Leita í fréttum mbl.is

NÚNA ER ÉG HISSA..

1

...jafnvel hneyksluð ef satt reynist.  Mikið rosalega finnst mér það út úr karakter við Björk, eins og ég upplifi hana, ef hún er farin að blanda sér í Britneyarsirkusinn.  Ekki að mér sé ekki sama, konur styðja konur.. en ég er vægast sagt gapandi hlessa.

Haft er eftir Björk af slúðurblaðinu enska Daily Star: "„Ég gat komist í burtu, en hún á ekki undankomu auðið,” sagði Björk við Daily Star. „Henni er velkomið að búa á heimili mínu á Íslandi,” mun Björk hafa sagt.

Jahá!


mbl.is Björk býður Britney til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Haft eftir slúðurblaðinu. Hæpið að það sé rétt en hinsvegar hefði kellan gott af því að kynnast íslenskri snúru.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 26.6.2007 kl. 09:45

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég var mjög hissa þegar ég las um þetta í morgun.

Kristín Katla Árnadóttir, 26.6.2007 kl. 09:50

3 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Mér finnst þetta krúttlegt

...á sinn hátt auðvitað. 

Laufey Ólafsdóttir, 26.6.2007 kl. 10:48

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Hva...! afhverju ætti hún ekki að bjóða henni gistingu? Mér finnst hún bara vera næs og vingjarnleg.

Jóna Á. Gísladóttir, 26.6.2007 kl. 10:55

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jóna; sætt?  Veistu hvernig Brittan er þegar hún dettur í það?

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.6.2007 kl. 10:59

6 identicon

Ehemm, eins og jafnöldrur hennar hér á landi? Nei, segi nú bara svona...

Sigrún Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 26.6.2007 kl. 11:06

7 identicon

...en verð að segja að mér finnst þetta eins og lygasaga, sammála þér að mér finnst þetta úr karakter hjá Björk. En ég þekki að vísu bara fígúruna Björk, hef ekki hugmynd um hvaða mann hún hefur að geyma.

Sigrún Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 26.6.2007 kl. 11:09

8 identicon

hvað er að ykkur ? Brittney hefur átt mesta basli með sjálafa sig. og þá hvað mest eftir að hún varð mamma. þetta heitir fæðingarþunglyndi og legst á flestar ef ekki allar nýbakaðar mæður. tala nú ekki um ef um er að ræða alkoholisma líka sem háir felsta bara mis mikið. Þetta er virkilega vel gera af Björk að retta henni hjálparhönd því að hún þarf á því að halda. og hvaða leyfi höfum við að dæma Brittney eða Björk.  Jenný veistu hvernig þú ert þegar þú dettur í það ? ég veti ekki hvernig ég verð því að ég er ovirkur alki en það vita það allir aðrir sem ég umgengst þegar ég var að drekka.....

lifið heil kveðja Linda

Linda (IP-tala skráð) 26.6.2007 kl. 11:38

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég veit ansi vel hvernig ég verð þegar ég dett í það enda hef ég neyðst til að fara í gengum það í minni edrúvinnu.  Fæðingarþunglyndi Linda legst ekki á flestar ef ekki allar konur Linda, það er svo langt frá því.  Nærri lagi væri að ætla að um 10% kvenna fengu það eða snert af því. 

Þessi færsla var sett fram í gríni, kannski vegna þess að það er svo mikil fátækt í heiminum, svo mikið af fólki sem er að deyja úr sjúkdómum og hungri, konur og börn eru seld eins og dýr til að þjóna fýsnum ríkra illvirkja með zero samvisku.  Þess vegna finnst mér að forréttindafólk úti í heimi sé kannski í öllu betri aðstöðu til að hjálpa sér sjálft og myndi gjarnan sjá þá sem geta beita sér á öðrum vettvangi.  En þetta er bara mín skoðun og hún þarf ekki endilega að vera rétt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.6.2007 kl. 12:00

10 identicon

Linda! Af hverju þarf endilega allt spjall að vera á háu plani? Má maður ekki stundum velta fyrir sér hinu? Voðalega finnst mér leiðinlegt að vera skömmuð fyrir svona lagað. Og auðvitað er varhugavert að setja það fram að allar mæður séu alkar (mikmiklir þó) með fæðingarþunglyndi (allavega flestar). Ég held að vissara sé að vísa í rannsóknir þegar maður kemur með svoleiðis fullyrðingar.

Sigrún Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 26.6.2007 kl. 12:12

11 identicon

...og ég er sko oft eins og api þegar ég dett í það. En api í nærbuxum ávallt.

Sigrún Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 26.6.2007 kl. 12:13

12 identicon

ég hef reynslu af því sjálf að hafa þjáðst af fæðingaþunglyndi og dottið í neyslu út frá því og náð því aftur að verða edrú og allsgáð vegna hjálpar fólks sem þekti það sama. og það skiptir ekki máli hvort manneskjan sé rík og fræg eða óþekkt og fátæk. við förum allar í gegnum tímabil á firstu dögunum eftir barnsburð sem kallast depurð sumar ná að komast í gegnum það strax en aðrar eru að berjast í gengum þetta í langann tíma. það fer eftir því hvernig við erum bygðar. hvort við erum sterkar og ákveðnar eða veikburða og viðkvæmar. og hvort við eigum neyslusögu að baki eða ekki. Ég er ekki að skamma neinn og ég hef tekið þátt í rannsókn vegna fæðingarþunglylndis til þess eins að hjálpa öðrum konum sem verða fyrir þessu og að gefa þeim konum sem sjá ekki von um að læknast og ná ser. einkennin eru leiði,kvíði,ótti,grátur,kemur ser ekki að verki, það eru væg einkenni..þau verri eru vil ekki vakna, vonar að barnið sofi sem lengst svo að hún faí frið, sjálfsmorðshugsanir, einskis nýt, hugsa um að láta ættleið barnið því að hún er svo vond mamma, verst af öllu að drepa barnið og það hefur gerst. við vitum það að alkar leynast víða og það eru ekki minna mömmu en pabbar. en sem betur fer að þá eru til fólk sem er svona venjulegt og þarf ekki að kljást við þetta hvorki alkoholisma né þunglyndi.  ég óska engum svo illt að líða svo illa

kveðja Linda

Linda (IP-tala skráð) 26.6.2007 kl. 15:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.