Leita í fréttum mbl.is

EFTIRSPURN EFTIR ORÐINU - GOTT MÁL!

1

Tveir menn stálu biblíu og sálmabók úr Krísuvíkurkirkju og voru handteknir fyrir austan fjall skömmu síðar.  Það er alltaf verið að tala um að þorri fólks stundi ekki kirkju nema á jólunum, lesi ekki í hinni helgu bók og margir af oss séum trúarleg viðrini.  Er þessi þjófnaður þá góður eða slæmur?  Er það ekki bara gott að einhverja þyrstir svona í orðið?  Allavega komust ritin aftur til kirkjunnar og löggurnar sem skiluðu þeim fengu bænastund í fundarlaun.  Einhver hefði nú sagt: "Séra minn ég get eiginlega frekar notast við peninga".

Amen á eftir efninu.


mbl.is Stálu biblíu og sálmabók úr kirkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ætli sé tekið harðar á þeim sem stela biblíu en öðru? Grunar að það verði þeim til refsilækkunar ef þeir þykjast hafa verið soltnir í guðsorðið ... Eða hvað.

Guðríður Haraldsdóttir, 25.5.2007 kl. 16:17

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég myndi hiklaust ljúga því ef ég væri þeir!!

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.5.2007 kl. 16:22

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þetta eru bara góðir og guðhræddir þjófar.

Anna Einarsdóttir, 25.5.2007 kl. 16:25

4 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Mér finnst að það hefði nú bara átt að leyfa þeim að eiga guðsorðið........kannski hefðu þeir að lokum séð villu síns vegar með því að fletta endrum og eins í hinni helgu bók og skilað bókunum sjálfir !

Sunna Dóra Möller, 25.5.2007 kl. 16:26

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nákvæmlega Sunna Dóra.  Það ætti beinlínis að vera leyfilegt að "stela" biblíum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.5.2007 kl. 16:35

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þetta er skondin frétt. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.5.2007 kl. 17:12

7 Smámynd: halkatla

ég tek undir með Sunnu Dóru - og þetta minnir mig bara á Paris Hilton skandalinn, núna er hún að lesa biblíuna og sækja búddaklaustur, en ef hún hefði gert eitthvað af því fyrr þá væri hún sennilega ekki í sínum vandræðum

eins er frábært ef þjófar stelpa biblíum, þá læra þeir amk að það er ljótt að stela ef þeir hafa fyrir því að lesa þýfið. 

halkatla, 25.5.2007 kl. 17:30

8 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já þetta svolítið skrýtin frétt. 'eg hef ekki heyrt svona áður

Kristín Katla Árnadóttir, 25.5.2007 kl. 18:47

9 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Frábærlega skrifuð frétt.

En annars er koma mín hingað að biðjast afsökunnar vegna femínistaumræðunnar og hefði ég mátt nota betra orðalag.
Hafi ég sært þig biðst ég margfaldrar afsökunnar.

Magnús Paul Korntop, 25.5.2007 kl. 18:52

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þér er fyrirgefið Magnús Korntorp.  Alltaf gott þegar fólk kann að biðjast afsökunar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.5.2007 kl. 18:54

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Vil taka það fram að þetta voru ábyggilega AÐKOMUMENN við gerum ekki svona hér fyrir austan fjall.........

Hrönn Sigurðardóttir, 25.5.2007 kl. 19:30

12 Smámynd: Tómas Þóroddsson

Að fá sér mat og guðsorð er ekki stuldur.

Tómas Þóroddsson, 25.5.2007 kl. 19:54

13 Smámynd: Ósk Sigurðardóttir

Ég segi það sama og Tómas, þetta getur varla talist stuldur. Er ekki kirkjan á barmi örvæntingar þar sem fleiri og fleiri segja sig úr þjóðkirkjunni? Þetta hlýtur að vera góð frétt og góður stuldur!

Ósk Sigurðardóttir, 25.5.2007 kl. 23:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 2985630

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband