Leita í fréttum mbl.is

15 ÁRA BÖRN DÆMD TIL FANGELSISVISTAR..

 

..en að afgreiða sígarettur yfir disk má ekki fyrr en börn hafa náð 18 ára aldri.  Ég hef svo sem ekkert á móti því að börn fái ekki að höndla með sígarettur, þó ekki missi ég svefn yfir því.  Mér finnst hinsvegar glæpsamlegt athæfi að dæma ólögráða börn til fangelsisvistar.  Það er bæði grimmilegt og sýnir ekki mikla virðingu fyrir ungum og óhörnuðum manneskjum.

Er ekki eitthvað að þessari forgangsröðun?

Spyr sá sem ekki skilur upp né niður í svona barna"vernd".

ARG


mbl.is 14 ára fá undanþágu til að afgreiða tóbak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

fín síðan hjá þér núna...

Ragnheiður , 18.8.2007 kl. 21:27

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Isskan mín, ef börnin sjá sígarettupakka fara þau óhjákvæmilega að reykja! Bráðum verður bannað að nefna orðið tóbak á nafn að viðlögðum sektum! 

Man eftir einum glerhörðum "á móti reykingum-manni", JR í Dallas, eða Larry Hagman. Það mátti enginn reykja í þáttunum eða nálægt honum, sem er allt í lagi, um að gera að vera tillitssamur, en hann fór offari. Nokkrum árum síðar fór hann í aðgerð og fékk nýja lifur í staðinn fyrir skorpulifur þar sem hann drakk yfir sig. Ég er orðin svo leið á þessum reykingafasisma sem hefur það eina markmið: Látum þau hætta með öllum ráðum! Hvernig væri þá að ráðast á áfengis- eða sykurneyslu í óhófi? Offita drepur, brennivín drepur líka. Arrrgggg

Guðríður Haraldsdóttir, 18.8.2007 kl. 21:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 2985718

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.