Leita í fréttum mbl.is

Þá er að steinþegja bara

Sendiráð Bandaríkjanna segir okkur að bandarísk yfirvöld tjái sig ekki um einstök mál en allir þeir sem telji sig ekki hafa hlotið réttláta meðferð við landamæraeftirlit í USA geta borið fram kvörtun á vefsíðu heimavarnarráðuneytisins.

Halló, hversu leim er hægt að vera?

Við hræðum úr fólki líftóruna, hlekkjum það, sveltum og brjótum önnur mannréttindi á því og svo getur það farið inn á netið þegar heim er komið (þ.e. ef það fer ekki Guantanamo bara) og lagt inn kvörtun.

Afsakið á meðan ég hendi mér í gólf.

Þetta er kannski alvanaleg meðferð á fólki í landi frelsis og réttlætis en ég ætla rétt að vona að íslensk stjórnvöld taki sig saman í andlitinu og komi því alvarlega til skila að svona verði ekki komið fram við okkar fólk.  Það ættu reyndar allar þjóðir að gera, sem eiga fólk sem lendir í martröð líkri þeirri sem hún Erla lenti í.

Ég get ekki einu sinni hugsað hugsunina til enda, hvers kyns skelfing það hlýtur að vera að lenda í þessum hremmingum.

Ég vona svo sannarlega að stjórnvöld geri eitthvað í málinu til að bæta Erlu meðferðina og koma skýrum skilaboðum á framfæri við "vinaþjóðina" um að svona meðferð á fólki verði ekki liðin.

Sendiráðið er með skýr skilaboð, ekkert múður og farið á vefinn.

Á ekki að steinþegja bara og þakka fyrir að komast lifandi frá landi sælunnar?

ARG

Sjá nánar hér


mbl.is Tjáir sig ekki um einstök mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Fullkomlega sammála þér í þessu Jenný mín. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.12.2007 kl. 19:39

2 Smámynd: Huld S. Ringsted

Þeir sjá ekki skítinn hjá sjálfum sér en hryðjuverkamenn í öllum öðrum!! ARG!

Huld S. Ringsted, 12.12.2007 kl. 19:42

3 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Í fyrsta lagi ættu borgarar allra þjóða heims að halda sig frá Bandaríkjunum eins og frekast er kostur og sætta sig ekki við að vera meðhöndlaðir eins og glæpamenn við komuna þangað, hvort sem um er að ræða meðferð eins og Erla fékk eða bara það, að láta taka af sér fingraför og myndir til að fá að fara inn í landið. Hvað ætli sé gert við þau gögn? Það hefur enginn hugmynd um.

Í öðru lagi ættu aðrar þjóðir að koma nákvæmlega eins fram við þá Bandaríkjamenn sem sækja þá heim, krefjast vegabréfsáritunar, taka fingraför og myndir. Auga fyrir auga...

Ef ég man rétt ákvað Brasilía að gera það í fyrra og allt varð vitlaust í Bandaríkjunum yfir þeirri ósvífni. Ég er ekki viss um að ég fari alveg rétt með landið og hvort úr varð og lýsi eftir einhverjum sem man þetta betur en ég.

Á meðan þjóðir heims beygja sig undir meint heimsyfirráð Bandaríkjanna, ímynduð eður ei, er ekki von á að þeir dragi í land og ill meðferð á fólki heldur áfram.

Lára Hanna Einarsdóttir, 12.12.2007 kl. 19:47

4 identicon

Það er ágætis fólk sem býr þarna í BNA, en fjandans stjórnkerfið er tabú, þeir eru hræddir við aðrar þjóðir, ekkert flóknara en það, sjá hryðjuverkamenn í öllum hornum enda ekkert skrítið, yfirgangur þeirra við aðrar þjóðir er yfirgengilegur og þeir eru hataðir í mörgum löndum. Ég held að Brúskurinn ætti að koma sér frá hvíta húsinu, helv,,,, mannréttindar-hatari.

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 12.12.2007 kl. 19:58

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Lára Hanna, svo sammála þér og reyndar ykkur öllum.  Þetta er óþolandi yfirgangur og vanvirðing við fólk.´

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.12.2007 kl. 19:58

6 identicon

Bloggaði um sama mál en er ekki jafn mergjaður og þú Jenný. Þar eru linkar á kvörtunardeild sendiráðsins.  Er ekki bara að skrifa þangað. Eins og þú segir: komaso!

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 12.12.2007 kl. 20:47

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Magga Ö: Auðvitað eru Bandaríkjamenn misjafnir eins og annað fólk, þeir gerðu hins vegar sömu mistök og við höfum gert reglulega, þ.e. að kjósa yfir sig hálfvita.

Benedikt: Hversu ömurleg bandarísk stjórvöld eru já.  Ekki almenningur.

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.12.2007 kl. 20:48

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gísli: Kíki á þig.

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.12.2007 kl. 20:48

9 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

gaurinn situr þarna reyndar í umboði minnihluta Bandaríkjamanna og fáránlegra kosningalaga...

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 13.12.2007 kl. 00:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 2985701

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.