Leita í fréttum mbl.is

Í HJARTANS EINLÆGNI!

1

Ég ætlaði til Maysunnar minnar í London í þessum mánuði.  Ég hef vitað s.l. hálfan mánuðinn að af því getur ekki orðið.  Það eru einhverjar breytingar í blóðinu á mér (fyrir utan að vera lág í blóði sem er auðvitað tertubiti) og þangað til ég fæ úr því skorið hvað er á ferðinni, fer ég hvorki lönd né strönd.  Ég fór í smá afneitun á þessu fyrst þegar ég heyrði það og þess vegna raunveruleikageri ég þessa staðreynd með því að skella því á bloggið.  Þetta þarf ekki að vera neitt alvarlegt.  Alls ekki og ég er alveg viss um að sjúkdómaguðinn fer ekki að bögga mig með einhverjum alvöru vandamálum, eftir að vera búin að hjálpa mér á fætur eftir minn virka alkóhólisma.  Ég á við að svona veikindaalmætti getur varla verið svo andstyggilegt að það brummi á mig einhverju blóðfyrirkomulagi.  Enda er ég með sögu um algjört blóðheilbrigði.  Eins og gangandi auglýsing frá Blóðbankanum, svei mér þá.  Ég held að sjúkdómaguðinn myndi setja ojabjakk í lifrina á mér frekar.  Það er meiri stemmari fyrir því, enda djöflaðist ég á lifrarkvikindinu þegar ég var fyllibytta.

Hur som helst, þá bíð ég eftir að komast til sérfræðings og fá úr þessu skorið.  Þangað til læt ég mér nægja símtöl og myndir frá Londres, og á morgun verða allar stelpurnar mínar saman í heimsborginni.  Það finnst mér svo skemmtilegt.

Eruð þið hissa á að ég bloggi mikið?

Ég blogga til að gleyma! (Ég bilast úr hlátri). 

Þarna er ég komin með allibí á bloggið. 

 Bitru bloggararnir geta ekki hamast yfir þessu. 

Eymd selur, kynlíf selur og ég er núna eymdin uppmáluð.

Jeræt

Úje

Úje.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jenný - þetta er örugglega einhver tímabundin stríðni í kerfinu í þér. Kona sem bloggar eins og þú ER með heilbrigt blóð - Úje

Smjúts inn í daginn

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 6.8.2007 kl. 12:19

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk Anna mín, ég hallast reyndar að því þessa dagana að ég sé ÓSNERTANLEG með öllu, þegar sjúkdómaguðinn á í hlut- úje og til hamingju með að þinn "dearly beloved" er kominn heim, heill á húfi. Takk fyrir falleg orð elsku Anna

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.8.2007 kl. 12:24

3 Smámynd: Ragnheiður

æj drasl...vonandi er þetta bara eitthvað verulega ómerkilegt. Þú ert eðal og þannig á það að vera

Ragnheiður , 6.8.2007 kl. 12:31

4 Smámynd: Björg K. Sigurðardóttir

Auðvitað áttu ekkert að vera að þvælast til London. Þú hefur skyldum að gegna fyrir okkur blogglesendur og við í okkar eigingirni bönnum allan útlandaþvæling því hann kallar á fjarveru frá blogginu

Nei í alvöru Jenný mín, þá verður þetta með blóðið vonandi allt í lagi og þú átt eftir að skella þér til London hress og kát og hitta fólkið þitt. Knús til þín

Björg K. Sigurðardóttir, 6.8.2007 kl. 12:45

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

ELSKU  besta Jennslan mín, ef blóðið er að bögga þig þá er ég sannfærð um að við vinir þínir getum með hugarorku einni hjálpað þér, takk fyrir að leyfa okkur að vita af þessu, nú setjum við allt á fullt í jákvæðri læknis hugsun og þér MUN batna snúllu dúllan mín, júarþebest  farin í bæinn kíki á þig STRAX og ég kem heím í kvöld, eigðu bestastan dag.

Ásdís Sigurðardóttir, 6.8.2007 kl. 12:46

6 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Vá, vá! Segi eins og hinir, svona bloggglöð kona er ósnertanleg! Fann þarna orð þar sem þrjú G komu fyrir í röð! Jibbí! Hlakka til að sjá þig á sunnudaginn!

Guðríður Haraldsdóttir, 6.8.2007 kl. 12:51

7 identicon

Jenný mín, það er örugglega allt í lagi með þig. Þetta er bara tímabundið vandamál   Knús.

Guðrún B. (IP-tala skráð) 6.8.2007 kl. 12:52

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ljúfust! Vona að allt verði í lagi með blóðið hjá þér.

knús

Hrönn Sigurðardóttir, 6.8.2007 kl. 12:58

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er örgla of blóðheit.  Það er vandamálið.  Nananabúbú!  Takk görls.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.8.2007 kl. 13:07

10 Smámynd: Þröstur Unnar

Þú ferð ekki rassgat héðan. Láttu bara kíkja á frostlöginn og haltu þínu striki.

Þröstur Unnar, 6.8.2007 kl. 13:10

11 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Vonandi Jenný mín er allt í lagi með þig . það er bara gott fyrir þig að blogga og blogga.

Kristín Katla Árnadóttir, 6.8.2007 kl. 13:19

12 Smámynd: Birna Dís

Er næstafærsa þá um kynlíf?

Segi svona - vonum bara að það verði í góðu lagi með þig, annars taka bloggheimar sig bara saman og gefa þér blóð

Birna Dís , 6.8.2007 kl. 13:23

13 Smámynd: Birna Dís

"næsta færsla" átti þetta víst að vera

Birna Dís , 6.8.2007 kl. 13:23

14 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ég er búin að greina þetta. Segðu læknunum þetta strax. Þú ert með blátt blóð í æðum og ástæðan fyrir því að þú getur ekki flogið er að einkaþotan er í viðgerð. Og hana nú!

Jóna Á. Gísladóttir, 6.8.2007 kl. 13:33

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég síkrita mig auðvitað út úr þessu.  Annars var ég löngu farin að reikna með jákvæðum hlutum áður en ég vissi af síkritnu.  Það er bara kommonsens.  Næst er það klobbafærsa Birna Dís,  og Jóna, langa-langa-afi minn var launsonur Danakonungs og blóð mitt því helblátt, en reyndar eru í því rauðar slettur frá hinum lágmenningarlegu frönsku duggurum sem sváfu hjá formæðrum mínum.  Hver skilur þær ekki?  Ég skil þær allavega í botn.  Ég er því innflytjandi með landvistarleyfi fíbblin ykkar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.8.2007 kl. 13:45

16 Smámynd: Ibba Sig.

Ertu ekki bara letiblóð eins og ég? Það gæti skýrt skrítna útkomu í svona prófum. Nei, annars, kona sem skrifar jafn mikið og þú getur ekki verið löt. Og svo frétti ég að þú værir búin að taka niður jólagardínurnar í eldhúsinu.  

Ibba Sig., 6.8.2007 kl. 17:11

17 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er ekki bara búin að taka þær niður Ibba mín, heldur búin að skipta út tvisvar síðan í vor.  Baka nokkur tonn af bananabrauðum, kryddbrauðum, döðlubrauðum, kanilsnúðum og pönnukökum.  Okokok, fyrr má nú rota en dauðrota.  Upp með jólagardínurnar, ekki seinna en strax.

Þarf að blogga um það dæmi Ibba mannstu?

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.8.2007 kl. 17:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 2985734

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband