Leita í fréttum mbl.is

LEIÐIN AÐ TITLINUM..

..er löng og slítandi.  Í fegurðarsamkeppnum þarf mikið að leggja á sig til að hin raunverulega fegurð konunnar komi í ljós.  Þrotlausar æfingar í ræktinni þar sem hver vöðvi, sin og taug eru þanin til hins ýtrasta en þar liggur stór hluti hinnar sönnu fegurðar konunnar falin.  Þetta vita allir.  Ekki má gleyma hinum ströngustu megrunarkúrum þar sem hver biti er vigtaður og er skemmst að minnast kálsúpunnar hennar Katýar í World Class sem nánast gekk af Lindu Pétursdóttur dauðri um árið. Þess minna af keppandanum þess betra og sigurlíkurnar aukast með hverju grammi sem tapað er.  Meiköppið er stór þáttur í fegurð manneskjunnar, aðallega kvenna.  Hún dregur fram hina sönnu fegurð sálarinnar eða réttara væri að segja að meiköppið í miklu magni felur óvelkomna fæðingargalla eins og raunveruleg andlit, minnkar nef og stækkar varir.  Hreint dásamlegt fyrirkomulag.  Leiðin að titlinum "Fegurðardrottning Íslands 2007" er þyrnum stráð og vörðuð blóði, svita og tárum. 

"Leiðin að titlinum" er sjónvarpsþáttur sem sýndur verður á Stöð 2 í kvöld.  Enn ein samkeppnin í fegurð er í startholunum.  Ómægod!  Flottar stelpur en glatað fyrirbæri og ég vildi óska að það væri almenn skoðun fólks að þær væru tímaskekkja.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eva Þorsteinsdóttir

Þær eru tímaskekkja.......sjá mitt blogg "fegurðardrottning" :)

Eva Þorsteinsdóttir, 22.5.2007 kl. 15:33

2 Smámynd: halkatla

ég hef gaman af því að hlæja að þessu og hef ekki tekið fegurðardrottningu alvarlega síðan Hófí vann þegar ég var 6 ára... það sorglega er samt þegar þessar stelpur fara í silíkon aðgerð fyrir eða eftir keppnina, ég VEIT um MJÖG MÖRG dæmi um það. Samfélagið er svo steikt og sjúkt. 

halkatla, 22.5.2007 kl. 15:36

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég er alveg samála þér Jenný , og að nenna að standa í þessu  það er hræðilegt að þurfa að svelta sig svona ein og þær gera þetta er sjúkt. Svo finnst mér þær alveg eins í útliti.

Kristín Katla Árnadóttir, 22.5.2007 kl. 15:52

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Las þína færslu AFTUR Eva, er reglulegur lesandi bloggsins þíns.  Já við erum sammála stelpur.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.5.2007 kl. 15:56

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Hehe Sammála jenný.

Kristín Katla Árnadóttir, 22.5.2007 kl. 16:03

6 Smámynd: Bergrún Íris Sævarsdóttir

þær eru nú alls ekki allar að svelta sig .... mér hefur alltaf fundist þessi keppni tímaskekkja en systir mín tók svo þátt í ungfrú reykjavík í vor og kom bara svaka vel út úr því með flott sjálfstraust og heilbrigðari lífsstíl. Mæli amk með því að fólk dæmi ekki stelpurnar sem taka þátt í þessu.

Bergrún Íris Sævarsdóttir, 22.5.2007 kl. 16:29

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Að sjálfsögðu hefur gagnrýni á fegurðarsamkeppnir sem fyrirbæri ekki nokkurn skapaðan hlut að gera með stelpurnar sem þátt taka.  Þó ekki væri.

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.5.2007 kl. 16:31

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei einmitt.  Það er keppninn sjálf og fyrir hvað hún stendur sem er röng.  Sammála ykkur í þvi.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.5.2007 kl. 16:43

9 Smámynd: Bergrún Íris Sævarsdóttir

nákvæmlega!

auk þess sem mér finnst aðstandendur keppninnar níðast á stelpunum sem taka þátt með því hvað það er ógeðslega dýrt inn á keppnina - fjölskyldur og vinir koma í matinn og á keppnina og borga 7400 kr. á haus fyrir það.  Þetta er rosalega dýr pakki að standa í. 

Bergrún Íris Sævarsdóttir, 22.5.2007 kl. 17:13

10 identicon

Ég þekki eina sem var beðin um að taka þátt í fegurðardrottning Íslands fyrir ca 3-4 árum. Sú stelpa er búin að vera í fimleikum síðan hún var lítil. Hún er með fallegan líkama, vel þjálfaða vöðva og í kjörþyngd. Hún var beðin um að fara í megrun. Hún neitaði og fór í ónáð. Þetta er tímaskekkja.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 22.5.2007 kl. 19:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2985720

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband