Leita í fréttum mbl.is

STINGURINN MEÐ ATTITJÚD

1

Alltaf gaman að lesa nýjar fréttir af tónlistarmönnum sem maður hefur mætur á.  Ég hef alltaf haft gaman af Sting og því sem hann hefur verið að gera.  Ég hef örugglega látið hann á stall - sem mannveru, sem er töluvert út í hött með fólk yfirleitt, enda stendur enginn undir slíku til lengdar.

Þegar maður les svo um tvisvar í sömu vikunni að Sting hagi sér eins og DIVA, reki kokkinn sem þurfti barneignarfrí (ojbara) og mæti svo með sinn eigin matreiðslumeistara út að borða, þá fer að síga á manni brúnin.  Mig langar ekki nokkurn skapaðan, hræranlegan, lifandi hlut að dást að ofdekruðum stjörnum.  Ég skil vel hæfileikalítið fólk sem gerir út á athygli til að komast á forsíður blaðanna en fólk sem maður telur sæmilega viti borið á ekki að láta sér detta svona hegðun í hug.  Sama hver er.

Hvað er að karlinum?  Af hverju leigir/kaupir hann sér ekki matsölustað og lætur elda í andlitið á sér?  Djö... frekja að ætla að leggja undir sig eldhús á veitingastað úti í bæ.

Vona að honum hafi verið gefið þrususpark í afturendann og út meððasama. 


mbl.is Sting mætti með eigin matreiðslumann á veitingastað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Bölvuð frekja er þetta í honum.

Kristín Katla Árnadóttir, 20.7.2007 kl. 12:32

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nákvæmlega stelpur og ég botna ekkert í hvað hann er að vaða inn á veitingahús og heimta aðstöðu fyrir kokkinn.  Stórbilað.

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.7.2007 kl. 12:57

3 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Furðulegur - Ég gæti skilið það ef smástirni gerði svona nokkuð til að komast í gulu pressuna og vekja á sér athygli - en STING! ??? Segi bara eins og Kristjana - akkuru ekki bara að láta kokkinn elda heima ...

Marta B Helgadóttir, 20.7.2007 kl. 13:27

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

þetta er ansi svekkjandi að heyra og vonandi bara helber kjaftasaga. Ég sá viðtal við Sting um daginn í þætti Parkinson, sem er mjög virtur breskur spjallþáttarstjórnandi í Bretlandi. Sting virkaði svo ''together'' þar og down to earth. Talaði einmitt um að hann hafi ekki verið að höndla frægðina á sínum yngri árum og hefði gert marga gloríuna áður en hann þroskaðist.

Jóna Á. Gísladóttir, 20.7.2007 kl. 14:53

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er allvega hissa Jóna.  Fannst þetta svo útúr karakter miðað við það sem sést hefur til hanns.  Ekki að ég missi svefn út af þessu.  hehe

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.7.2007 kl. 14:58

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ég þarf örugglega að fá mér hóstasaft í kvöld ef ég á að sofna... böggar mig.. andskotinn

Jóna Á. Gísladóttir, 20.7.2007 kl. 17:20

7 identicon

Finnst fyndið að flestir tjá sig um þessa "frétt" eins og þetta sé sannleikur. Svona 50% frétta frá The Sun eru skáldskapur, 40% mjög ýkt og í mesta lagi 10% sem er satt. Þetta er sorp blað.

Mogginn fær samt plús fyrir það að gefa heimildir, þá veit maður allavega hversu trúverðug fréttin er. Oft áður hefur því verið sleppt þegar kemur að slúðrinu.

Geir Jónsson (IP-tala skráð) 20.7.2007 kl. 23:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 2985742

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband