Leita í fréttum mbl.is

Næturraunir

 

Ekki var ég fyrr búin að lýsa því yfir á blogginu, að hér í mínu hverfi, byggju engir Erlar, allt væri hljótt og aldrei partý eða aðrar hávaðaróstur á nóttunni, en fjandinn varð laus.  Ég gat ekki lókaliserað hamaganginn í nótt, hann var nálægt, en samt utan seilingar.  Glös voru brotin, tjaldsöngvar sungnir (María, María var tekið aftur og aftur), fólk dunkaði í gólf eða veggi, fór út að reykja og talaði hátt og þannig hélt það áfram fram á morgun.  En ég lifði það af.

Ég sofnaði á milli þátta og mig dreymdi drauma. Það hefur komið fram áður á þessu bloggi að ég legg ekki á fólk að hlusta eða lesa um draumfarir mínar, enda það leiðinlegasta í heimi að heyra að einhverjum hafi dreymt að hann væri í Færeyjum, en samt voru það ekki Færeyjar heldur Borgarnes og svo hafi viðkomandi hitt Kennedy sem var samt ekki hann heldur Davíð Oddsson og svo áfram og áfram.  Draumar eru tilfinningar sem mér finnst ekki hægt að koma til skila.  Enda algjörlega út í hött að vera tíunda þá við annað fólk.

Minn draumur innihélt eftirfarandi:

Flugvél, suðræn lönd, hús Héraðsdóms, spikfeita rottu með leðurhatt, tölvu, fimmþúsundkrónuseðla í miklu magni, lögguna og dýrar fasteignir.  Ég vaknaði í rusli og fári.

Var ég búin að segja að þetta hafi verið martröð?

Mikið djö.. sem ég er pirruð yfir þessu.

Drímon!

Úje

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Góðan daginn ....ég vona að dagurinn þinn verði góður þrátt fyrir svona næturraunir!!

Sunna Dóra Möller, 30.9.2007 kl. 09:10

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Gott hjá þér að tíunda samt þinn draum.............

Eigðu góðan dag ljúfust

Hrönn Sigurðardóttir, 30.9.2007 kl. 09:11

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já ég gerði þetta meðvitað Hrönnsla mín.  Dagurinn verður flottur, það er ekki spurning.  En kannist þið ekkert við drauminn.  Það var pointið addna kjéddlingar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.9.2007 kl. 09:16

4 Smámynd: Sunna Dóra Möller

....veistu ég er ekki að kveikja.......spurning um langar leiðslur í morgunsárið....en samt er þetta svo kunnuglegt....!

Sunna Dóra Möller, 30.9.2007 kl. 09:25

5 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Góðan daginn ljúfust! Er alveg að meðtaka enda löngu vöknuð. Þvílík rósarskrif - en samt algjörlega brilljant. Knús á þig.  Láttu ekki rottuna eyðileggja daginn fyrir þér þótt helv... á Fréttablaðinu komi með samlíkingu um uppreisn æru eins og Árni Johnsen fékk. Ég náttla skil ekki svona fréttakluður í miðjum leik - sveiattan.

Edda Agnarsdóttir, 30.9.2007 kl. 09:37

6 Smámynd: Ragnheiður

Oj að dreyma Róbert Árna er bara súrt Jenný !

Ragnheiður , 30.9.2007 kl. 10:27

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Rottan með leðurhattinn kveikti á perunni hjá mér. það er nákvæmlega það sem ég sá í þætti í sjónvarpinu um daginn... rottu með leðurhatt...

Góðan daginn annars... mail eftir nokkrar mínútur

Jóna Á. Gísladóttir, 30.9.2007 kl. 11:40

8 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Gúdmorníng, vonandi verður dagurinn fínn. Þá er þessi nótt allavega að baki og verður ekki endurtekin.

Bjarndís Helena Mitchell, 30.9.2007 kl. 11:48

9 Smámynd: krossgata

Góðan daginn.  Allt rólegt á austurvígstöðvunum.   Ef allir geðvonskuðust svona þá væri nú gaman að lifa.

Mig dreymdi einmitt draum eins og þú lýstir, var fyrir austan fjall sem var auðvitað ekki fyrir austan fjall heldur Kópavogur og í suðri var Hengillinn - sem auðvitað er ómögulegt ef þú ert í Kópavogi og það var von á flóðbylgju og ógnvænlegar flóðbylgjurnar léku létt við topp Hengilsins og gusuðust glettnislega yfir toppinn.

Þetta var ekki martröð. 

krossgata, 30.9.2007 kl. 12:22

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Krossgata:  Þú ert krútt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.9.2007 kl. 12:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2985719

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.