Leita í fréttum mbl.is

Íslandsvinur - GMG

Var að lesa á visi.is að "Íslandsvinurinn"Kiefer Sutherland gæti átt á hættu að lenda í fangelsi fyrir ölvunarakstur.  Það truflar mig nákvæmlega ekkert, hvort karlinn fer í fangelsi eður ei, enda fjarlægur mér og öðrum vegfarendum á Íslandi.  Þó óska ég þess að hann hætti þessum lífshættulega ávana.  Þó ekki væri nema vegna mögulegra þolenda í umferðinni, þar sem hann er.

En er maðurinn einn af þeim fjölmörgu sem lent hafa í Keflavík og með því stofnað til sterkra og ævarandi vinuáttutengsla við íslensku þjóðina?  Það vissi ég ekki.  Hann hlýtur að hafa gert það áður en ég fór í meðferð því ég man andskotann ekkert áður en af mér rann.

Leiðinlegt að hafa ekki tékk á vinum móðurlandsins. 

Jeræt!

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Kiefer kom alveg hér upp á land og meira að segja tók í spaðann á kallinum mínum  Það hafa ekki frægari menn á hollívúdd klassa gert. Mínum kalli brá náttlega við eins og öllum hinum, krumlan ekki þvegin í langan tíma á eftir.

Hann hefur þó ekki þorað að monta sig mikið af afrekinu enda hans frú með eindæmum neyðarleg í orðum út af þessu atviki. Það skrifast nú reyndar á hreina afbrýðisemi yfir þessu.

Ragnheiður , 30.9.2007 kl. 15:58

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Kiefer er sætur en á greinilega við sama vanda að stríða eins og svo margir frægir... með mikilmennskubrjálæði.

Ég man ekki hvenær hann kom. En var það ekki hann sem stofnaði til náinna kynna með íslenskri snót og Séð & heyrt fór á kostum um málið eins og reyndar fleiri ''frétta'' miðlar?

Jóna Á. Gísladóttir, 30.9.2007 kl. 16:23

3 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég vona að hann verði ekki lengi í fangelsi....annars kannski klikka tökur á nýjustu 24 seríunni og þá fer ég alvarlega að gráta vegna þess að ég get ekki hugsað mér lífið á 24 ...... vonandi bara lofar hann að gera þetta aldrei aftur og fer að leika bara.....ekkert vesen þegar maður leikur í vinsælum þætti ... hvað á ég annars að gera á sunnudagskvöldum í janúar....!

Sunna Dóra Möller, 30.9.2007 kl. 16:28

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála þér Jenný mín, hann þarf að láta af þessum leiða vana.  Stútur við stýri er lífshættulegur.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.9.2007 kl. 17:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband