Leita í fréttum mbl.is

VERTÍÐ HJÁ FÍKNÓ!

 

Nú er vertíðarhelgi fíkniefnalögreglunnar framundan.  Töff hjá þeim að auglýsa það að þeir verði á ferð og flugi með alvæpni, ef ég má orða það svo.

Hlýtur að hafa fyrirbyggjandi áhrif.

Eða hvað?

Kallar það á flóknari aðgerðir dópsala, meira útfærðar og útpældar?

Stundum er baráttan gegn fíkniefnum eins og vindmylluslagur.

En vér gefumst ekki upp.

Súðebastards (sko dópsalana).

Úje


mbl.is Öflugt fíkniefnaeftirlit um verslunarmannahelgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Je ræt, vörum fíbblin við, það verður nóg að gera samt. Sá í fréttunum hund að sniffa, mikið fréttnæmt  var að fatta að ég er líka búin að segja upp st-2 nenni þeim ekki lengur. Mér reyndar leiðist að sjá systir í TV finnst hún þá alltaf vera einhver sem ég þekki ekki.

Ásdís Sigurðardóttir, 30.7.2007 kl. 19:28

2 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Mér finnst þessi helgi alltaf svolítið óhuggleg og allur þessi viðbúnaður segir manni að það sé ástæða fyrir því. Ég vona bara að hún verði áfallalaus og fólk komist klakklaust frá henni!

Sunna Dóra Möller, 30.7.2007 kl. 19:32

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Það hlýtur allavega að hafa þau áhrif að þetta fer ekki fram fyrir opnum tjöldum eins og ekkert sé sjálfsagðara.....

Mér finnst þetta lið vera orðið ansi léttlynt með varninginn sinn, því finnst ekkert að því að díla bara fyrir opnum tjöldum eins og ekkert sé!! Reikna þau með því að fólk almennt þori ekki að hringja á lögguna? Eða hvað?

Gott hjá fíknó

Hrönn Sigurðardóttir, 30.7.2007 kl. 19:49

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Og nú verður slæmt ferðaveður um helgina var ég að heyra.  Rok, rigning og notalegheit fyrir okkur sem heima sitjum, vont fyrir ferðafólkið.  Leiðindi.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.7.2007 kl. 19:54

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég er svolítið hugsandi yfir þessu.  Veit ekki hvort það hefur nein áhrif önnur en þau að það verður bara betur falið.  Enda er ég á þeirri skoðun að það þurfi að leggja aðrar áherslur, og leita annara leiða.  Þ.e. stoppa þetta ofar í stiganum.  En það virðist ekki vera mikill áhugi fyrir því, því miður.  Að taka fíkniefni af neytendum í neðsta laginu eykur bara eftirspurninga og stóru karlarnir selja meira, og græða meira.  Það er örugglega ekki  meiningin eller hur ?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.7.2007 kl. 21:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.