Leita í fréttum mbl.is

ENDALAUSAR KEPPNIR

 

Það er mín tilfinning að karlmenn séu meira fyrir að keppa í allskonar, fremur en konur.  Það er auðvitað alls ekki algilt, en mér finnst þeir oft mun keppnisglaðari.  Mér hefur stundum þótt þeim hafa tekist að gera keppnir allskonar að listformi, svo útsjónarsamir eru þeir að finna sér tilefni.

Í dag var heimsmeistaramót haldið í gufubaðssetu.  Þar sýnist mér á meðfylgjandi myndbandi, bæði kynin vera að gera sig að fíflum.  Hvaða tilgangi þjónar að hálfdrepa sig til að lenda í fyrsta sæti í gufubaðshæfileikum?  Hvers krefst það?  Að sitja á rassgatinu, blóðrauður í framan og bíða eftir hjartaáfalli, ofhitnun, heilablæðingu eða öðrum ömurlegum uppákomum?

Hvað hefur sigurvegarinn svo,  sér til ágætis fram yfir keppnissystkini sín?  Jú, hann er þrásetnastur í hita.  Vá!!!!!  Og hann er ekki með akút hjartavandamál.  Hefði þó getað komið sér því upp, meðan hann sat og svitnaði við nokkurra hundruð gráða gufu leikandi um boddíið á sér.

Ég sting upp á hárvaxtarkeppni næst.  Hún getur verið haldin á Þingvöllum frá vori og fram á haust.  Þar eru hæfileikarnir líka þráseta.  Að geta setið og einbeitt sér að því að hárið vaxi krefst svona álíka hæfileika og útsjónarsemi og gufubaðssetan.

Ég skrái mig í þá keppni. 

Öntillnextæmemæfrends!


mbl.is Heimsmeistaramót haldið í gufubaðsetu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Hvernig gekk með extreme makeover-aðgerðina?

Brynja Hjaltadóttir, 5.8.2007 kl. 22:39

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Brynja mín, takk fyrir að spyrja.  Ég vann Muhahahahah

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.8.2007 kl. 22:39

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Einu sinni voru þættir í sjónvarpinu um fólk sem var að reyna að koma sér í Guinness-heimsmetabókina. Það var nú meiri hryllingurinn. Játa að ég treysti mér ekki til að horfa á nema fimm mínútur af fyrsta þættinum. Kannski er keppnisandinn sterkari í körlum, þeir eru jú aldir þannig upp, þessar dúllur. Stelpur þegja og eru stilltar ... ef þær leysa vind kemur blómailmur. Las þetta síðasta á einhverju bloggi.

Guðríður Haraldsdóttir, 5.8.2007 kl. 22:40

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já held að það hafi verið hjá Heiðu sem blómailmurinn varð til.  Kallar eru defenitívt kappsamari en konur

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.8.2007 kl. 22:42

5 identicon

Pissukeppnir endalaust . pfiff.

Guðrún B. (IP-tala skráð) 5.8.2007 kl. 22:52

6 Smámynd: Brattur

... ég væri alveg til í að taka þátt í svona gufubaðskeppnni... þetta snýst um einbeitingu og viljastyrk og að lesa úr andlitum keppinautana... ég skal vera með auglýsingu fyrir bloggið þitt, um mittið ef þú vilt Jenný, ókeypis...

Brattur, 5.8.2007 kl. 23:08

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

LOL. Já, meiriháttar afrek og mjööööög eftirsóknarvert.

Jóna Á. Gísladóttir, 5.8.2007 kl. 23:13

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk Brattur, ekki verra að láta gufubaðskarlana lesa á meðan þeir svitna eins og svín. Þá meina ég lesa auglýsinguna um bloggið mitt.  Heldurðu að þeir kunni að lesa? Viðurkenni að ég hef ákveðna fordóma gagnvart piss-, kúk- og gufubaðskeppnum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.8.2007 kl. 23:32

9 Smámynd: Brattur

... sko Jenný, ég hef gaman af því að horfa á t.d. fótbolta og alvörukeppni...(!?)... en finnst svolítið skemmtilegt þegar fólk finnur upp á alskonar nýjungum í keppni... bara til að sprella... einu sinni æfði ég mig í að lesa "Einu sinni á ágústköldi" mjög hratt... fannst það fyndið að keppa í ljóðalestri... hver væri fljótastur að lesa texann... mælt með skeiðklukku, eins og lestrarprófin voru tekin í gamla dag... en n.b.... ég er nú hálfgerður ruglukollur...

Brattur, 5.8.2007 kl. 23:47

10 identicon

Styð hárvaxtarkeppnina - sé þá alveg fyrir mér, þessa sköllóttu rembast - múhhhhaaaa

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 5.8.2007 kl. 23:51

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Brattur þú ert ofurkrútt.

Já Anna sérðu kallana fyrir þér? (alvegaðlekaniðurkall arg svo krúttlegt tilfinningatákn). Omæ.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.8.2007 kl. 00:23

12 identicon

Þetta eru svona men-thingkeppnir. Annars er ég svo ánægð með mínar 3 mínútur í gufu. Ég skelli mér í gufu eftir sundið. Einu sinni fékk ég sjokk þegar ég kom inn í gufuna, lá ekki eldgamall og horaður kall á gólfinu. Ég snérist á hæl og ætlaði að ná í hjálp við að lífga  beinagrindina við. Alla vega fá aðstoð við það þegar beini byrjaði að gera armbeygjur og stundi og rumdi. Ég stoppaði og kíkti "undir"beina. Ég hélt að það væri einhver undir honum. Kannski kona sem þyrfti aðstoð. Hljóðin í beina voru nefnilega svoleiðis. Nei, engin lá undir beina. Allt í einu spratt beini á fætur,barði kjúkunum á horaða bringuna, stundi hátt og leit í kringum sig stoltur og skæklaðist út úr gufunni mér og öðrum sundlaugargestum til mikils léttis. Ég er sannfærð um að þetta sé eitthvað men-thing.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 6.8.2007 kl. 09:10

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hahaha Birna Dís.  Þetta er men-thing það er alveg á hreinu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.8.2007 kl. 09:49

14 Smámynd: Sigurjón

Við kallarnir í sveitinni sitjum nú oftast lengur en í 12 mínútur í gufunni í Skeiðalauginni (að vísu er hitinn líklega lægri), en við erum ekkert að keppa; við erum bara að spjalla.

Sigurjón, 6.8.2007 kl. 12:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 2985622

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.