr augunum.  Maður var eitthvað verulega fjarverandi þegar Gussi útdeildi toppstykkinu. (Jeræt, fremst í röðinni).

Mikið skelfing vildi ég henda svona hallærissiðum út í ysta haf.  Líka perlufestum á Forseta og Borgarstjóra, Sendiherra og  þess hátta fólk með stórum staf.

Ég hef ofnæmi fyrir mönnum með perlufestar og slíkt dinglumdangl og hugsa alltaf: Vá hvað hann hlýtur að vera hégómlegur þessi, getur ekki haft mikinn tíma í vinnunni, alltaf í speglinum bara.

Nú, en ég ræð engu, nema þessum auma einkafjölmiðli mínum sem ég ætla að nota á nýju ári til þess að rífa enn meiri kjaft en í fyrra.  Blogga um hvernig mér gengur edrúmennskan og neita að fara í neinar felur með minn fíknisjúkdóm og svo ætla ég að gera heiðarlegar tilraunir til að vera skemmtileg í leiðinni. Svo verður það kirkjan og trúmálin, pólitíkin og fjölmiðlarnir og jájá, ekki hörgull á bloggefni.  Sei, sei, nei.

Kommon, einhvers staðar verður nóboddí eins og ég að hafa vettvang.

Djö.. sem við bloggarar vorum krúttlegir í ÁramótaskaupinuWhistling

Kikkmítúðebónsandbætmíasvell.

Úje


mbl.is Ellefu sæmdir heiðursmerkjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Gott að minntir mig á það, þetta var nú bara einn besti sketsinn hjá þeim!

Haltu svo áfram að rífa kjaft kéddling

Edda Agnarsdóttir, 1.1.2008 kl. 17:59

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Dúllan mín. Kjaftfora kéddling addna. Í guðs bænum haltu áfram. Rífðu þig alveg ofan í rassgat

En varðandi pælinguna með perlufestina. Er þetta ekki bara eins og hver annar  verðlaunagripur?  Svona eins og íþróttafólkið fær þegar það afrekar eitthvað á sínu sviði? Verið að sýna mönnum og málefnum að tekið sé eftir þeirra framlagi til mannkyns? ég spyr því ég er svo ómenningarleg og fylgist svo illa með.

Jóna Á. Gísladóttir, 1.1.2008 kl. 18:05

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Rífðu alveg oní ... gat, þú ert flott og hefur skoðanir sem vert er að hlusta á.  Þú ert nefnilega svo djö... skemmtileg oft í bland með gagnrýninni, enda er gagnrýni jákvæð. Annað með dónaskap sem sumir leyfa sér að henda inn á kommentum. Ég hefði gaman að vita hversu margir hafa náð að hætta að drekka með styrk frá þér.  Hafðu það gott gullið mitt.

Ásdís Sigurðardóttir, 1.1.2008 kl. 18:10

4 Smámynd: Heiða  Þórðar

ÞÚ ERT EINGÖNGU OG BARA FRÁBÆR Jenný Anna! Og mér þykir hrikalega vænt um þig

Heiða Þórðar, 1.1.2008 kl. 18:24

5 identicon

Steingrímur Thorsteinsson orti eftirfarandi :

Orður og titlar, úrelt þing

– eins og dæmin sanna –

notast oft sem uppfylling

í eyður verðleikanna.

Ég er þeirrar skoðunnar að fólk á ekki að fá orður fyrir vinnuna sína. EF á að hengja eitthvað á fólk þá er það fyrir að vera hvunndagshetja.

ÉG SÆMI ÞIG HÉR MEÐ JENNÝ BLOGGORÐU 2007 . Hún er mun flottari enda ekki til á myndum bara í orðum.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 1.1.2008 kl. 18:51

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Gleðilegt ár Jenný mín kæra, og takk fyrir frábær skrif á síðasta ári.
Skamma þig af hverju? Ert þú ekki að segja þína skoðun á þinni síðu?
Maður á ekki að fara í felur með neitt, það sem gerist á að vera upp á borðinu. maður á ekki að vera meðvirkur, og alls ekki sjálfum sér.
Og rífðu bara kj. eins og þú villt.
                                  Kveðjur
                                        Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 1.1.2008 kl. 19:30

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þið eruð frábær.

Milla: Allt á borðið, líka orðið.

Dúa: Ætli við tvær myndum ekki lufsast með orðuhelv... út í Bónus?  Það er cabout hámarkið á sósjallífi okkar.  Hehe

Gísli: Takk og frábær vísa.

Hallgerður: Þú fær viðurkenningu frá sambloggurum þínum, það er mun meira virði en þetta blikkdrasl.

Ásdís: Takk og sömuleiðs honní og Heiða líka.  Love u

Jóna: Gaman að sjá hausinn á þér í eðlilegri stærð.  Þú ert kjút.

Edda: Bloggarasketsinn var auðvitað merkilegastur.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.1.2008 kl. 19:35

8 identicon

Hvað er betra en að kíkja inn á bloggið þitt í upphafi árs? Bara strax byrjuð að rífa kjaft  Alveg éins og það á að vera Aftur gleðilegt ár og takk fyrir að vera til

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 1.1.2008 kl. 21:10

9 Smámynd: Svala Jónsdóttir

Orðuþegar geta nottla mætt í allar fínu ráðherra- og forsetaveislurnar með dinguldanglið hangandi. Alla vega skilst mér að orður séu alveg möst í forsetaveislunum og enginn maður með mönnum (eða kona með konum) nema að hafa svoleiðis hangandi utan á sér. :)

Gleðilegt ár!

Svala Jónsdóttir, 1.1.2008 kl. 21:25

10 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Gleymdi alveg að mynnast á blúnduna, gasalega er hún lekker.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 1.1.2008 kl. 21:50

11 Smámynd: Björg K. Sigurðardóttir

Það er alltaf gaman að lesa bloggið þitt hvort sem þú ert pirrípú eða ert í krúttkasti yfir barnabörnunum þínum og bara allt þar á milli.

Haltu áfram að vera svona frábær og gefandi bloggari á nýja árinu

Björg K. Sigurðardóttir, 1.1.2008 kl. 23:01

12 Smámynd: Óttarr Makuch

Ég hef til gamans tekið saman lista yfir þá sem líklega hafa fengið tilefnislausar orður á árunum 2000-2007, þetta eru 66 einstaklingar.

Listan má sjá hér http://otti.blog.is/blog/otti/entry/404351/

Óttarr Makuch, 1.1.2008 kl. 23:07

13 Smámynd: Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir

Hér eru leiðbeiningar um hvar og hvernig orðan skuli borin, svona "dags daglega". Tekið héðan.

"Fálkaorðan er borin við kjólföt, síða kjóla eða hátíðarbúninga einkennisfata ríkisins í hátíðarsamkomu þar sem þjóðhöfðingi er viðstaddur og mælst er til orðuburðar.

Orðuþegar geta einnig borið fálkaorðuna við dökk föt eða spariklæðnað við önnur tækifæri, svo sem á þjóðhátíðardaginn, nýársdag, sjómannadag eða öðrum hátíðisdögum, á héraðshátíðum eða persónulegum tyllidögum. Sama gildir um þá orðuþega sem bera einkennisklæðnað íslenska ríkisins.

Barmmerki fálkaorðunnar, rósettu, má bera við jakkaföt og sambærilegan kvenklæðnað þegar orðuþega þykir henta og má gera það daglega."

Það má kannski sníða til seremóníur í kringum bloggorðuna sem lögð var til hér ofar upp úr þessu af vefsíðu forsetaembættisins.

Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir, 1.1.2008 kl. 23:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30